Dagur - Tíminn Akureyri - 05.03.1997, Side 8

Dagur - Tíminn Akureyri - 05.03.1997, Side 8
Tískan 1997 í 30 liðum Síðasta sunnudag var haldin á Hótel íslandi keppnin Tískan, al- þjóðleg frístæl, tískulínu-, förðunar-, tískuhönnunar-, fatagerðar- og skartgripa- keppni. Slagorð keppninn- ar í ár var „Hreint vatn fyrir alla,“ til að vekja fólk til umhugsunar um að stór hluti jarðarbúa hefur ekki aðgang að hreinu vatni. Keppnin hefur verið haldin árlega síðastliðin ellefu ár og er sú stærsta sinnar tegundar í Norður- Evrópu. Er þetta fertug- asta og þriðja keppnin sem tímaritið Hár & feg- urð hefur staðið fyrir á sextán árum. Keppt var í fímm iðn- greinum, sem deildust nið- ur á hinar ýmsu greinar og voru 30 bikarar veittir fyrir fyrsta sæti. Keppt var í ásetningu fantasíugervi- nagla, leikhúsförðun, skartgripum, ljósmynda- förðun, fantasíuförðun, frístæl hárgreiðslu, frjáls- um fatnaði og mörgu fleiru. Pá var sérstakur forsíðubikar afhentur fyrir bestu forsíðu Hárs & feg- urðar. Stefán Jörgen Ágústsson, sem hér vinnur við sitt módel, fékk fullt hús stiga, samtals 90 stig eða 30 stigfrá þeim þremur dómurum sem dœmdu. Hann var m.ö.o. ífyrsta sœti í leikhúsfórðun. Aðalfundur Islandsbanka hf. Aðulfundur íslandsbcmku hf. 1997 verður haldinn í Súlnasal Hótel Sögu mánudaginn 17. mars 1997 og hefst kl. 14:00. Dagskrá 1. Aðalfundarstörf í samræmi við 10. grein samþykkta bankans. 2. Önnur mál, löglega upp borin. Framboðsfrestur til bankaráðs rennur út þriðjudaginn 11. mars n.k. kl. 17:00. Framboðum skal skila til bankastjórnar, Kirkjusandi. Atkvæðaseðlar og aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum eða umboðsmönnum þeirra í íslandsbanka hf., Kirkjusandi, Reykjavík, 2. hæð, 13. og 14. mars frá kl. 9:15 - 16:00 og á fundardegi frá kl. 9:15 - 12:00. Dagskrá fundarins, tillögur og ársreikningur félagsins fyrir árið 1996 verður hluthöfum til sýnis á sama stað frá og með mánudeginum 10. mars 1997. Illuthafar eru vinsamlegast beðnir um að vitja aðgöngumiða og atkvæðaseðla sinna fyrir kl. 12:00 á hádegi á fundardegi. 4. mars 1997 Bankaráð íslandsbanka hf. ISLANDSBANKI Hér er keppt ífantasíuförðun sem er vaxandi hérlendis ^ sem og annars staðar. Fantasíujorðun aflur, djöful- legUr þessi! Myndin Pjetur

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.