Dagur - Tíminn Akureyri - 05.03.1997, Síða 6

Dagur - Tíminn Akureyri - 05.03.1997, Síða 6
18 - Miðvikudagur 5. mars 1997 ^Bagur-ÍEímirat MENNING O G LISTIR Tónleikar Passíukórsins Haukur Ágústsson skrifar Sunnudaginn 2. mars efndi Passíukórinn undir stjórn Roars Kvams til tónleika í Akureyrarkirkju. Á efnisskrá var kirkjutónlist frá 16. og 17. öld og tólf lög eftir Mikis Theo- dorakis. íslenskir textar við lög- in tólf eru eftir Atla Guðlaugs- son. Ásamt kórnum komu fram einsöngvararnir Inga Eydal og Aðalsteinn Bergdal og hijóð- færaleikararnir Jón Rafnsson, kontrabassaleikari, Richard Simm, sem lék á orgel og píanó, Valva Gísladóttir, ilautuleikari, Lýður Ólafsson, gítarleikari, Birgir Karlsson, sem lék á bouzouki og Ingvi Rafn Ingva- son, sem lék á slagverk. Tónleikarnir hófust á kirkju- verkunuin, sem voru Wann unsre Augen schlafen ein eftir H. Schiitz, Cantate Domino eftir D. Buxtehude, Ich ruf zu dir, Herr Jesu Christ eftir H. Schiitz og Lobet den Herrn, alle Ilei- den. Þessi verk flutti kórinn einn með undirleik Richards Simms á orgel. Flutningur var harla góður, einkum þegar tillit er til þess tekið, að kórinn taldi ekki nema átta konur og þrjá karla á tónleikunum. Sópraninn tær Sópran kórsins er skemmtileg- ur á að hlýða. Ilann á til tæran tón, sem fellur vel að hinum gömlu verkum. Altinn fyllir vel og getur tekið laglegar strófur. Karlarnir sómdu sér allvel í samsöng kórsins, en nutu sín gjarna verulega miður í sóló- strófum. Kór Leikfélags Akureyrar Kossar og kúlissur Laugard. 8. mars kl. 20.00. Föstud. 14. mars kl. 20.00. Laugard. 22. mars kl. 20.00. Alhugið breyttan sýningartíma. Afmælistilboð MiöaverS 1500 krónur. Börn yngri en 14 óra 750 krónur. Miöasalan er opin alla virka daga nema mónud. kl. 13.00-17.00 ' og fram aö sýningu sýningardaga. Símsvari allan sólarhringinn. Sími í miðasölu: 462 1400. Ílagur-Ctmtmt - besti tími dagsins! ÞJÓDLEIKHÚSID Stóra sviðið kl. 20.00 KÖTTUR Á HEITU BLIKKÞAKI eftir Tennessee Wiiiams FRUMSÝNING á morgun, fimmtud. 6. mars. Örfá sæti iaus. 2. sýn. miðvikud. 12. mars. Örfá sæti laus. 3. sýn. sunnud. 16. mars. Örfá sæti laus. 4. sýn. fimmtud. 20. mars. Uppselt. ÞREK OG TÁR eftir Ólaf Hauk Símonarson Föstud. 7. mars. Nokkur sæti laus. Fimmtud. 13. mars. Nokkur sæti laus. Ath. Síðustu sýningar. VILLIÖNDIN eftir Henrik Ibsen Laugard. 8. mars. Örfá sæti laus. Föstud. 14. mars. Uppselt. Laugard. 22. mars. KENNARAR ÓSKAST eftir Ólaf Hauk Símonarson Sunnud. 9. mars Laugard. 15. mars. Örfá sæti laus. Ath. Fáar sýningar eftir. LITLI KLÁUS OG STÓRI KLÁUS eftir H.C. Andersen Laugard. 8. mars kl. 14.00. Sunnud. 9. mars kl. 14.00. Nokkur sæti laus. Laugard. 15. mars kl. 14.00. Uppselt. Sunnud. 16. marskl. 14.00. Smíðaverkstæðið kl. 20.30 LEITT HÚN SKYLDI VERA SKÆKJA eftir John Ford Laugard. 8. mars. Uppselt. Sunnud. 9. mars. Örfá sæti laus Laugard. 15. mars. Uppselt Athygli er vakin á að sýningin er ekki við hæfi barna. Ekkl er hægt að hleypa gestum inn í salinn ettir að sýning hefst. Litla sviðið kl. 20.30 í HVÍTU MYRKRI eftir Karl Ágúst Úlfsson Aukasýning föstud. 7. mars. Nokkur sæti laus Ekki er hægt að hleypa gestum inn í salinn eftir að sýning hefst. Miðasalan er opin mánudaga og þriðjudaga kl. 13-18, frá miðvikudegi til sunnudags kl. 13-20 og til 20.30 þegar sýningar eru á þeim tíma. Einnig er tekið á móti símapöntunum frá kl. 10 virka daga. átti nokkur smekklegá unnin sóló. Inga og Aðalsteinn Kórinn gerði víðast vel í lögum Theodorakisar, en hann söng mest bakraddir. Eitt lag söng Passíukórinn hefur gjarnan tekið til með- ferðar verk sem eru nokkuð úr alfaraleið og þannig auðgað tónlistar- líf á Akureyri með starji sínu. Einsöngvararnir, Inga