Dagur - Tíminn Akureyri - 16.05.1997, Page 5
Ptgur-®mmt«
Föstudagur 16. maí 1997 - 5
F R E T T I R
Akureyri
Spurningar hafa
vaknað um eðli
efnis sem Roy
Shannon hefur
haft með sér í
fangeisið.
Mynd: GS
Lögbrot á bak
við lás og slá?
Roy Shannon virðist uppvís að lög-
broti innan fangelsisveggjanna á
Akureyri með því að hafa þar les-
efni, þar sem stúlkubörn eru þátttakend-
ur í kynlífsathöfnum. Samkvæmt lögum
frá 1. janúar 1997 er refsivert að eiga
efni sem inniheldur barnaklám.
í fyrradag sendi Roy út tilkynningar til
fjölmiðla þar sem hann óskaði eftir að fá
alla urnfjöllun um sig senda frá því að
mál hans kom upp. Vegna mistaka sendi
hann einum fjölmiðlanna tölvudisk, sem
reyndist með vafasömu efni. Roy hélt að
diskurinn væri auður.
Dagur-Tíminn hefur kynnt sér innihald
disksins og telur engum vafa undirorpið
að um barnaklám sé að ræða. Spurningar
vakna um tilganginn með refsingu al-
mennt og fangelsisafplánun þegar dæmd-
ur kynferðisafbrotamaður hefur í fórum
sínum gögn, sem í ljósi forsögunnar,
draga varla úr áhuga hans á kynferðislegu sam-
neyti við börn.
Roy afplánar nú dóm sinn á Akureyri og fer
Ólafur Ásgeirsson með ábyrgð fangelsismála þar.
„Hvað er barnaklám?“ sagði Ólafur í samtali við
Dag-Tímann í gær. „Við vorum búnir í rannsókn á
hans máli að fara yflr alla diska og lögðum í það
margra vikna vinnu. Við tókum út allt það sem er
klám að okkar mati og gerðum upp-
tækt. Fyrir það er hann dæmdur meðal
annars. Ég hef sjálfur séð þennan um-
rædda disk og við mátum hann ekki
sem barnaklám.“
Ekki barnaklám?
Hvernig skyldi það metið og af hverjum
hvort farið sé yfir strikið og hvenær
ekki? Á diskinum er sannarlega efni
þar sem 10-11 ára gamlar stúlkur eru í
aðalhlutverki í kynlífsleikjum með
bræðrum, vinum og stundum feðrum
sínum. Ólafur segir um ábyrgð rann-
sóknaraðila „Jájá, þetta er auðvitað
kolgrátt svæði en ég get ekki upplýst
hver tekur ákvörðun um þetta. Við er-
um að skoða þetta mál hér innanhúss
og kerfið hefur sínar leiðir. Ef rétt er að
Roy sé að brjóta lögin innan veggja
fangelsisins þá verður hann eflaust lög-
sóttur." Torvelt hefur reynst að skilgreina hugtak-
ið klám og svipaða sögu er að segja um barna-
klám. Barnaklám hefur e.t.v. frekar verið tengt
myndbirtingu en kynferðisleg áreitni gagnvart
barni er aftur betur skýrð: Þegar fullorðinn ein-
staklingur lætur barn taka þátt í kynferðislegum
verknaði sem samræmist hvorki tilfinningalífi né
líkamsþroska barnsins. BÞ
Roy
Shannon,
dæmdur
barnaníð-
ingur, er
með barna-
klámefni í
fangelsinu.
Aðstoðar-
yfirlögreglu-
þjónn:
Hvað er
barnaklám?
Selfoss
Björgunarsveit fælir fugla
Björgunarsveitarmenn á Selfossi eru ósáttir
við viðbrögð sumra bæjarbúa við æfingum
þeirra á Ölfusá en þeir síðarnefndu óttast
um varp fugla í nágrenninu.
Örn Óskarson, líffræðingur á Selfossi, segir í
Sunnlenska fréttablaðinu að álftirnar sem nú
Iiggja á eggjum sínum hafi fælst er björgunar-
sveitarmenn fóru út á ána á bát. Þær hafi snúið
aftur að einum og hálfum tíma liðnum og eggin
kólni mjög hratt. Hann telur líkur á að allt h'f sé
slokknað í þeim. í fyrra hafi álftirnar fælst þegar
umferð var um ána og ekki snúið aftur á hreiðrið.
