Dagur - Tíminn Akureyri - 22.05.1997, Síða 3
Ílagur-©ímirat
Fimmtudagur 22. maí 1997 -15
LIFIÐ I LANDINU
Gullý Hanna
Ragnars-
dóttir var að
gefa út sinn
jjórða
geisladisk,
Söngurinn
til þín.
Heimþráin ágerist
Þegar dönsku blöð-
in jjalla um tónlist
Gullýjar Hönnu
Ragnarsdóttur er
oftast talað um að
í Danmörku hafi
vísnasöngkonan
lœrt að þekkja og
tjá söknuð. Hún
tekur undir þetta,
segir heimþrána
ágerast ef eitthvað
er, en hún hefur
búið í Danmörku í
tuttugu ár.
Gullý Hanna var að gefa út
sinn ijórða geisladisk en
á honum eru vísur frá ís-
landi, Noregi, Svíþjóð, Dan-
mörku og Finnlandi, sungnar á
dönsku og íslensku. „Tónlistin
er mér ákaflega mikils virði og
ég byrjaði að syngja mjög ung
og að láta mig dreyma um að
gefa eitthvað út.“
Gullý segir nýja diskinn,
„Sangen til dig“, hefðbundnari
vísnadisk en hina þrjá sem voru
poppaðri. Lögin eru flest eftir
Gullýju en ljóðin eiga Davíð
Stefánsson, Hugrún, Ingibjörg
Sigurðardóttir og Halfdan
Rasmussen o.fl. „Ég er líka með
nokkur lög sem eru ekki mín og
síðan á ég stundum textann en
þá sem ég á dönsku eins og í
„Hvis jeg kunne kalde dig til-
bage“.
Stoltir af mömmu
Guffý segir vísnasönginn mun
vinsæfli í Noregi og Svíþjóð en
Danmörku. „Það er alls staðar
fólk sem vill svona tónlist en
það er ekki hægt að segja að
hún njóti almennra vinsælda.
Ég hef fengið góðar móttökur
með þennan nýja disk, hef verið
spiluð töluvert á útvarpsstöðv-
unum og slíkt. - En þetta er
mikil vinna, markaðssetningin
tekur mikinn
tíma en ég er
líka í hálfs-
dagsstarfi við
íþróttaskólann
í Ollerup, er
þar að búa til
mat. Og hún
segir þetta
tvennt fara
ágætlega sam-
an. „Ég sest
bara niður með
gítarinn á ótrú-
legustu tímum
sólarhringsins
þegar ég er í
stuði til að búa
til tónlist, ég
hef líka hljóm-
borð sem ég notast við þegar ég
vil poppa þetta meira. Suma
daga geri ég mörg lög en stund-
um er ég líka alveg tóm.“
Gullý og maðurinn hennar,
Gísli Guðjónsson skipstjóri, eiga
tvo syni, 20 og 25 ára, hvernig
finnst ljölskyldunni vísnasöng-
urinn? „Strákunum finnst tón-
listin ágæt og þeir eru pínu
stoltir af mömmu og fylgjast vel
með. Þeir og maðurinn minn
bakka mig upp og styðja, þeim
er ekki sama ef illa gengur."
Gullý segir þennan stuðning
nauðsynlegan því þetta sé
hörkupúl. „Ég vel að halda
áfram en ekki að gefast upp.“
Að eldast með sínum
„Okkur líður vel í Danmörku en
við erum með heimþrá, maður-
inn minn og ég.“ En hér hefur
snjóa nýtekið upp segir blaða-
maður. „Já, og hér er sól og það
er allt grænt í garðinum hjá
mér og í blóma, ávaxtatrén eru
í fullum blóma og fuglarnir
syngja. En ég
verð .ið viður-
kenna að heim-
þráin er að
verða verri og
verri. Ég er að
verða gömul,
48 ára bráðum,
og við finnum
þetta bæði. Ætli
mann langi
ekki til að eld-
ast með ætt-
ingjum og vin-
um, að vera
með systkinum
og sínum nán-
ustu.“
Þau hjón
dreymir um að
eignast litla íbúð á Islandi til að
dvelja í nokkra mánuði á ári.
„Gísli er í þannig starfi að hann
getur alveg flakkað á milli og ég
get samið tónlist alls staðar, við
erum þannig heppnari en
margir aðrir en við myndum
líklega ekki flytja alfarið frá
Danmörku. Þá sæjum við strák-
ana okkar ekki alveg eins oft og
maður er nú að vona að maður
verði svo heppinn að fá barna-
börn og tengdadætur með tím-
anum.“
Kemur heimþráin í Ijós á
geisladiskinum?
„Já, það segir fólkið hérna.
Danirnir tala um núkinn sökn-
uð í lögunum og einhverja
svona drauma, jú það kemur
fram í textavalinu lfka sbr. titl-
ana „Kveðja til æskustöðvanna"
og „Á bernskuslóðum". Ég er
ekki viss um að ég myndi velja
þessa texta ef ég byggi heima á
íslandi."
Gullý stefnir á að koma í
stutta heimsókn til íslands í
haust og þá til að spila. í fyrra
kom hún á heimastöðvarnar og
lék fyrir gesti á Pollinum á Ak-
ureyri. „Það er ýmislegt á döf-
inni, ég er að fara að taka þátt í
sönglagakeppni á Langalandi
núna um helgina og að syngja
inn á safnplötu, fer svo í hljóð-
ver í næstu viku.“ -mar
Vísnasöngkonan og einn tónlistarmannanna sem kemur við sögu á nýja
geisladisknum hennar Gullýjar.
„Ætli mann
langi ekki til að
eldast með œtt-
ingjum og vin-
um, að vera með
systkinum
og sínum
nánustu.((