Dagur - Tíminn Akureyri - 05.03.1997, Síða 10

Dagur - Tíminn Akureyri - 05.03.1997, Síða 10
22 - Miðvikudagur 5. mars 1997 jDagm'-ÍEœmm RADDIR FOLICSINS Bréfleiðis... Heimilisfangið er: Dagur-Tíminn, Strandgötu 31, pósthólf 58,602 Akureyri Nú er komið að þér, neytandi góður! Nú stöndum við bændur frammi fyrir því að hrökkva eða stökkva, ef gegndarlausar kröfur um hag- ræðingu og lægra búvöruverð eiga að halda áfram að ráða ferðinni, því við bændur getum aðeins orðið við þessum kröfum með því að draga úr gæðum og hollustu afurða. Undanfarin ár hafa bændur gengið á höfuðstól sinn til að hafa í sig og á, með því að draga úr viðhaldi mann- virkja og ræktunar. Haldi þessi þróun áfram þýðir það aðeins hrun stéttarinnar. Hvað er til ráða? Eigum við að fækka búum og stækka þau, leggja niður hin hefðbundnu fjölskyldubú og Ég veit í hjarta mínu að það er ekki þetta sem fólkið í land- inu vill. Það vill heilbrigða bú- vöru á viðráðanlegu verði, framleidda og unna af íslend- ingum, því það eru fleiri en bændur sem færu á atvinnu- leysisbætur ef verulegt magn af kjöt- og mjólkurvörum yrði flutt inn. Til dæmis vinna 45% Sunn- lendinga beint og óbeint að landbúnaðaframleiðslu. Allsstaðar í hinum vestræna heimi styrkja þjóðirnar land- búnað sinn meira eða minna, ljóst eða leynt, og verður ekki dregið úr því í framtíðinni vegna matvælaöryggis í fjölg- andi heimi. Það ætti að segja mönnum hér á norðurhjara eitthvað að sauðijárbændur hér „Eigum við að leyfa notkun hormóna til að auka vöxt, fúkkalyfja til að geta haft dýrin þéttar saman og minnka eftirlit og heilbrigðiskröfur í sláturhúsum og mjólkurafurða- stöðvum?" Segir greinarhöfundur. taka upp stærri einingar, verk- smiðjubú, þar sem hagfræðin ræður ríkjum en ekki velferð dýranna og hollusta afurð- anna? Eigum við að leyfa notk- un hormóna til að auka vöxt, fúkkalyfja til að geta haft dýrin þéttar saman og minnka eftirlit og heilbrigðiskröfur í sláturhús- um og mjólkurafurðastöðvum? Þá mætti einnig Iækka laun til jafns við þau launasvæði sem við keppum við, t.d. Portúgal, ef flytja má vörur inn þaðan. Ekki þýðir að miða við Norðurlöndin því þar er svipað verð og hér nema kannski á verksmiðju- framleiddum kjúklingum. Það er hægt að lækka framleiðslu- kostnað verulega ef gæðakröfur eru minni. En þetta er nú bara maturinn sem við ætlum börn- unum okkar! Hvað á að gera við þá bænd- ur sem neyddir verða til að hætta búskap? Þetta er upp til hópa fólk sem komið er yfir miðjan aldur og okkar bíður ekkert nema atvinnuleysisbæt- ur. Eitthvað kostar það þjóðfé- lagið, því ekki er hægt að skjóta okkur þó sumum þætti það víst landhreinsun! á landi, þar sem framleiðslu- kostnaður er óhjákvæmilega hár, stæðu mun betur í dag ef ísland væri aðili að EB, þótt sumir hagfræðingar haldi því fram að styrkjakerfið hér sé að sliga þjóðfélagið. Það er líka ekki öllum ljóst að beingreiðsl- ur til bænda eru ekki bara bændum til hagsbóta, heldur er verið að tryggja það að neyt- endur fái vöruna á viðráðan- legu verði. Kæru neytendur, það er komið að ykkur að velja! Viljið þið heilbrigða íslenska búvöru eða glórulausa frjáls- hyggju þar sem verðið er aðal- atriði á kostnað fjölskyldubús- ins, á kostnað byggðar á lands- byggðinni og á kostnað