Dagur - Tíminn Akureyri - 03.05.1997, Blaðsíða 18

Dagur - Tíminn Akureyri - 03.05.1997, Blaðsíða 18
30 - Laugardagur 3. maí 1997 JlagiuÆírmrm SKÁK Guöfríður Lilja Grétarsdóttir skrifar Idag hefst 6 skáka einvígi milli besta skákmanns heims og tölvunnar „Deep Blue“, andstæðings sem Kasp- arov hefur nefnt „Skrímslið". Eins og kunnugt er fór fram einvígi milli þessara tveggja fyrir rúmlega ári síðan. Þá vakti það mikla athygli og spennu, jafnvel óhug, þegar tölvan varð fyrri til að sigra skák í einvíg- inu. Margir stóðu á öndinni yfir því hvort nú væri komið að því að sköpunar- gáfa mannshug- ans léti í minni pok- ann fyrir sínu eigin vélræna af- sprengi. Svo varð þó ekki í það skiptið: Ka- sparov herti upp hugann sigraði 3 skákir og gerði 2 jafn- tefli, og vann þannig einvígið með 2 vinninga mun. Hvað ger- ist að þessu sinni? Þeir sem kaupa sér glænýja tölvu komast fljótt að því að hún er orðin úr- elt eftir hálft ár, jafnvel nokkra mánuði, svo ógnar hratt eiga breytingar sér stað í tækni- heiminum nú á dögum. Það þarf því engan að undra að „Deep Blue“, besta skáktölva heims, hefur liklega bætt sig meira á einu ári heldur en okk- ur vesælum mannsbörnum er fært. „í fyrra var Deep Blue að- eins lítið barn,“ er haft eftir einum af mörgum feðrum tölvumeistarans, „síðan þá hef- ur hún verið í skákskóla". Engu til sparað Barnið var ekki sent í skákskóla af verri endanum heldur þann allra dýrasta og besta í heimi. IBM hefur eytt 20 mi- ljónum dollara á síðastliðnum tólf árum í að þróa tölvuna í þeirri von að hún geti á endanum unnið heims- meistarann í skák. Hópur fremstu tölvusérfræðinga og vísindamanna hefur unnið að verkefninu, og auk þess hafa verið kallaðir til stórmeistar- arnir Joel Benjamin og Miguel lllescas sem sérstakir þjálfarar og aðstoðarmenn. Til að gera Kasparov enn erfiðara fyrir hefur skákum tölvunnar nær algjörlega verið haldið leyndum. í venjulegum einvígum er mikilvægt að geta gaumgæfilega skoðað skákir andstæðingsins og finna þannig helstu veikleika hans. „Deep Blue“ hefur náttúrulega verið mötuð á milljón mismunandi skákum, og þekkir skákir Ka- sparovs út og inn, ef svo má að orði komast. Kasparov hefur hins vegar engar haldbærar skákir sem hin betrumbætta „Deep Blue“ hefur teflt, og verður því að byggja undirbún- ing sinn á hugmyndum um al- menna veikleika tölva í stað þess að ráðast á þá sem eru hugsanlega „Deep Blue“ eiginlegir. Milljarður á sek- úndu Svo mikið er víst að „Deep Blue“ hefur lært heilmikið í skákskólan- um á árinu, og llestir búast við jöfnu og spenn- andi einvígi. Betrumbætta tölvan hefur nú þegar sigrað mömmu gömlu, „Deep Blue“ frá því í fyrra. í 16. leik lék nýja tölvan leik sem hefði virst bestu skákmeisturum vafasam- ur. 18 leikjum síðar hafði sú gamla hins vegar gellst upp. Barnið var ekki sent í skákskóla af verri endanum heldur þann allra dýrasta og hesta í heimi. Flestir eru sammála um að það sé aðeins tímaspursmál hvenær tölva sigri heimsmeistara