Dagur - Tíminn Akureyri - 22.05.1997, Síða 2

Dagur - Tíminn Akureyri - 22.05.1997, Síða 2
14 - Fimmtudagur 22. maí 1997 Jtagur-®ímmn NEITENDALIFIÐ I LANDINU Viðskiptaferðamenn s Odýrustu flugfarseðlarnir til útlanda geta í raun- inni oft orðið þeir dýr- ustu þegar dæmið hefur verið reiknað til enda, samkvæmt út- reikningum Hagvangs, byggð- um á niðurstöðum könnunar meðal þeirra sem fara utan í viðskiptaferðir. Pótt Saga busi- ness Class fargjald til London eða Kaupmannahafnar sé t.d. kringum 60 þús. kr. dýrara heldur en Apex-fargjald geti í ótal tilvikum orðið ódýrara heldur en að Iáta vel launaðan vinnukraft með 15-17 þús. kr. dagpeninga bíða 2 daga erlend- is að erindum loknum til þess eins að uppfylla Apexskilyrðin. Fundarferð til London orðin litlu tímafrekari en til Blönduóss... Að mati ferðaþreyttra forretn- ingsmanna er þá ómetinn sá kostur að komast sem fyrst heim til sín aftur - jafnvel sam- dægurs. Enda þarf fundarferð til London nú ekki orðið að taka miklu lengri tima en t.d. til Blönduóss. Flugtímann geta menn þar á ofan notað til þess að borða og drekka, lesa blöðin í rólegheitum og jafnvel leggja lokahönd á ræðurnar sínar eða skýrslurnar áður en þeir lenda á áfangastað um eða upp úr hádegi. Aðeins fjórðungur þeirra sem fara utan í viðskiptaerindum með Flugleiðum ferðast á Saga Ciass. Myndir. S menn sér vel meðvitandi um ferðakostnað. Enda 280 manns farið utan á vegum Aiþingis í fyrra. Karl sagði t.d. á hreinu að það borgaði sig aldrei að láta aiþingismenn bíða í Lond- on eftir „ódýrara" fari. Á hinn bóginn taldi hann Hagvangs- menn heldur einsýna í úttekt sinni, þar sem þeir reikni bið- daga úti einskis nýta. Fvert á móti sagði hann sína reynslu að biðdagur í rólegheitum á hótel- herbergi gæti verið einkar nota- drjúgur til vinnu. Enda færu nú fæstir úr landi án farsíma og ferðatölvu. - HEI Aðeins fjórði hver á Saga Class í álitsgerð, sem Hagvangur hf. hefur unnið að beiðni Flugleiða, er reynt að meta hvernig hagkvæmast sé að ferðast í við- skiptaerindum, þ.e. á fundi, ráðstefnur, vörusýningar og opinber erindi af þessum og öðrum ástæð- um. Könnun Hagvangs leiddi m.a. í ljós að aðeins íjórðung- ur þeirra sem fara utan í við- skiptaerindum með Flugleiðum ferðast á Saga Class (aðeins 7% allra farþeg- anna). En þessi íjórðungur dvelur að jafnaði 2- 3 dögum skemur ytra heldur en hinir sem fljúga á Apex í sparn- aðarskyni. Flestir hinna síðar- nefndu teldu sig geta verið fljót- ari í förum, ef ekki kæmi til bið- in vegna „ódýra“ farmiðans. Að mati Hagvangs stafar hin mikla notkun á almennu farrými til viðskiptaferða fyrst og fremst af því að starfsmenn og vinnuveit- endur einblfni á fargjöld þegar þeir meta kostnaðinn af við- skiptaferðum. Bíða 180 ár eftir ódýrara fargjaldi En hver biðdagur er líka dýr. Almennar dagpeningagreiðslur ríkisstarfsmanna nema 15-17 þús. kr. á dag. Þar við bætist önnur eins eða jafnvel hærri upphæð í svokallaðan „fórnar- kostnað“, fyrst og fremst launa- kostnað manna meðan þeir bíða. Væri hægt að stytta biðtíma í viðskiptaferðum um 2 daga hverju sinni (40.000 daga sam- tals) gæti það þjóðar- hátt í 700 milljónir í dagpeninga- greiðslur, en alls nemur bið- kostnaðurinn um 1,6 millj- örðum að mati Hag- vangs. Ef helmingur sparað Islenskir viðskipta- búinu ferðalangar biða 40.000 daga d ari í útlöndum eft- ir „ódýrari“ far- miða milli landa, samkvœmt út- reikningum Hagvangs. þeirra sem nú fara í viðskiptaferðir á al- mennu farrými skipti yfir í Saga Class mundi það spara þjóðarbúinu yfir 550 milljónir, þrátt fyrir miklu „dýrari" far- miða, segja Hag- vangsmenn - sem taka skýrt fram að alls ekki sé hægt að fullyrða að hagkvæm- ara sé í öllum tilfell- um að fljúga á við- skiptafargjaldi. Það ráðist af áfangastað, nauðsynlegum bið- tíma og síðast en ekki síst launum viðkom- andi starfsmanns. Auk þessa mikla sparnaðar myndi fækkun biðdaga þýða minna álag á þá starfsmenn fyrirtækjanna sem heima sitja og þar með bætta þjónustu við viðskiptavini fyrir- tækjanna. Hraðferð 1 og 2 í staðinn... En ofmetur Ilagvangur kannski þátt sparnaðarins í fámenninu á Saga Class? Á fundi sem Fé- lag viðskiptafræðinga og hag- fræðinga hélt um efnið lýsti einn fremsti „fundaferðavíking- ur“ landsins, Jón Baldvin Hannibalsson, biturri reynslu af tíðum Saga Class ferðum sínum þau íjögur ár sem hann eyddi í samningaþófið um EES. „Ár- angurinn af því varð gífurlegur, en fórnarkostnaðurinn var líka mikill. Ég varð spilltasti stjórn- málamaður á íslandi á síðum DV og að áliti almennings. Business Saga Class gerir alla menn ærulausa", sagði Jón Baldvin, sem lagði til að Flug- leiðir breyttu um nafn á þessari þjónustu sinni. Til dæmis ein- faldlega í „Hraðferð" 1 og 2. Alþingi 280 sinnum utan í fyrra Karl Kristjánsson sagði að á sínum vinnustað, Alþingi, væru Er stjórnklefinn toppfarrými?

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.