Dagur - Tíminn Akureyri - 16.05.1997, Side 12
JO^ignr-íitratm
Veðrið
í dag
Föstudagur 16. maí 1997
V
uppþvottavélar
4-7 þvottakerfi • Sérstaklega
hljóðlátar • Sparnaðarrofi
Frábært verð - Frá kr. 49.755
KAUPLAND
KAUPANGI
srml 462 3565 ■ Fax 461 1829
Línuritin sýna íjögurra
daga veðurhorfur á
hverjum stað. Línan sýnir
hitastig, súluritið 12 tíma
úrkomu en vindáttir og
vindstig eru tilgreind fyr-
ir neðan.
Austan- og norð-
austanátt, víðast kaldi
eða stinningskaldi.
Rigning eða súld um
sunnanvert landið, en
þurrt að mestu um
landið norðanvert.
Hiti 5-12 stig.
HANDBOLTI • HM í Kumamoto
Geir Sveinsson, landsliðsfyrirliði, í baráttunni gegn Dönum, en sigur íslands í leikjunum tryggði íslenska landslið-
inu sæti á heimsmeistaramótinu. Mynd. bg
Hóttega bjartsýnn
segir Geir Sveinsson,
fyrirliði iandsliðsins.
Margir hafa gert því
skóna að það ráðist á
morgun, hvort íslenska
landsliðið vinni sig upp úr riðla-
keppninni á Heimsmeistara-
mótinu í Japan. Þá mætir liðið
heimamönnum Japönum, en
fyrirfram eru liðin tvö talin lík-
legust til að keppa um 2. sæti
A-riðilsins á eftir Júgóslövum.
„Það er ekkert ólíklegt að sú
verði raunin, en ef spá margra
rætist um að við náum öðru
sætinu í riðlinum þá yrði ég
nokkuð sáttur. Það er hins veg-
ar langur vegur að því. Þjálfar-
arnir hafa að undanförnu verið
að sanka að sér upplýsingum
um andstæðingana, en enn sem
komið er vitum við lítið um
mótherja okkar í keppninni,"
sagði Geir Sveinsson, fyrirliði
íslenska landsliðsins, þegar
slegið var á þráðinn til hans í
gær.
Tíu þúsund manns munu
fylgjast með viðureign heima-
manna gegn íslandi, sem hefst
að aflokinni setningarhátíðinni.
„Það er ekki hægt að bóka neitt
í þeim leik. Það hefur verið
mikið talað um það hér úti hvað
japanska liðið hefur bætt sig
mikið upp á síðkastið og árang-
ur þeirra í æflngaleikjum fyrir
mótið. Að því sem manni skilst,
þá eru þeir nokkuð sannfærðir
um að vinna okkur á laugar-
daginn og ég er því hóflega
bjartsýnn," sagði landsliðsfyrir-
liðinn.
Annar leikur fslands er gegn
Alsír á sunnudaginn og sagðist
Geir vera nokkuð órór, vegna
hans. „Ég sá Alsír í leik í des-
ember og veit að þeir geta verið
hættulegir. Liðið er þekkt fyrir
að byrja vel á öllum mótum og
þeir leika sinn fyrsta leik gegn
okkur á sunnudaginn. Þeir spila
varnarleik sem hentar okkur
illa og fyrir mér verður sá leik-
ur mjög hættulegur," sagði Geir.
Hinar þjóðirnar í A-riðlinum
eru Júgóslavía, Sádí-Arabía og
Litháen, en síðasttalda þjóðin
mátti þola tap í æfingaleik gegn
Norðmönnum í gær, 24:21.
Geir sagðist búast við því að
lið íslands fyrir opnunarleikinn
yrði ekki tilkynnt fyrr en á
morgun, en fyrirliðinn lét vel af
öllum aðbúnaði og sagði að
andrúmsloftið væri óneitanlega
með nokkrum öðrum hætti en á
síðustu heimsmeistarakeppni,
sem fram fór hér á landi fyrir
tveimur árum.
„Andrúmsloftið var reyndar
ágætt fyrir keppnina heima, en
helsti munurinn er sá að við
finnum ekki fyrir sama þrýst-
ingi og þegar við vorum á
heimavelli í síðustu keppni. Við
erum langt í burtu og sjáum
ekki fjölmiðla og að því leytinu
er þessi keppni allt öðru vísi en
sú síðasta."
LeóÖm
áfram
hjáKA
Leó
Örn
Þor-
leifsson
skrifaði í
gær undir
þriggja ára
samning við
handknatt-
leiksdeild
KA og er þetta einn lengsti leik-
mannasamningur sem gerður
hefur verið hjá félaginu á und-
anförnum árum.
„Þetta var erfið ákvörðun,
mér stóð til boða og ég hafði
hug á að fara í Háskólann í
Reykjavík, en ákvað sfðan að
fara í svipað nám í Háskólanum
hér á Akureyri. Það réði miklu
og ætli KA-blóðið hafi ekki ver-
ið það ríkjandi í mér. Ég tók þá
ákvörðun í vor að hvort sem ég
færi suður eða yrði hérna
áfram, að semja til lengri tíma.
Ég vil ekki þurfa að standa í
samningum á hverju ári,“ sagði
Leó Örn.
„Þrátt fyrir að við höfum
misst leikmenn að undanförnu,
hef ég trú á því að við eigum
eftir að standa okkur. Við eigum
eftir að fá sterka leikmenn og
svo eigum við mjög góðan efni-
við,“ sagði Leó, sem þegar hef-
ur verið orðaður sem eftirmað-
ur Erlings Kristjánssonar, um
fyrirliðastöðu liðsins.
Formaður handknattleiks-
deildar ííA, Páll Alfreðsson,
sagðist mjög ánægður með
málalokin. „Leó Örn er gegn-
heill KA-maður, hann er uppal-
inn hjá félaginu og það hefði
verið mikill sjónvarsviptir að
honum.“
KNATTSPYRNA
Leikið á Akranesi i 2. umf.
Leiftursmenn fóru þess á leit
við Knattspyrnuráð ÍA að fé-
lögin hafi skipti á heimaleikjum
og að leikur liðanna sem fram
átti að fara í Ólafsfirði nk.
fimmtudag verði leikinn á Akra-
nesi. Skagamenn tóku beiðninni
vel og gengið var frá breyting-
unni hjá mótanefnd KSÍ í gær.
Beiðnin kemur til vegna þess að
völlurinn í Ólafsfirði er ekki til-
búinn eftir veturinn.
Leiftursmenn munu gera það
upp við sig á næstu dögum,
hvort þörf er að ræða við Fram-
ara um víxlun á heimaleikjum,
eh liðin eiga að mætast í 4. um-
ferðinni þann 29. þessa mánað-
ar. Enginn varavöllur er í Ólafs-
firði og því hafði norðlenska lið-
ið aðeins um tvennt að velja. Að
biðja um víxlun heimaleikj-
anna, eða færa þá yfir á malar-
völlinn á Dalvík.