Dagur - Tíminn Akureyri - 27.05.1997, Blaðsíða 6
6 - Þriðjudagur 27. maí 1997
!®agur-'3ImTOr
FRÉTTASKÝRING
Fjör í faðmi náttúrunnar
Guðmundur R.
Heiðarsson
skrifar
Hvernig er hægt að bæta
og efla ferðaþjónustuna
á höfuðborgarsvæðinu?
Býður svæðið uppá eitthvað
sem ekki er að flnna í öðrum
löndum? Eru ekki allar vörur
og þjónusta á uppsprengdu
verði, þjónustulund íbúa ekki
uppá marga físka og er ekki
alltaf rok og rigning á þessu
annesi sem hýsir höfuðborg-
ina?
Sumir svara eflaust þessum
spurningum játandi og telja að
höfuðborgarsvæðið hafl ekkert
það að bjóða sem ekki er hægt
að flnna í öðrum löndum. Aðr-
ir eru þessu ekki sammáfa og
telja eðfifegt að stefna að því
að efla borgina og nágrenni
sem áhugaverðan áfangastað
erlendra sem innlendra ferða-
manna allt árið um kring. f
þeim hópi eru m.a. borgaryfir-
völd og hagsmunahópar í
ferðaþjónustu á höfuðborgar-
svæðinu.
Vaxtarbroddur
í það minnsta er stefnt að því
að fjölga ársverkum í ferða-
þjónustu um 4% á ári fram til
ársins 2002. Það þýðir að árs-
verkum mun fjölga úr því að
vera 1.740 í fyrra í 2.120 í byrj-
un næstu aldar. Á þessu tíma-
bili er einnig reiknað með því
að tekjur og arðsemi fyrirtækja
í ferðaþjónustu á höfuðborgar-
svæðinu muni aukast um 10% á
ári, eða úr 10,7 milljörðum
króna í 17,3 milljarða árið
2002. Þá á að auka Qölda gisti-
nátta um 10% á ári á veturna
og 6% árlega á háannatíma.
Þetta er m.a. sú framtíðar-
sýn sem birtist í stefnumótun
Reykjavíkurborgar í ferðaþjón-
ustu og kynnt var á blaða-
mannafundi sl. föstudag. Mikil
Með markvissri
stefnumótun er talið
að hægt verði að
samhæfa betur en
verið hefur þá krafta
sem hagsmuna hafa
að gæta í ferðaþjón-
ustunni.
vinna liggur að baki þessari
stefnumótun og lætur nærri að
vel á annað hundrað manns
hafi komið að því máli á einn
eða annan hátt. í byrjun sl. árs
var skipuð sérstök verkefnis-
stjórn í málið en í mars ári áður
hófst umræða innan ferðamála-
nefndar borgarinnar um nauð-
synina á því að marka sérstaka
stefnu fyrir ferðaþjónustuna í
borginni. í þessum efnum hefur
m.a. verið horft til þeirra
reynslu sem frændur vorir írar
hafa náð í því að markaðssetja
írland og Dublin.
Með markvissri stefnumótun
er talið að hægt verði að sam-
hæfa betur en verið hefur þá
krafta sem hagsmuna hafa að
gæta í ferðaþjónustunni. Hingað
til hefur helsti veikleiki hennar
falist í lítilli samstöðu. Það hefur
m.a. birst í ómarkvissri notkun
þeirra ijármuna sem lagðar
hafa verið í ýmsar kynningar og
þá einkum erlendis.
Uppbrettar ermar
„Þetta er ekki bara einhver
skýrsla sem á síðan að rykfalla
ofan í skúffu," segir Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir borgarstjóri.
Hún bendir á að í skýrslunni sé
að finna ábendingar um íjöl-
mörg verkefni sem þegar er
farið að vinna að og verða
væntanlega unnin. Borgarstjóri
leggur áherslu á að allt höfuð-
borgarsvæðið vinni saman að
þessu verkefni, enda um gagn-
kvæma hagsmuni að ræða hjá
nágrannasveitarfélögum að
styrkja ferðaþjónustuna og
marksetningu svæðisins. Þar
fyrir utan sé það ávinningur
allra landsmanna að ferðaþjón-
ustan sem atvinnugrein verði
efld sem mest.
