Dagur - Tíminn Akureyri - 03.05.1997, Blaðsíða 14
26 - Laugardagur 3. maí 1997
IDagur-'ðlmrám
Fékk rússneska ólympíuskó
Sölvi Fannar
Jóhannsson er
þjálfari í World
Class (m.a. einka-
þjálfari Gauja litla),
lifir og hrœrist í
heimi jogginggalla,
íþróttafatnaðar og
vöðvabola ogfer út
að skemmta sér í
hlaupapegsu „sem
andar veV'...
„Þetta eru rússneskir ólympískir
lyftingaskór og menn þurfa að
vinna sér þá inn með því að ná
einhverjum áfanga í lyftingum úti í
Litháen." Og það var líka ekkert
smáræði sem Sölvi lagði á sig fyrir
skóna: „Ég afrekaði það á einum
degi að hlaupa 14 kílómetra, lyfta
250 kg þrisvar í réttstöðulyftu, 180
kg átta sinnum í hnébeygju og 150
kg 5 sinnum í bekkpressu."
ISLANDS
MEISTARA
MÓTÍ
KRA FT
jDagui-CEtmmn
- bcsti timi dagsins!
I KA-HEIMILmU
Á AKUREYRÍÍ í DAG
LAUGARDAGINN
3. MAÍ KL. 13
ALLIR BESTU KRAFTL YFTINGAMENN
LANDSINS TAKA ÞÁTT
DACSKRÁIN HEFST KL. 13nMEÐ ÞVÍ AÐ
ÓSKAR PÉTURSSON OG Ö«N VIÐAR
BIRGISSON SYNGJA ÞJÓÐSÖNGINN
KYNNIR MÓTSINS ER ARTHÚR BOGASON
ERLENDIR ÞÁTTTAKENDUR
TEKUR AUÐUNN TONNIÐ? NÆR BENNI AD BÆTÁ ÍSIANDSMI TIN ENN TREKAR7
©
sMIÍÐASt^
á&feart'
Hafnarstæti 94 - Sfmi 462 4840
BUNAÐAR
BANKINN
-traustur banki
(2Dagur-'©mtmn
- bcsti tími dagsins!
í Utháen
Sölvi heldur skiljanlega
mest upp á fatnað sem
tengist áhugamáli hans og
vinnu en þegar hann var búinn
að klæða pumpaðan líkamann í
æfingabúninginn fyrir ljós-
myndara vöktu rauðir og hvítir
fornfálegir leðurskórnir, hand-
gerðir með hælinn negldan á
sólann, óneitanlega mesta at-
hygli. í ljós kom að þarna voru
á ferð staðlaðir rússneskir
ólympíuskór sem þeir einir fá
er ná ákveðnum áfanga í lyft-
ingum - og þeim áfanga náði
Sölvi á einum degi í Litháen!
Hann dvaldi reyndar mun leng-
ur í þessu Eystrasaltslandi. Fór
þangað upp-
haflega til að
þjálfa Hjalta
Úrsus fyrir
keppnina
Sterkasti mað-
ur jarðarinnar.
Mót sem um
35.000 manns
ásamt nánast
allri ríkisstjórn
Litháa, íjölda
ríkisbubba og
braskara
mætti á. „Þar
kynntist maður
mörgum af
þessum mönn-
um sem eru í
alls kyns við- Sölvi handleikur lóðin.
skiptum. Eitt
af því efnilegasta sem ég komst
í var vefnaðarvara og ef ég
hefði haft eitthvað kapítal hefð-
um við verið mjög íljótir að
fímmfalda það á frekar stuttum
tíma.“ Sölvi og enskur vinur
hans veðjuðu hins vegar á
málmviðskipti og versluðu aðal-
lega með kopar. Sölvi fann selj-
endur í Litháen en Englending-
urinn kaupendur í Englandi.
Málmabraskið hélt honum
þannig á floti ijárhagslega í
tæpt ár í Litháen. „En um leið
og maður fer að græða pening
þarna þá koma „einhverjir" að-
ilar sem vilja fá hluta af tert-
unni, þ.e. mafían. Ef við hefð-
um haldið áfram í þessu og ekki
borgað það sem þeir settu upp
þá hefði bara meirihlutinn af
sendingunum horfíð. Það voru
allavega 5 manns sem ég
kynntist úti sem hurfu meðan
ég var þarna."
Náttúruvænn maður
Æfingagallar eru heimafatnað-
ur margra en þegar Sölvi tekur
sig til fyrir vinnudaginn grípur
hann þægilegasta jogginggall-
ann í skápnum, helst Adidas.
„Ég vel ekki merki eftir
einhverjum tískustraumum
heldur reyni að ganga í fötum
sem mér finnast þægileg og er
eingöngu í bómullargöllum.
Maður færi að lykta eftir 1-2
daga í gervi-
efnunum.
Bómullin and-
ar mikið betur.
Ég er mjög
náttúruvænn
og reyni að
vera í góðum
tengslum við
náttúruna. “
Að óreyndu
hefði mátt ætla
að maður sem
vinnur á
heilsuræktar-
stöð þyrfti að
þvo eina vél á
dag af svita-
mettuðum föt-
um en þökk sé
bómullinni og
12 milljóna króna loftræsting-
unni í World Class sem Sölvi
segir að sé stundum ofvirk
svitnar hann fremur lítið.
Nema þegar hann er sjálfur
að æfa - og úti að dansa. Þá
sjaldan Sölvi fer út að skemmta
þá er það til að dansa. Um síð-
ustu helgi hélt hann upp á af-
mælið sitt með því að dansa
„eins og vitleysingur" á Astró,
klæddur hlaupapeysu „sem
andar vel“ og svörtum þröngum
buxum úr teygjanlegu efni
„sem hleypa vel frá sér.“ Þar
dansaði hann við opna hurð
„annars myndi ég vera við það
að kafna úr reyk eða drepast úr
ofþornun því ég svitna óhugn-
anlega í dansinum." lóa
Það var Jón Páll sjálfur sem átti og gaf Sölva þennan jakka eftir að Sölvi
hafði látið einhverjar athugasemdir falla um hve flottur hann væri. Jóni
Páii áskotnaðist jakkinn frá styrktaraðila í Svíþjóð og mun hann vera sá
eini sem til er á landinu.