Dagur - Tíminn Akureyri - 21.02.1997, Blaðsíða 5

Dagur - Tíminn Akureyri - 21.02.1997, Blaðsíða 5
^Dagur-®tmrrm Föstudagur 21. febrúar 1997 -17 VIÐTAL DAGSINS Blur býður íslenskt brerniivín „Mér skilst að Damon Albarn drekki alltaf ís- lenskt brennivín þegar hann dvelst hér á landi, “ segir Árni Helgason, fram- kvœmdastjóri áfengis- framleiðslunnar Catco hf Brennivín var í boði á blaðamannafundi hljómsveitarinnar þar sem ný plata var kynnt. Þetta kom óvænt til. Það var hringt í mig fyrir hönd Damon Albarn og mér sagt að á blaðamanna- fundi, þar sem ný plata hljóm- sveitarinnar Blur yrði kynnt, vildi söngvarinn bjóða uppá ís- lenskt brennivín. Við slógum auðvitað til í hvelli og ég hitti söngvararann og þar ítrekaði hann þessa beiðni sína. í fram- haldinu sendum mann út með einar fjörutíu flöskur. Á fundinn mættu síðan 130 blaðamenn víðsvegar úr heiminum og á ör- fáum mínútum drukku þeir tuttugu flöskur. Og voru víst farnir að finna ansi vel á sér, skilst mór. Síðan var eftir fund- inn boðið í teiti og þar drukku hljómsveitarmeðlimir og gestir þeirra meira til,“ segir Árni Helgason, framkvæmdastjóri áfengisframleiðslunnar Catco hf. í Reykjavík. Albarn drekkur íslenskt brennivín í tilefni af útgáfu nýrrar breið- skífu sinnar efndi hljómsveitin Blur á dögunum til blaða- mannafundar á Cafe Royal í Lundúnum. Meðal veitinga var íslenskt brennivín. „Mér skilst að Damon Albarn drekki alltaf Arni Helgason, framkvæmdastjóri áfengisframleiðslunnar Catco hf. íslenskt brennivín þegar hann dvelst hér á landi,“ segir Árni Helgason. Og hann bætir við: „íslenskt brennivín er að verða sífellt vinsælli drykkur. Þó ég geri mér ekki nákvæmlega grein fyrir hvaða þýðingu það hefur að markaðslega boðið sé uppá brennivín á svona fund- um. En auðvitað getur það ekki skaðað okkur að tengjast svona, með óbeinum hætti, einni vinsælustu popphljómsveit samtímans." 20% í útflutning Ársframleiðsla Cato hf. er um 300 þúsund flöskur á ári. Um 20% fara á erlendan markað „Stefna fyrirtækisins er að auka markaðshlutdeild sína á erlend- um markaði til muna,“ segir Árni. Fyrirtækið framleiðir ís- lenskt brennivín, Tinda-Vodka, Eldur-ís, Jöklakrap, Dillons-Gin og Hvannarótar-Brennivín. Ennfremur segir hann að sam- keppni áfengisframleiðenda á erlendum mörkuðum sé gríðar- lega hörð, en engu að síður hafi markaðir verið að vinnast. Þar nefndir hann meðal annars Bandaríkin, Noreg og Kandada. „Við sendum til dæmis út send- ingu til Nova Scotia í byrjun janúar og ég var að fá upplýs- ingar um að nú er vínið góða komið í hillur verslana ytra. Þá höfum við einnig verið að skoða aðra markaði svo sem í Pól- landi, Sviss og Frakklandi," segir Árni. Mynd: Hilmar Orugglega íslandsvinur „Nei, ég þekki Damon Albarn ekki nema af sjónvarpsskján- um, fyrir utan stuttan fund á dögunum. Einsog ég sagði að framan þá getur það haft mikla þýðingu markaðslega fyrir okk- ar að vín frá okkur sé drukkið á blaðamannafundi hljómsveitar hans. Með það í huga held ég að núna sé örugglega hægt að segja að söngvarinn sé fslands- vinur, einsog þeir gerast bestir." -sbs. Dumb and Dumber J £ Vilmundur f Hansen Félagi minn hafði samband við mig um daginn og kvartaði sáran yfir því sem hann kallar misrétti í sam- félaginu. „Er einhver hemja í því,“ sagði hann „að sumir menn hafi meira í laun á mán- uði en öldruð móðir mín hefur til að lifa á yfir árið?“ Hverju gat ég svo sem svarað, eru þetta ekki duglegir og heiðar- legir menn sem hafa komið sér vel fyrir með dugnaði í starfi og þurfa þeir ekki að vera íjár- hagslega sjálfstæðir eins og ein- hver orðaði það um daginn? „Fjárhagslega sjálfstæðir," öskraði hann á móti. „Þurfa ekki allir að vera fjárhagslega sjálfstæðir, á einhver ein stétt meiri rétt á því en aðrar? Hvers konar rök eru þetta eiginlega fyrir launamisrétti, það ætti að kjöldraga menn fyrir að láta svona útúr sér, asninn þinn!“ Sjálfur sagðist hann vera með þokkaleg laun, svona rúm- lega tvöföld laun fiskvinnslu- fólks. „Hvað ertu þá að væla þetta?“ sagði ég. „Væla,“ sagði hann, „ég er ekkert að væla, ég er bara raunsær. Hvernig á ég sem nýbúinn er að ljúka ijög- urra ára háskólanámi svo sem að geta lifað á þessu? Ég er að borga húsnæðislán og lífeyris- sjóðslán, námslán, vísareikn- inginn eftir jólasukkið og þre- falt meðlag, fyrir utan allt hitt!“ „Eða þá flytja úr landi, mér skilst að reiðhjólahraðboði íKöben sé með álíka laun og skólastjóri á íslandi “ „Æ, eigum við ekki að tala um eitthvað annað,“ sagði ég pirr- aður, „hefur þú séð einhverja góða bíómynd nýlega?“ Eg hefði betur sleppt þessari spurningu. „Bíómynd, veistu hvaða mynd er vinsælust á myndbandaleigunum þessa dagana, ha?“ sagði hann. „Nei,“ ansaði ég, „það eru eng- ar leigur hér í víkinni." Hann hló. „Það segir nú kannski meira um andlegt ástand þjóð- arinnar en margt annað, get ég sagt þér.“ „Nú,“ sagði ég forvit- inn. „Dumb and Dumber, Dumb and Dumber," endurtók hann og hreinlega öskraði af hlátri. Popp, kók og Dumb and Dumb- er, afþreying hins velmenntaða íslendings!“ „Æi, hættu þessu og reyndu nú að vera raunsær og tala af viti,“ sagði ég og var farinn að vona að hann væri svo blankur að hann hafði ekki efni á því að tala lengur. „Hvað ætlar þú svo að gera í málun- um, annað en að kvarta," sagði ég og þóttist hafa stungið ær- lega upp í hann. „Snúa mér að glæpum." „HA?“ „Já, óg sé ekki aðra leið út úr þessu en að snúa mér að einhvers konar glæpastarfsemi, ég byrja bara smátt til dæmis með því að fá vinnu á svörtu og svo vinn ég mig bara upp þar til ég fæ svona milljón á mánuði. Eða þá flytja úr landi, mér skilst að reiðhjólahraðboði í Köben sé með álíka laun og skólastjóri á íslandi." „Hvað segir þú, sömu laun og ég?“ svaraði ég hneykslaðm. Og skellti á.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.