heil- brigðrar landbúnaðarstefnu í sátt við umhverfið? Látið í ykk- ur heyra hvað þið sjálf viljið, látið ekki hagfræðingana ráða, stefnulaust. lllíöarendakoti, Fljótshlíð, Guðrún Stefánsdóttir, bóndi. Bréf til Garra um Saga Class Kærí Garrí Vegna ummæla í pistli þín- um í Degi-Tímanum þann 27. febrúar langar mig að varpa ljósi á nokkur at- riði sem þar koma fram. Þú leiðir að því líkur að læknirinn, sem fram kemur í auglýsingu Flugleiða um Saga Business Class, sé að drýgja tekjur sínar með því. Svo er alls ekki. Læknirinn tekur ekki krónu fyrir að koma fram í aug- lýsingunni. Sem hjartalæknir þarf hann oft að komast með sjúklinga sína á sjúkrahús er- lendis með mjög skömmum fyr- irvara. Oftast er þar um börn að ræða. Tíðar áætlunarferðir Flugleiða stuðla að því að þess- ar ferðir ganga hratt fyrir sig. Læknirinn er því ekki lengur frá vinnu hér heima en nauð- synlegt er. Hann vinnur tíma og vinnu- veitandi hans - heilbrigðiskerf- ið - sparar þar með peninga. Það eru þessar staðreyndir sem verið er að undirstrika með auglýsingunni. Flugleiðir kunna lækninum bestu þakkir íyrir að láta álit sitt í ljós með þessum hætti. Peningahliðin á Saga Class í pistli þínum segir þú að pen- ingahliðin (á Saga Class) sé svo flókin að þú treystir þér ekki til að velta henni mikið fyrir sér. Mér er ljúft að skýra þá hlið málsins. Staðreyndin er sú að þeir sem fara til útlanda í viðskipta- erindum vinna tíma og spara peninga með því að ferðast á viðskiptafarrými eins og Saga Business Class. Munurinn á far- gjaldi á Saga Business Class og ódýrasta fargjaldi er yfirleitt minni en kostnaðurinn sem hlýst af því að dvelja lengur er- lendis en nauðsyn krefur. Þetta verður best skýrt með dæmi. Ódýrasta fargjald til Lundúna (Apex fargjald) kostar 42.100 kr. Það þarf að bóka með 14 daga fyrirvara og dvöl- in þarf að ná fram á sunnudag í það minnsta. Maður sem fer á tveggja daga ráðstefnu, sem byrjar á miðvikudegi, er búinn síðdegis á fimmtudeginum. Ef hann ferðast á Apex fargjaldi þarf hann að dvelja í þrjá daga í viðbót í Lundúnum. Það kostar minnst 17 þús. kr. á dag, eða 51 þús. kr. Hann kemur ekki í vinnu á föstudeginum. Vinnu- veitandi mannsins þarf ekki að- eins að greiða laun, heldur tap- ar hann líka tekjum sem þessi maður mundi afla fyrirtækinu. Miðað við miðlungslaun gæti þetta verið launagreiðsla og tekjutap upp á 15-20 þús. kr. Kostnaðurinn við að ?spara“ er þá kominn í u.þ.b. 70 þús. kr. Skynsamlegur valkostur Saga 2 fargjald til Lundúna kostar 62.400 kr. Eini munur- inn á því og fullu Saga Business Class fargjaldi er sá að bóka þarf með 4 daga fyrirvara. Verðmunur á ódýra Apex fargjaldinu og Saga 2 fargjald- inu er því 20.300 kr. Það er inn- an við 30% af kostnaðinum við að bíða eftir að komast heim í áðurnefndu dæmi. Jafnvel þó okkar maður hefði aðeins verið einum degi lengur í Lundúnum en hann nauðsynlega þurfti, hefði hann sparað með því að ferðast á Saga Business Class frekar en ódýrasta Apex fargjaldinu. Saga Business Class er því skynsamlegur valkostur fyrir þá sem ferðast í viðskiptaerindum. Þeir vinna tíma og spara pen- inga. Með bestu kveðju Símon Pálssonsvœðisstjóri hjá Flugleiðum ^ JHeinfuvatid * 9 9 Forráðamenn Sjónvarpsins kvaka hátt yfir því að klink vanti í kassann