Þegar er byrjað er að vinna
að ýmsum málaflokkum og m.a.
hafa leigubílstjórar verið á
námskeiðum til að gera þá betri
til að sinna erlendum farþeg-
um. Ætlunin er að efla þjón-
ustulund annarra starfsgreina
og auka færni þeirra sem vinna
í nábýli við erlenda ferðamenn.
Talið er að það skipti miklu
máli hvernig þeir hópar bera
sig að sem eru allajafna í nán-
ustu tengslum við ferðamenn.
Sóknarfæri
í framtíðarsýninni er stefnt að
því að árið 2002 verði Reykja-
vík þekkt sem hreinasta höfuð-
borg Evrópu með stórbrotna
náttúru sem býður uppá mikla
möguleika á útivist. Þar þarf að
leggja áherslu á tækifæri til
hestaferða, veiði, sleðaferða, og
ferða í óblíðri náttúru. Þá getur
t.d. nætursund og miðnæturgolf
skapað borginni sérstöðu. Þar
fyrir utan geta uppákomur eins
og menningarnætur orðið að-
dráttarafi fyrir bæði erlenda
sem innlenda ferðamenn.
Ný tækifæri til ráðstefnu-
Þá er talið mikilvægt
að borgin geri sýni-
legri en verið hefur
þá endurnýjanlegu
orkugjafa sem hún
nýtir við hitun, raf-
orkuframleiðslu og til
vatnsveitu.
halds og námskeiða eru talin
liggja í smærri og meðalstórum
ráðstefnum og fundum. í þeim
efnum er lagt til að stefnt verði
að byggingu ráðstefnu- og tón-
listarhúss í borginni sem hægt
er að nota fyrir stærri viðburði.
Nauðsynlegt er að efla ferða-
mannaverslun með markvissu
markaðsstarfi og þjálfun versl-
unarfólks. Huga þarf að því að
lengja afgreiðslutíma verslana
yfir sumartímann, auk þess
sem verð á bjór og léttum vín-
um á veitingahúsum þarf að
lækka verulega. Verðlag á þess-
um vörum er talið með því
hæsta sem þekkist í Evrópu og
hefur frekar fælt ferðamenn frá
landinu en hitt. Þá eru taldir
miklir möguleikar fólgnir í
skemmtanalífi miðborgarinnar
sem þykir mjög ljölbreytt að
ógleymdum sérstökum menn-
ingarnóttum. Auk þess þarf að
efla og styrkja sköpunarkraft í
listum og menningu með
áherslu á menningararfleifð og
nýsköpun.
Þá er talið mikilvægt að
borgin geri sýnilegri en verið
hefur þá endurnýjanlegu orku-
gjafa sem hún nýtir við hitun,
raforkuframleiðslu og til vatns-
veitu. Það er t.d. hægt með því
að koma fót kynningarmiðstöð
á náttúrulegum orkugjöfum og
jarðfræði landsins. Þessu til við-
bótar er lagt til að stofnað verði
kynningarsetur þar sem veiðar
og vinnsla í sjávarútvegi verða
kynnt. Þá þarf að huga betur en
verið hefur að þeim möguleik-
um sem bjóðast í samgöngum
með markvissri upplýsinga-
miðlun fyrir ferðamenn.
Síðast en ekki síst er nauð-
synlegt að kynna þá öflugu
samfélagsþjónustu sem rekin er
í borginni. í þeim efnum þarf að
koma því til skila hvað ferða-
menn geta verið öruggir í
Reykjavík miðað við aðrar
borgir.
Hvatningarverðlaun
Til að efla frumkvæði og ný-
sköpun í ferðaþjónustu er lagt
til að árlega verði veitt sérstök
hvatningarverðlaun. Athygli
vekur að slagorð verkefnis-
stjórnar er á ensku, „Reykjavík
- next door to nature". Á blaða-
mannafundinum sl. föstudag
kom Helgi Pétursson, varafor-
maður Atvinnu- og ferðamála-
nefndar borgarinnar, með þá
uppástungu að slagorðið yrði
þýtt sem „Fjör í faðmi náttúr-
unnar.“ -grh