Dagur - Tíminn Akureyri - 21.02.1997, Qupperneq 8
20 - Föstudagur 21. febrúar 1997
Lífog fy&t'
Jbgur-'ðlÍOTmn
Listin til fólksins
Tolli ætlar að opna málverkasýningu í Blómavali Sigtúni í dag
kl. 18 eða svona um það leyti sem fólk er að fara úr vinnu,
kannski búið að gera helgarinnkaupin, og getur þá kíkt við í
Blómavali á leiðinni heim. Svo verður Bubbi bróðir líka á
staðnum. Það er engin tilviljun að Tolli velur sér verslun sem
sýningaraðstöðu því honum er umhugað um að koma listinni
til fólksins í stað þess að sitja á afturendanum og bíða eftir
því að almenningur hætti sér inn í siðfágaða sýningarsali
listastofnana. Kannski að næsta skref hjá honum verði að
setja upp sýningu í stigagangi blokkar í Breiðholtinu (honum
ku víst hafa dottið það í hug).
Aukasýning á Undir berum himni
Síðasta sýning Leikfélags Akureyrar á Undir berum himni eftir Steve Tes-
ich var áformuð á föstudagskvöld en þar sem löngu er uppselt á sýning-
una og vegna fjölda fyrirspurna hefur verið ákveðið að efna til aukasýning-
ar laugardaginn 1. mars klukkan 20:30. Undirbúningur að sýningu á Vefar-
anum mikla frá Kasmír hefst á Renniverkstæðinu strax á mánudagskvöld-
ið og því eru allra síðustu forvöð að sjá hina mögnuðu sýningu á Undir
berum himni á laugardaginn.
ísland ógnvekjandi reynsla
„íslandsferðin varð mér mikil og ógnvekjandi reynsla. Mér
fannst ísland vera töfrastaður og vona að myndirnar mínar
séu landinu samboðnar... Ég hef um ævina ferðast um fjöl-
mörg lönd og teiknað í öllum þeim ferðalöguum en þessi bíl-
ferð frá Keflavík til Reykjavíkur klukkan hálf sjö um morgun
hafði á mig djúp áhrif,“ segir Barbara Westman sem heldur
sýningu á Kjarvalsstöðum á vatnslitamyndum sem hún mál-
aði eftir ferð hingað til lands á síðasta ári. Rýminu á Kjarvals-
stöðum deilir hún með Jacques Monory, einum helsta frum-
kvöðli evrópskrar popplistar. Jacques er mikill áhugamaður
um leynilögreglureyfara og heita allar myndir hans á sýning-
unni: Ráðgáta.
Lóur og Lóuþrælar að
Breiðumýri
Kórarnir Sandlóurnar og Lóuþrælarnir
frá Hvammstanga verða með söng-
skemmtun að Breiðumýri í Reykjadal,
laugardagskvöldið 22. febrúar kl. 21.00.
Dansleikur verður á eftir og leika félag-
ar í Harmonikufélagi Þingeyinga fyrir
dansi.
Frumsýning í
Ljósvetningabúð
Leikfélagið Búkolla frumsýnir gaman-
leikinn Á SVIÐ í Ljósvetningabúð laug-
ardaginn 22. febrúar kl. 20.30. Verkið er
eftir Rick Abbot, þýðinguna gerði Guð-
jón Ólafsson og leikstjóri er Skúli
Gautason. 2. sýning á verkinu er mánu-
daginn 24. febrúar. Miðapantanir í síma
464-3550 (Elín) og í Ljósvetningabúð
fyrir sýningar í síma 464-3617.
Lukkuriddarinn í
Skjólbrekku
Góð aðsókn hefur verið á sýningar leik-
deildar Umf. Mývetnings á Lukkuridd-
aranum og verkið hefur fengið prýði-
lega dóma. Leikritið verður sýnt í Skjól-
brekku sunnudaginn 23. febrúar kl. 21.
Lokasýning á Lukkuriddaranum verður
þriðjudaginn 25. febrúar.