Dagur - Tíminn Akureyri - 22.05.1997, Page 5
;Œ)agur-®ímmrt
Fimmtudagur 22. maí 1997 -17
VIÐTAL DAGSINS
Poppariim tekur tfl hendimii
Þorleifur Kristinsson, víðþekktur sem bassaleikari Bubba Mortehns og fleiri, söðlaði um og rekur nú hótel á Eskifirði. „Leituðum að barnavænum stað
og duttum hér niður.“
etta kom þannig til að
Kristinn kunningi minn,
sonur Alla ríka, hringdi
og sagði mér að Færeyingurinn
Bergleif vildi selja Hótel Öskju.
Ég hafði áður verið á sveimi
hér fyrir austan og þá vorum
við hjónin að spá í að kaupa
Farfuglaheimilið á Reyðarfirði,
en leist ekki á við frekari athug-
un. En okkur fannst þetta líta
betur út hér á Eskifirði og eftir
að við höfðum kannað aðstæður
ákváðum við að slá til. Við tók-
um við rekstrinum þann 1.
mars sl., en sjálfur kom ég
hingað um áramót. Fór þá í
járnsmíðavinnu hjá Kristni,
svona rétt til að prufukeyra
sjálfan mig hér á staðnum en
einnig til þess að Eskfirðingar
sæju að poppari úr Reykjavík
gæti líka tekið til hendinni."
„Höfum
komið hingað í rjúpu“
Það er Þorleifur Guðjónsson,
velþekktur sem bassaleikari
Bubba Morthens, Kristjáns
Kristjánssonar og fleiri tónlist-
armanna, sem hefur orðið. Nú í
vetur tóku hann og María Rós
Valgeirsdóttir, eiginkona hans,
við rekstri Hótels Öskju á Eski-
firði. Hugur þeirra stefndi í
barnavænt umhverfi úti á landi.
Þau hjón eiga tvö börn, þau
Ylfu Rós, fimm ára, og Jóhann
Dag, átta ára.
„Við vorum lengi búin að
leita að barnavænum stað og
duttum niður á Eskifjörð. Hér
þekkti ég engan nema Kristin,
félaga minn Aðalsteinsson. Við
Bubbi Morthens höfum stund-
um komið til hans á haustin
þegar við förum í rjúpu,“ segir
Þorleifur.
Gamall
læknisbústaður
Hótel Askja er í húsi sem byggt
var árið 1905. Þar var lengi
læknisbústaður og sjúkrahús
Eskfirðinga, en síðustu áratugi
hefur þar verið starfrækt hótel
og greiðasala. Þorleifur og Mar-
ía hafa að undanförnu unnið að
endurbótum á húsinu - og að
koma því í þann búning sem
hæfir andblæ liðins tíma.
„Við höfum verið að fjarlægja
stálhúsgögn sem gerðu staðinn
mötuneytislegan. Hingað höfum
við fengið gömul húsgögn, með-
al annars mublur sem eitt sinn
voru á skrifstofu borgarstjórans
í Reykjavík," segir Þorleifur. Á
Ilótel Öskju eru alls sjö gisiher-
bergi og matsalur, sem tekur
alls 45 manns í sæti.
Nálgast poppið
á nýjum forsendum
Þorleifur segir að verulega
minna sé nú að gera hjá popp-
urum landsins, en var fyrir fá-
um árum. Tónleikar séu orðnir
fásóttari en var. Það ásamt öðru
hafi ýtt á sig að róa á nýjum
miðum, til að
mynda því að
fara í hótel-
rekstur austur
á Qörðum. Þó
hafi hann ekki
alveg slitið sig
frá poppinu, en
nálgist það nú
á nýjum for-
sendum, sem
áhugamál en
ekki sem slít-
andi atvinnu-
hark.
„Félagar
mínir hafa ver-
ið að hringja í
mig að undan-
förnu og verið
að spyrja mig hvort ég sé ekki
til í að skipuleggja einhverja
tónleika fyrir þá hér fyrir aust-
an. Ég hef al-
veg verið til í
það. Til að
mynda voru
Megas og Súkk-
at hér fyrir
austan fyrir
nokkru og fleiri
popparar eru
væntanlegir
austur á næst-
unni,“ segir
Þorleifur.