Álftirnar hafa haft vetursetu í nágrenni árinnar í
vetur og hafa verpt í Fremri-Laugardælaeyju, á
miðri ánni, síðustu þrjú ár.
Björgunarsveitarmenn segja hinsvegar að þeir
þurfi tækifæri til að æfa sig en hvítasunnan er á
næsta leiti sem er mikil ferðahelgi og björgunar-
sveitarmenn verði að vera við öllu búnir. Félagar
úr björgunarsveitinni Tryggva voru að prufu-
keyra nýjan bátamótor sl. mánudagskvöld og
leyfi hafi fengist hjá lögreglunni til að fara út á
ána. Þess hafi verið gætt að fara ekki nálægt
varpinu. Páll Sigurþórsson, einn björgunarsveit-
armanna, segir að það sé best að sleppa þessum
æfingum alfarið fyrst viðbrögðin séu á þennan
veg. Bannað sé að fara á ána á sumrin því þá fæl-
ist fiskurinn í ánni og á vorin séu það fuglarnir.
-hþ./Selfossi
Stutt & laggott
Júpíter frá Þórshöfn aflahæstur
Sfldveiðin er nú komin í um 77 þúsund tonn af 233 þúsund
tonna sfldarkvóta og hefur alls 51 bátur fengið einhvern
afla. Mestu magni hefur verið landað á Seyðisfirði, alls um
12 þúsund tonnum og á Eskifirði, alls 8.600 tonn, en þar
lönduðu þrjú færeysk skip í gær, Nordborg, Charisma og
Serena liðlega 3.500 tonnum. Aflahæsta skipið er Júpíter ÞH
frá Þórshöfn með 3.838 tonn, ísleifur VE frá Vestmannaeyj-
um með 3.356 tonn, Víkingur AK frá Akranesi með 3.296
tonn, Kap VE frá Vestmannaeyjum með 2.880 tonn, Ilákon
ÞIl frá Reykjavík með 2.773 tonn, Börkur NK frá Neskaup-
stað með 2.687 tonn, Þórshamar GK frá Grindavík með
2.664 tonn og Oddeyrin EA frá Akureyri með 2.654 tonn. GG
Fegurðardrottningar fræðast
Stúlkurnar sem keppa í Fegurðarsamkeppni íslands sóttu
fræðslufund Krabbameinsfélagsins í fyrradag og fræddust
m.a. um áhrif reykinga á heilsu og útlit. Á laugardaginn
ætla stúlkurnar að vera í Kringlunni milli 13:00 og 15:00
og dreifa fræðslubæklingi Krabbameinsfélagsins sem heitir
„Berðu heilsu þína fyrir brjósti." Jafnframt ætla stúlkurnar
að auglýsa boli, sem verið er að selja til styrktar baráttunni
gegn brjóstakrabba, sem þær eru í á myndinni.
Samningur HÍ og Hafró
Undirritaður hefur verið samstarfssamningur milli Háskóla
íslands og Hafrannsóknastofnunar. Allgott samstarf hefur
verið milli þessara stofnana um árabil, og t.d. gegnir Jakob
Jakobsson, forstöðumaður Hafrannsóknastofnunar embætti
prófessors í fiskifræði við HÍ jafnhliða forstöðumannsstarfinu.
Með samningnun vilja stofnanirnar efla rannsóknir á auðhnd-
um sjávar og umhverfisþáttum þeim tengdum, efla menntun í
þeim greinum raunvísinda sem beinast að hvers kyns sjávar-
rannsóknum, auka þekkingu á viðfangsefnum íslensks sjávar-
útvegs, samnýta aðstöðu og færni hvorrar annarar. Stefnt er
að hlutastörfum sérfræðinga Hafrannsóknastofnunar við
kennslu og hlutastörfum kennara Háskólans við rannsóknir á
Hafrannsóknastofnun. í þessum þáttum felast m.a. sameigin-
legir hagsmunir HÍ og Hafrannsóknastofnunar. GG
Leirböö og ilmsturtur
Ný heilsu- og líkamsræktarstöð var opnuð á Hótel Esju í
gær, en hana rekur Jónína Benediktsdóttir. Stöðin, sem hef-
ur hlotið nafnið Planet Pulse, er ekki galopin öllum, heldur
verða menn að gerast félagar. Ýmsilegt er þarna í boði sem
allajafna er ekki að finna í líkamsræktarstöðvum hér á
landi, t.d. leirböð og ilmsturtur, en einnig eru þar gufuböð
og heitir pottar að ógleymdum æfingatækjunum.