Dagur - Tíminn Akureyri - 03.05.1997, Blaðsíða 5
?DcTgur-<3Immnt
Laugardagur 3. maí 1997 -17
„Ég þarf ekki að lýsa því hvað mér fannst þessi mynd skemmtilegri en margar sem áður hafa birst af landsliðs-
mönnum; alvörugefnum karlmönnum í einkennisbúningum að fara að verja heiður íslands, með stjarfa hönd á
pung..., sagði Sigurður Svavarsson þegar hann fjallaði um tegundina karlmann í nútímasamfélagi."
Alls konar karlar
Nú þurfa fram-
sœknir og jafnrétt-
issinnaðir karlar
ekki lengur að
kaupa allan félags-
málapakkann;
ganga á heilsu-
skóm, borða lífrœnt
rœktað grœnmeti,
kjósa Alþýðubanda-
lagið...
Karlafræði eru óþekkt á fs-
landi og það hlýtur að
haldast í hendur við litla
eða enga þörf eða hvað?
„Það fylgja því vissulega for-
réttindi að vera karlkyns,"
sagði Sigurður Svavarsson í
gær á ráðstefnunni Karlar
krunka sem haldin var í Borg-
arleikhúsinu á vegum
Sólstöðuhóps í samvinnu við
karlanefnd jafnréttisráðs. f er-
indi sínu ræddi Sigurður um
tegundina karlmann sem sam-
kvæmt honum er af náttúrunn-
ar hendi það fjölskrúðug að erf-
itt er að skilgreina og flokka, og
sem betur fer.
„Forréttindi hvítra karla
hafa verið að vera mælikvarði
fyrir aðra. En þessi forréttindi
hafa líka falið í sér ákveðna
neikvæðni sem hefur orðið æ
meira áberandi í hugafarsbylt-
ingu síðustu ára. Karlmenn
hafa verið gefin stærð, heim-
spekingar og kenningasmiðir
fyrri tírna einblíndu á kvenleik-
ann sem var illtúlkanlegri og
meira spennandi. Karlar voru
aðeins það sem konur voru ekki
en samt sem áður þessi mæli-
kvarði sem allt miðaðist við.
Þegar l'arið var síðan að fjalla
um hið karllega norm var fyrst
hægt að fjalla um karlmenn
sem cilvöru viðfangsefni eða
vandamál. I rannsóknum fem-
inista var staða kvenna vita-
skuld miðpunkturinn og þegar
kynhlutverkum var lýst komu
fyrirbæri eins og valdbreyting,
yfirgangur og kúgun í hlut okk-
ar karlanna." í þessu finnst Sig-
urði að feministar hafi gert þau
mistök að skilja ekki á milli
feðraveldis og karla en er með
þeim orðum ekki að álasa
kvennahreyfingunni. „Konum
ber engin skykia til að vernda
karla, en það vekur hins vegar
ævinlega furðu mína í hve litlu
mæli karlar andmæltu þessari
alhæfingu."
Engin ein fyrirmynd
Feministum í dag myndi fráleitt
detta í hug að spýta út úr sér
orðinu karlmenn og þar á eftir
kúgun og vald, enda þótt enn
eimi vel eftir af þeirri mynd
feministans. Karlmenn eru líka
að átta sig á þessu og komum
við þá að megin niðurstöðu Sig-
urðar, nefnilega þeirri að karl-
menn eru fráleitt einsleitur
hópur þótt þeir hafi ákveðin líf-
fræðileg samkenni. „Ef við lít-
um í kringum okkur sjáum við
að líffræðilegu samkennin eru
afar íjölskrúðug. Meira að segja
sjálft karlmennskutáknið hleyp-
ur samkvæmt Karlafræðaran-
um á 44 sentimetra bili, frá 2
upp í 46. En á þessu sviði líf-
fræðinnar og læknisfræðinnar
eru rannsóknir á körlum
skammt á veg komnar. Sérfræð-
ingar í kvensjúkdómum eru
íjölmargir á íslandi en hefur
einhver heyrt um karlsjúk-
dómafræðing?" Rannsóknir á
auka y eða x litningum hjá
körlum hafa samkvæmt Sigurði
einungis sýnt svart á hvítu hvað
viðteknar og liefðarhelgaðar
hugmyndir um hvað sé karllegt
og hvað kvenlegt hafa mikið
vald yfir hugsunarhætti okkar.
„Karlahlutverkin eiga sér
margar birtingarmyndir og
karlar eru langt því frá sam-
mála um skilgreiningar á kyn-
hlutverkum. Þess vegna eru
árekstrar á milli karla ekki til-
viljunum háðir, heldur ríkir
klárt stigveldi milli ólíkra birt-
ingarforma karlmennskunnar
og neðstir í stigveldinu eru þeir
sem ekki njóta viðurkenningar
sem karlmenn, hommar."
„Mjúkir menn eru engin nýj-
ung.“ En sá mjúki var meingall-
aður. „Hann var stefnulaus,
gerði litlar kröfur og dró engin
mörk og þannig fólk verður ein-
faldlega þreytandi. Nú þurfa
framsæknir og jafnréttissinnað-
ir karlar ekki lengur að kaupa
allan félagsmálapakkann;
ganga á heilsuskóm, borða líf-
rænt ræktað grænmeti, kjósa
Alþýðubandalagið og þar fram
eftir götum til að sýna hvað í
þeim býr.“ -mar
Leikfélag
Sauöárkróks
sýnir í Bifröst
Grænu
lyftuna
eftir Avery Hopwood
í nýrri þýðingu Þórunnar Magneu
Leikstjóri: Þórunn Magnea
4. sýning
fimmtud. 1. maí kl. 20.30
Uppselt.