Fyrst og
síðast
vinnubúðir
Að sögn Þor-
leifs hafa við-
skipti á Hótel Öskju verið góð
að undanförnu. Þó ferða-
mannastraumur sumarsins sé
ekki komin af stað þá hafi haft
viðdvöl fólk sem er á ferðinni
starfa sinna vegna, til að
mynda í sambandi við útgerð
og fiskvinnslu.
„Auðvitað eru þessi kauptún
úti á landi fyrst og síðast vinnu-
búðir. Hér snýst allt um fisk og
nú eru allir Eskfirðinga spennt-
ir yfir því hvernig sfldarvertíðin
lukkist. En það hef ég fundið
þessa fáu mánuði sem við höf-
um verið hérna að hér býr gott
fólk. Fjölskyldunni líður vel
hérna og meðan svo er og
hótelreksturinn lukkast langar
okkur ekkert í bæinn aftur,“
segir Þorleifur Guðjónsson að
síðustu. -sbs.
„ Fjölskyldunni
líður vel og okkur
langar ekkert í
bceinn aftur, “
segir Þorleifur
Guðjónsson,
bassaleikari og nú
hótelhaldari d
Eskifirði.
Skagfírskar æviskrár
Magnús H. Gíslason
skrifar
Fyrir tveimur árum kom út
á vegum Sögufélags Skag-
firðinga fyrsta bindið af
nýjum flokki Skagfirska ævi-
skráa. Tók það yfir tímabilið
1910-1950. Nú er kornið út
annað bindið í þessum flokki.
Er þar að finna 112 þætti karla
og kvenna, sem búsettir voru í
Skagafirði og stofnuðu þar
heimili á umræddu tímabili en
eru önduð þegar þátturinn er
saminn. Höfundar þáttanna eru
22.
Gerð þáttanna er í föstu
formi, svo sem áður hefur ver-
ið. Fyrst er greint frá fæðingar-
degi og -ári og fæðingarstað.
Síðan dánardægri, ári og stað.
Þá eru nefndir foreldrar og síð-
an koma tilvitnanir í önnur
bindi æviskránna og aðrar
heimildir. Þá er greint frá upp-
vexti viðkomandi, skólagöngu,
dvalarstöðum og félagasmála-
störfum, ef um þau er að ræða.
Loks eru svo mannlýsingar, sem
yfirleitt eru ítarlegar, ágætlega
ritaðar að jafnaði og auka mjög
á gildi þáttanna. Fjallað er um
maka með sama hætti og loks
er greint frá börnum. í lok
hvers þáttar eru tilgreindar
þær heimildir, sem höfundur
hefur stuðst við. Hin nákvæma
umíjöllun gerir það að verkum
að þættirnir eru yfirleitt nokkuð
langir, allt upp í funm blaðsíður.
Myndir fylgja hverjum þætti, ef
til hefur náðst.
I bókarlok eru birtar skrár
um heimildir, bæði prentaðar
og óprentaðar, heimildamenn
og mannanöfn.
Hjalti Pálsson, skjalavörður,
hefur annast ritstjórn bókar-
imiar og samræmt þættina eftir
því, sem þörf hefur þótt á. Guð-
mundur Sigurður Jónsson, ætt-
fræðingur, fór yfir alla þættina,
bar þá saman við kirkjubækur
og gekk frá ættfærslum. Er allt
það ærið starf og seinunnið.
Flestir eru þættirnir vélritaðir
og tölvuteknir af þeim Maríu
Hjaltadóttur og Heiðrúnu Frið-
riksdóttur. Gísli Magnússon,
kennari, las eina próförk og
Anna Guðrún Hafsteinsdóttir
hjá Erfðafræðistofnun „reyndist
sem fyrr ómetanlegur liðsmað-
ur við erfið úrlausnarefni," eins
og segir í formála. Frágangur á
bókinni er allur hinn vandaðisti
og þeim til verðugs sóma, sem
að verkinu hafa staðið.
Skagfirskar æviskrár telja nú
orðið 12 bindi. Fer því þó íjarri
að botninum sé náð.