mannanna í skák, og ef liún geri það ekki nú þá geri hún það alveg örugglega innan ein- hverra ára, eða mn það leyti sem hún getur reiknað út mill- jarð mismunandi skákstöður á sekúndu. Nei, þetta er ekki mis- ritun, hér er talið í miljörðum á einni sekúndu. Eins og er getur „Deep Blue“ reiknað út um 200 miljón stöður á sekúndu. Ýms- um finnst það nú líklega þokka- lega af sér vikið, jafnvel meira en nóg, ekki satt? Undur mannshugans Hvaða þýðingu hefur það fyrir skáklistina ef heimsmeistarinn tapar? Sumir sjá það án efa sem hálfgert áfall fyrir manns- andann, en þegar betur er að gáð þarf svo alls ekki að vera. Ýmsir hafa til dæmis bent á að það sé villandi að lýsa einvíginu sem einvígi milli manns og tölvu. Kasparov noti sjálfur tölvu meira en nokkur annar sem gagna- banka og að- stoðartæki, og „Deep Blue“ hefði aldrei komist langt án sérfræðiþekk- ingu mennskra skákmeistara. Það sem á sér þarna stað er því að mörgu leyti samvinna manns og tölvu yfir skákborðinu, en ekki sam- keppni. Það segir líka sitt um undur skáklistarinnar, og ekki síður um undur mannshugans - sem vísindamenn vita í raun enn svo sáralítið um og sem við kunnum jafnvel ekki almenni- lega að nota - aó þrátt fyrir stjarnfræðilega útreikninga, óbrigðult minni og gífurlega þróaða „skákkennslu" og þjálf- un, skuli tölvan enn sem komið er ekki hafa sigrað. Tölvufræð- ingarnir sem standa að „Deep Blue“ bjuggust við sigri hennar miklu fyrr, og enn er ekki vitað hvernig fer. Við skulum riija upp einu skákina sem eldri gerðin af „Deep Blue“ vann gegn Ka- sparov í fyrra, og bíða spennt eftir úrslilum í einvíginu sem nú fer í hönd. Hver veit nema við getum sýnt fleiri slíkar vinn- ingsskákir gegn heimsmeistar- anuin í næstu viku? Hvítt: Deep Blue Svart: G. Kasparov Sikileyjarvörn 1. e4 c5 2. c3 d5 3. exd5 Dxd5 4. d4 Rf6 5. Rf3 Bg4 6. Bc2 c6 7. h3 Bh5 8. 0-0 Rc6 9. Bc3 cxd4 10. cxd4 Bb4 11. a3 Ba5 12. Rc3 Dd6 13. Rb5 De7 14. Re5 Bxe2 15. Dxe2 0-0 16. Hacl Hac8 17. Bg5 Bb6 18. Bxf6 gxf6 19. Rc4 Hfd8 20. Rxb6 axb6 21. Hfdl f5 22. De3 Df6 23. d5 Hxd5 24. Hxd5 exd5 25. b3 Kh8 26. Dxb6 Hg8 27. Dc5 d4 28. Rd6 f4 29. Rxb7 Re5 30. Dd5 f3 31. g3 Rd3 32. Hc7 He8 33. Rd6 Ilel+ 34. Kh2 Rxf2 35. Rxf7+ Kg7 36. Rg5+ Kh6 37. Hxh7+ 1-0 BRIDGE Evrópumót kvenna í tvímenningi Björn Þorláksson skrifar Evrópumót kvenna í tví- menningi verður haldið 15.-17. júní í bænum Montescatini á Ítalíu. Þær sem áhuga hafa á að taka þátt í mótinu eru beðnar að hafa samband við skrifstofu BSÍ sem fyrst. Sumarbúðir yngri spilara og heims- meistaramót í tví- menningi Sumarbúðir yngri spilara (f. 1972 og síðar) verða haldnar í Santa 'Sofia á Ítalíu dagana 14.22. júlí á vegum Alþjóða Bridgesambandsins. Helgina 19. og 20. júlí verður á sama stað haldið heimsmeistaramót í tvímenningi fyrir sama aldurs- hóp. Búðirnar verða opnar öll- um yngri spilurum og ekki síst þeim sem styttra eru komnir í spilinu. Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu BSÍ. Frá Bridgefélagi Hafnarfjarðar Hraðsveitakeppni félagsins er lokið með sigri sveitar Drafnar Guðmundsdóttur sem vann mótið örugglega, hlaut 1269 stig. Með henni spiluðu Ásgeir Ásbjörnsson, Hrólfur Hjaltason og Guðlaug Jónasdóttir. Sveit Halldórs Einarsson endaði í öðru sæti og „Óskýra sveitin" varð þriðja. Þriðjudagskvöld Bridgeskólans Þriðjudaginn 15. apríl mættu 16 pör til spilamennsku hjá Bridgeskólanum. Spilaður var Mitcholl tvímenningur og voru spilaðar 6 umferðir með 3 spil- um milli para. Meðalskor var 90. Efstu pör: NS 1 Henning Þorvaldsson- Vilhjáhnur Guðlaugsson 114 2. Ásdís Matthíasdóltir- Egill Thorarensen 108 3. Helga Guðfinnsdóttir- Erla Gísladóttir 100 AV 1. Guðmundur Georgsson- Kristbjörg Steingímsd. 101 2. Björg Þórarinsdóttir- Korlbún Jónsdóttir 98 2. Guðbjörg Sandholt- Ása María Valdimarsd .98 Þriðjudagsspilamennska Bridgeskólans er spilamennska ætluð nemum sem hafa tekið námskeið hjá Bridgeskólanum eða öðrum spilurum sem hafa enga reynslu af keppnisbridge. Spiluð eru 15-20 spil á kvöldi undir umsjón Sveins R. Eiríks- sonar. Frá Bridgefélagi Akureyrar Lokið er Halldórsmótinu sem er Board-a-Match keppni í minn- ingu Halldórs Helgasonar. Tíu sveitir tóku þátt og eftir spenn- andi lokaumferð sigraði sveit Helga Helgasonar og hlaut 223 stig. Spilarar í sveitinni voru auk foringjans Anton og Sigur- björn Haraldssynir, Stefán G. Stefánsson pg Stefán Ragnars- son. í öðru sæti með 217 stig var sveit Sveins Pálssonar en auk hans spiluðu í sveitinni Skúli Skúlason, Jónas Róberts- son, Bjarni Sveinbjörnsson og Sveinbjörn Jónsson. í þriðja sæti með 214 stig var síðan sveit Ragnlieiðar Haraldsdóttur en auk hennar spiluðu IJróð- mar Sigurbjörnsson, Pétur Guð- jónsson og Una Sveinsdóttir. Næstu sveitir voru sveit Strýtu með 182 stig og sveit Hauks Harðarsonar með 169 stig. í mars var einmennings- keppni BA sem jafnframt er firmakeppni. Þetta var þriggja kvölda keppni þar sem 2 bestu kvöldin giltu í einmenningnum. Einmenningsmeistari með um- talsverðum yfirburðum varð Gissur Jónasson með 225 stig. Röð efstu manna varð eftirfar- andi: 2. Pétur Guðjónsson 213 3. Sveinn Pálsson 204 4. Reynir Helgason 205 5. Stefán Sveinbjörnsson 203 6. Hjalti Bergmann 202 í firmakeppninni urðu úrslit sem hér segir: 1. Búnaðarbankinn 117 Gissur Jónasson 2. Kaupþing hf. 109 Sveinn Pálsson 2-3. Iiyrnan hf. 109 Pétur Guðjónsson 4.-5. Sparisj. Árskógsstr. 108 Örn Einarsson 4.5. Siemens-búðin 108 Gissur Jónasson 6. Fatahreinsunin lif. 106 Reynir Helgason 7. Gullsmiðir Sigtryggur og Pétur 105 Stefán Svein- björnsson Nú stendur yfir Alfreðsmótið sem er síðasta mót vetrarins og verður aðalfundur BA haldinn 13. maí og hefst sumarbrids 20. maí. Að venju verður spilað í Hamri á þriðjudögum kl. 19.30 í allt sumar en hlé verður gert á sunnudagsbrids el'tir sunnudag- inn 4. maí. Topp-16 einmenn- ingur þeirra sem flest bronsstig hlutu á starfsárinu fer fram föstudagskvöldið 9. maí.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.