Eydal og Aðalsteinn Borgdal, notuðu magnara við söng sinn. Kórinn yfírgnæfði samt víðast. Inga Ey- dal náði sér allvel á strik í lag- inu Þig umlykur svefninn, en best naut Aðalsteinn Bergdal sín í laginu Við erum tveir. Textaframburður bæði kórs og einsöngvara var nokkuð ógreinilegur og mátti hafa sig talsvert við til þess að nema merkingu. Passíukórinn hefur gjarnan tekið til meðferðar verk, sem eru nokkuð úr alfaraleið og þannig auðgað tónlistarlíf á Ak- ureyri með starfi sínu. Því mið- ur hefur hann um of liðið fyrir fámenni og virðist lítt ganga að bæta úr þeim vanda. Cantate Domino var vel ílutt, þó að karla- raddir einar í öðrum hluta verks- ins næðu ekki svo sem skyldi sam- feliu við frammistöðu kvennanna í verkinu. Ich ruf zu dir, Herr Jesu Christ hefði þarfnast nokkuð meiri æfing- ar. í verkinu var ekki iaust við los- arabrag á stundum. Lokaverkið í þessum hluta, Lobet den Herrn, alle Heiden, og upphafsverkið, Wann unsre Augen schlafen ein, tókust í heild tekið allvel. Hljómsveit lék undir með kór og einsöngvur- um í lögunum tólf eftir Mikis Theodorakis. Hlutfalli í styrk var nokkuð ábótavant. Gítar- leikur Lýðs Ólafssonar naut sín lítt og eins hefði bouzoukileikur Birgis Karlssonar mátt vera heldur meira áberandi. Slag- verk fórst Ingva Rafni Ingvasyni vel úr hendi og hið sama var um kontrabassaleik Jóns Rafns- sonar og píanóleik Richards Simms. Fallegur var ílautuleik- ur Völvu Gísladóttur, en hún hann einn, Möndlutré og Marmari. Höfuðgalli á flutningi kórsins í lögum Theodorakisar var, að hann tíðum var hann of sterkur í bakröddum. Vonandi leggja aðstandendur hans samt ekki upp laupana, heldur halda áfram baráttu sinni. Tveggja heima sýn Freyvangs- leikhúsið Sýnum firna fyndinn gamanleik: „Meb vífib í lúkunum" eftir Ray Cooney Leikstjóri: Hákon Waage 6. sýning fimmtud. 6. mars kl. 20.30 7. sýning föstud. 7. mars kl. 20.30 8. sýning laugard. 8. mars kl. 20.30 9. sýning fimmtud. 13. mars kl. 20.30 10. sýning föstud. 14. mars kl. 20.30 Mibapantanir í síma 463 1193 milli kl. 18 og 20. A öbruin tíma í síma 463 1196 (símsvari) ókmenntafræðistofnun Háskóla íslands hefur nú í samvinnu við Háskólaút- gáfuna gefið út bókina Tveggja heima sýn. Saga Ólafs Þórhalla- sonar og þjóðsögurnar eftir Maríu Önnu Þorsteinsdóttur. Tveggja heima sýn. Saga Ól- afs Þórhallasonar og þjóðsög- urnar er 53. bindi í ritröð Bók- menntafræðistofnunar Studia Islandica en ritstjóri er nú Vé- steinn Ólason, prófessor í ís- lensku við Iláskóla íslands. f bókinni ijallar María Anna Þor- steinsdóttir um Sögu Ólafs Þór- hallasonar eftir Eirík Laxdal sem hefur verið talin fyrsta ís- lenska skáldsagan. Sagan er þroskasaga manns sem ferðast milli tveggja heima, álfheima og mannheima. Höfundur klæðir þar hugmyndir upplýsingarald- ar í búning þekktra þjóðsagna sem hann íléttar haglega sam- an og lagar að skáldsöguform- inu. í nákvæmari greiningu á verkinu sýnir höfundur Hvernig þar er teílt skynsemishyggju gegn stöðnuðum hugmyndum samtímans og róttækri trú á gildi tilfinninganna í mannleg- um samskiptum gegn valdboð- um, hræsni og hviklyndi. Ilún færir margvísleg rök að því að utangarðsmaðurinn Eiríkur Laxdal hafi í senn verið frum- legur og snjall rithöfundur og langt á undan samtíð sinni í hugmyndum um sálarlíf ein- staklingsins og samfélagsleg skilyrði ástarinnar. Rannsóknin leiðir í ljós hugmyndir um jafn- rétti kynjanna sem eru nær hugmyndum nútíma kvenna- hreyfingar en ríkjandi hug- myndum 18. og 19. aldar. Tveggja heima sýn. Saga Ól- afs Þórhallasonar og þjóðsög- urnar er 228 bls. að stærð með ágripi á ensku. Verð er 2.100 krónur.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.