til framleiðslu á meiru af innlendu dagskrárefni. Það er til auðvelt ráð við þessu, og með auðveldum hætti getur hlut- fall íslensks efnis farið yfir 50%, sem er það markmið sem stefnt er að. Endursýna má gam- alt íslenskt efni, sem efalítið myndi njóta mikilla vinsælda. Eftir því sem kjaftæði um vímuefnavarnir eykst, verður neysla þeirra meiri í sömu hlutföllum. Þannig var um síðustu helgi á vegum Jafningja- fræðslunnar efnt til átaks gegn dópi ungmenna. Guð láti gott á vita með afraksturinn. Meðal þess sem gert var í þessu átaki var ljóða- lestur, framdir voru gjörningar, farið var í körfubolta - og síðast en ekki síðst voru nem- endur í bifvélavirkjun staðsettir á bensínstöðv- um Skeljungs, og aðstoðuðu þar bíleigendur á biluðum skrjóðum. En gæti nokkur góðfús les- andi upplýst Meinhornsritara dagsins um hvað bílaviðgerðir og vímuvarnir eiga sameiginlegt. Spyr sá sem ekki veit. Stofustærðir, gluggar og lek þök ...og enn inn skólamál á Ak- ureyri. Skýrslur starfshópa skólanna sunnan Glerár sem áttu m.a. að fjalla um kosti og galla safnskóla annars vegar og hverfis- skóla hins vegar eru æði misjafnar að stærð og gæð- um og ein þeirra aðeins þrjú blöð sem segir ekki neitt, lítur út eins og illa skrifuð fundargerð. í nefnd hvers skóla sátu fulltrúar starfsmanna, skólanefndar, skólastjóri og foreldri. Nið- urstöður frá Barnaskóla Ak- ureyrar (íslands) og Odd- eyrarskóla voru afdráttar- laust með hverfisskólum, niðurstöður starfshóps Lundarskóla eru líklega hverfisskóla meðmæltar en bæði er skýrslan ákaflega stutt og eins eru engar nið- urstöður þar dregnar sam- an en meira púðri eytt í stofustærðir, gerð glugga og ógnanir á borð við leka á þaki og hún endar í miðju kafi í vangaveltum um stað- setningu stjórnunar. Starfs- hópur Gagnfræðaskólans leggst gegn hverfisskóla eins og við mátti búast og vill m.a. að skólamörk Lundarskóla og Barnaskóla Akureyrar verði fljótandi, þ.e. þau verði færð frá Mýr- arvegi niður að Byggðarvegi strax haustið 1997. Sveigj- anleiki og samstarf verði milli skólanna og byggt verði við Barnaskólann eftir upphaflegum teikningum Guðjóns Samúelssonar frá 1929. Hverjum sýnist sinn fugl fegurstur Foreldrafélag Glerárskóla framkvæmdi upp á sitt eins- dæmi könnun sem var þannig gerð að heim til for- eldra skólabarnanna fór blað og var þátttakan yfir 90% og sýndi ótvírætt að hverfisskóli átti þar hug flestra, eða 82% þátttak- enda. Óbreytt fyrirkomulag vildu 13% og óákveðnir voru 4%. Viðhorfskönnun sem foreldraráð Gagn- fræðaskólans framkvæmdi og 86% nemenda og 62% foreldra tóku þátt í sýndi að að aðeins 7% nemendanna valdi hverfisskólakostinn, 90% vildu safnskóla en 3% voru óákveðnir. 70% þeirra foreldra sem svörðu vildu óbreytt ástand, 26% vildu hverfisskóla og 4% voru óákveðnir. Trúarþörf Mörgum finnst skammdegið með eindæmum erfiður árs- tími. Sálartetrið verður við- skotaillt og þá er ef til vill best að kaupa sólarlanda- ferð sem eigi er fullgreidd fyrr en á næstu öld. Svo eru aðrir sem skríða bara undir sæng og sofa, og trúa á vor- ið við dagrenningu, eða hvað? Lífsins besta happahjú himnesk vonin þrýtur. Þá er flestum þörf á trú þegar konan hrýtur. Umsjón: Geir A. Guðsteinsson.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.