5. sýning
mánud. 5. maí kl. 20.30
Lokasýning á Pétri Gaut
3.maí kl. 15.00
Miðapantanir í síma
453 6733 milli kl. 17.30
og 19.30 sýningardagana
Leikfélag
Sauðárkróks
Randcrs
Danmörku
Alesund
Xoi’PfiUi
Vasterás
Sví|l|órt
Xarsaaq
GraMiland
Geslbær á
Vinabæjarmóti
Vinabæjamót á Akureyri
23.-27. júní 1997
Sögusfning
Á vinabæjanióli scm haidió verður á Akur-
eyri 23.-27. júní nk. verður þess niinnsl að
50 ár eru liðin síðan vlnabæjasainstarf
þetta bófsl meðal vinabæja Akureyrar á
Norðuriönduni.
í tilefni afmælisársins verður m.a. efnt lil
sögusýningar meðan á vinabæjamótinu stend-
ur.
Undirbúningsnefnd mótsins leilar hér með til
þeirra mörgu bæjarbúa á Akurcyri sem hafa
verið á þessum mótum bæði á Ákureyri og er-
lendis, um að lána nefndinni Ijósmyndir, lil-
skyggnur, videomyndir og minjagripi tengda
mótum sem þeir hal'a sótt.
Einnig er leitað til þeirra sem hafa haft önnur
samskipti við vinabæina, einn eða fieiri, um
siimu fyrirgreiðslu. Er hér áttvið einstaklinga,
kóra, íþróttahópa, hljómsveitir. listamenn o.fl.
Móttöku á myndum og munum annast iler-
mann Sigtryggsson, bæjarskrifstofunni Geisla-
gölu 9, sími 462 1000 og 896 5315 og gefur
hann einnig nánari upplýsingar um sýninguna.
lindirbiiniiigsneliid.
ÞJÓDLEIKHÚSIÐ
Stóra sviðið kl. 20.00
FIÐLARINN Á ÞAKINU
eftir Boch/Stein/Harnick
6. sýn. í kvöld laugard. 3. maí. Uppselt.
7. sýn. á morgun sunnud. 4. maí. Uppselt.
8. sýn. fimmtud. 8. maí. Uppselt.
9. sýn. laugard. 10. maí. Uppselt.
10. sýn, föstud. 16. maí. Uppselt.
11. sýn. mánud. 19. maí. (annar í hvílasunnu) Uppselt.
12. sýn. föstud. 30. maí. Uppselt.
13. sýn. laugard. 31. maí. Uppselt.
KÖTTUR Á HEITU BLIKKÞAKI
eftir Tennessee Wiliams
Miðvikd. 7. maí. Sunnud. 11. maí. Fimmtud. 15. maí.
VILLIÖNDIN eftir Henrik Ibsen
Föstud. 9. maí, næst síðasta sýning.
Miðvikud. 14. maí, síðasta sýning.
LITLI KLÁUS OG
STÓRI KLÁUS
eftir H.C. Andersen
Á morgun sunnud. 4. maí kl. 14.00.
Næstsíðasta sýning.
Sunnud. 11. maí kl. 14.00. Síðasta sýning.
Tungskinseyjuhópurinn
í samvinnu við Þjóðleikhúsið
Óperan TUNGLSKINSEYJAN
eftir Atla Heimi Sveinsson
Frumsýning mið. 21.5 ■ 2. sýn. fös. 23. maí
- 3. sýn. lau. 24. maí.
Smíðaverkstæðið kl. 20.30
LEITT HÚN SKYLDI
VERA SKÆKJA
eftir John Ford
Aukas. Laugard. 3. maí kl. 15.00. Uppselt.
Allra síðasta sýning
Athygli er vakin á að sýningin
er ekki við hæfi barna.
Ekki er hægt að hleypa gestum inn
í salinn eftir að sýning hefst.
Litla sviðið kl. 20.30
LISTAVERKIÐ eftir Yazmina Reza
i kvöld 3 maí. Uppselt. Sunnud. 4. maí. Uppselt
Föslud. 9. maí, Uppselt. Laugard. 10. mai. Uppselt
Föstud. 16. maí. Uppselt. Mánud. 19. maí. Uppselt
Sunnud. 25. mal. Laus sæti.
LISTAKLÚBBUR
LEIKHÚSKJALLARANS
mánud. 5. maí
TRÚBADÚRAKVÖLD i KJALLARANUM.
KK OG BUBBI - Eins og þeir gerast bestir.
Húsið opnað kl. 20.30 - Tónleikarnir hefjast
kl. 21.00 - Miðasala við inngang, verð fyrir
almenna gesti kr. 1.000,-
Miðasalan er opin mánudaga og
þriðjudaga kl. 13-18, frá miðvikudegi
til sunnudags kl. 13-20 og til 20.30
þegar sýningar eru á þeim tíma.
Einnig er tekið á móti
símapöntunum frá kl. 10 virka daga.
Vefarinn inikli
frá Kasínír
liikml i’ílir -Ulik^u ÍlalMórs l.-j\tit>*
Sýningar:
Föstudaginn
2. maí kl. 20.30.
Föstudaginn
9. maí kl. 20.30.
Laugardaginn
10. maí kl. 20.30.
Það ætla allir að sjá
Vefarannl
Leikstjórn: Halldór E. Laxness
Sýningin er ekki við hæfi barna
Ekki er hægt að hleypa
gestum inn í salinn eftir
að sýningin hefst.
Sýnt er á Renniverk-
stæðinu, Strandgötu 49.
Miðasalan er opin alla
virka daga nema mánudaga
frá kl. 13-17.
Sími í miðasölu er
462 1400.
- besti tfmi dagsins!