Dagur - Tíminn Akureyri - 21.02.1997, Blaðsíða 2

Dagur - Tíminn Akureyri - 21.02.1997, Blaðsíða 2
DAÐURLÍ FIÐ í LANDINU 14 - Föstudagur 21. febrúar 1997 ÍDíigur-®mttrm aÖ l'U'tetenðM daðri Augnatillit skýst aö þér. Óvœntu hóli hvíslað í eyrað. ísmeygið bros. Nautnalegur svipur. Nú, eða enn svœsnara: Hné strýkst við hné. Ókunnug hönd rótar íhári... Daður og daður geta verið tvö gerólík fyrirbrigði enda misjafnt hvaða persónu-líkamstöfra menn hafa til að dreifa og nýtast mega við daður. Flestir reyna að beita talandanum og augunum, nú eða brosa nógu mikið. Og almennt eru viðmœlendur blaðsins hlynntir léttertandi daðri. Daðri sem kitlar egóið, linar andrúmsloftið - og bjargar deginum! S Eg hef nú ekki gaman af því að daðra,“ segir Geirlaug B. Geir- laugsdóttir, íslandsmeistari í 100 metra spretthlaupi. „Ég tek því heldur ekkert sérstaklega vel ef einhver er að daðra við mig. Ég vil heldur fá bara eðli- lega framkomu." „Stundum er daður auðvitað bara saklaust ef fólk þekkist mjög vel. Þegar fólk segir eitthvað huggulegt við hvort annað og beitir jafnvel augunum," segir Geirlaug og bætir við að svo lengi sem það sé ekki tekið alvarlega. „En mér finnst það svolítið annað þegar það er bláókunnugur maður, þá er meiningin kannski önnur.“ Fagurgah daðrandi karlmanna heillar ekki Geirlaugu. Hún vill heldur að þeir séu skemmtilegir og umfram allt eðlileg- ir. „Ég held að íslendingar daðri ekki mjög mikið miðað við t.d. Spánverja og Portúgala. Mér finnst synd að margir geti ekki verið á léttu nótunum án þess að vera búnir að fá sér í glas.“ lóa íslendingar daðra lítið Brosa nógu mikið Ef maður væri að hitta strák í fyrsta skipti þá myndi maður bara reyna að vera hress, ófeiminn og eðlilegur, brosa nógu mikið og horfa á hann, gefa honum augnatillit," segir Auður Geirsdóttir, fegurðar- drottning Akureyrar. Auður frábiður sér væmni þegar karlmenn daðra við hana. „Þeir verða að vera hressir og mega ekkki bara tala um sjálfa sig og sín afrek. Svo mega þeir alveg ýja að því að þeir séu rómantískir." Karlmenn gera of lítið af því að daðra finnst Auði. „Þeir virðast helst nota þetta til að komast í einnar nætur gaman. Þeir meina þetta ekkert." Henni íinnst kvenfólk hins vegar gera mjög mikið af því og finnst það allt í lagi í hófi en sé auðvitað háð aðstæðum. lóa Þeir daðra við mig Eg hef nú lítið þurft að hafa fyrir daðri," segir Margrét Sig- urðardóttir, sexfaldur ís- landsmeistari í vaxtarrækt og einkaþjálfari hjá Gym 80. „Þeir daðra yfirleitt við mig en ég hef voðalega gaman af að daðra við karlmenn. Ég æfi auðvitað mikið og reyni að vera flott og klæða mig smart ef ég er að fara að daðra. Svo segi ég yfirleitt eitthvað sætt um þá. T.d.: Þú ert með rosalega falleg augu. Ég pæli voða mikið í aug- um. Svo auðvitað rassin- um, þ.e. hvort hann er með kúlurass, ef hann er flatrass þá má hann eiga sig,“ sagði Margrét og hló. Þegar karlmenn daðra við Margréti vill hún gjarna að þeir hæli henni. „Þeir segja t.d.: Þú ert voða smart vaxin. Ég fíla það rosalega vel.“ Margrét hefur góða yfir- sýn yfir daður borgarbúa þar sem hún vinnur sem útkastari á Kaffi Óliver. „Mér finnst daður bara al- veg sjálfsagt. Ég daðra við alla, ekki bara þá sem mig langar í nánari kynni við.“ lóa Daður er skemmtilegt Eg er í þjónustustarfi og veit svo sem ekki hvort þar er mikið daður en í samskiptum við viðskiptavini er maður yfirleitt léttur í skapi, brosir mikið og er alltaf tilbúinn til að hlusta. Oft er daðrið misskilið og maður fattar stundum ekki að maður hefur gengið of langt. Menn geta haldið að það sé verið að bjóða eitthvað meira. Það er einna helst það sem ég hef rekið mig á í samskiptum við hitt kynið,“ segir Linda Stef- ánsdóttir, körfuknattleikskona x KR og afgreiðslustúlka í Litlu kaffistofunni. Linda segist gjarnan vilja að karlmenn daðri við sig þó að það verði að sjálfsögðu að vera innan ákveðinna marka. Stundum sé daðrinu ofaukið og sér verði stundum „hálfflök- urt yfir því hvernig þeir fara að því en auðvitað vill maður gjarnan fá gott viðmót. Það er alltaf skemmtilegra en hitt að það sé aldrei daðrað við mann. Það finnst engum daður leiðin- legt. Mér finnst það allavega ekki, langt í frá,“ segir hún. -GHS ^ Linda Stefánsdóttir, körfu- ^ knattleikskona í KR, segir að engum þykir daður leiðinlegt svo framarlega sem það sé innan ákveðinna marka. Hún segist nota daður talsvert í starfi sínu í Litlu kaffistofunni. Mynd: Pjetur

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.