Dagur - Tíminn Akureyri - 27.05.1997, Blaðsíða 7
ÍDagtcc-'QBrmrat
Þriðjudagur 27. maí 1997 - 7
ERLENDAR FRÉTTIR
Frakkland
Kjósendur sýna
Chirac gula spjaldið
Mikið fylgi vinstri
fiokkanna í frönsku
kosningunum kemur
verulega á óvart.
Frakkar gáfu Jacques Chir-
ac langt nef í fyrri umferð
þingkosninga, sem fram
fóru á sunnudag. Um 68%
kosningabærra manna tóku
þátt í þessum kosningum, held-
ur fleiri en skoðanakannanir
höfðu sýnt fram á að myndu
kjósa. Chirac, sem nú er 65 ára,
á eftir 5 ára setu sem forseti og
hvernig sem úrslit verða í kosn-
ingunum, getur hann setið út
kjörtímabil sitt. Hann er tals-
maður niðurskurðar, skatta-
lækkana og vill minnka umsvif
ríkisins á sem flestum sviðum,
en úrslitin sýna svo ekki er um
villst að kjósendur eru þessu
ekki sammála og vflja alls ekki
minnka félagsmálapakkann, en
í Frakklandi er nú um 12.8%
atvinnuleysi, eitt mesta at-
vinnuleysi í Evrópu.
Úrslit þingkosninganna í Frakk-
iandi urðu Jacques Chirac, for-
seta, mikil vonbrigði.
Jean Marie Le Pen, leiðtogi
Þjóðarflokksins, segir þessi úrslit
vera persónulegan ósigur Chir-
acs og hvetur hann til afsagnar.
„Hann hefur verið sigraður og á
að fara frá,“ segir Le Pen.
Kannanir höfðu sýnt að
stjórnin héldi naumlega meiri-
hluta, en þó fór svo að vinstri
menn fengu um 40% en
hægri/miðjumenn fengu aðeins
36%. Þjóðarflokkurinn fékk um
15% atkvæða en hefur þrátt
fyrir það litla sem enga von um
stjórnarsæti. Búist er við því að
flest þau atkvæði sem farið
hefðu til Þjóðarflokksins, fari til
mið/hægri flokka og að það
muni gefa stjórnarliðum mun
betri vinningsmöguleika en
þessi fyrsta umferð kosning-
anna sýnir.
Jacques Touboun, dóms-
málaráðherra, segir að úrslitin
séu viðvörun, fólk sé óánægt og
vilji refsa stjórninini, en Alain
Juppe, hinn óvinsæli forsætis-
ráðherra, segir að Frakkar vilji
róttækar breytingar og að
stjórnin verði að hlusta á skila-
boð almennings.
Með þeim tölum sem komnar
eru segir Sofre, að sósíalistar
og kommúnistar fái 263-302
sæti en hægri menn aðeins 255-
287 sæti. Ef sósíalistar fá um
289 sæti mun stjórnin í Frakk-
landi vera samsett úr tveimur
eða fleiri flokkum, í þriðja sinn
síðan 1983.
Wisconsin
Nýjar hugmyndir um
félagsmálahj álp
IWisconsin hefur verið unn-
ið að því á undanförnum
árum að þeir sem vinna hjá
einkafyrirtækjum hafi betri
laun en þeir sem vinna hjá rík-
inu. Þeir sem ekki fá vinnu í
einkageiranum eiga að geta
fengið einhverja vinnu hjá rfk-
inu, en launin eru höfð nógu
lág til að hvetja menn til að
leita að annarri vinnu.
Nú hefur sú staða komið upp
að ríkinu er skylt að greiða lág-
markslaun, það sé ólöglegt og
ósanngjarnt að skylda þá sem
fá bætur að vinna fyrir þeim á
lægri launum en það. En jafn-
framt fullyrðir stjórnin það að
eigi að greiða 4.75$ á tímann,
þurfi meira fé til þessara mála-
flokka og jafnframt er óttast að
séu sömu laun greidd til slíkrar
Ríkinu er skylt að
greiða lágmarkslaun,
það er óiöglegt og
ósanngjarnt að
skylda þá sem fá
bætur að vinna fyrir
þeim á lægri
launum en það.
atvinnubótavinnu muni það
letja fólk í leit að vinnu annars
staðar.
Verkefni því sem kallað hef-
ur verið Wisconsin áætlunin er
ætlað að fá fólk til að vinna fyr-
ir bótum. Helstu hugmyndir um
atvinnu eru:
Að fatlaðir geti fengið vinnu
við hæfi á vernduðum vinnu-
stöðum, laun séu um 628$ á
mánuði.
Samfélagsþjónusta, s.s.
þrifnaður á lóðum ríkisins, laun
séu um 673$ á mánuði.
Reynsluverkefni, þar sem
ríkið greiðir atvinnurekendum
300$ á mánuði fyrir að ráða at-
vinnulausa, það sé tímabundin
lausn, helst ekki meira en 3
mán. þó megi lengja tímabilið í
2 ár. Launin séu lágmarkslaun
og fólk fái skattaívilnanir eftir
því sem telst eðlilegt í einka-
geiranum.
Og svo störf í einkafyrirtækj-
um, en í Wisconsin, sem er
nokkuð vel á vegi statt, eru
tímalaun í einkageiranum um
6$ á tímann.
- besti tími dagsins!
TILBOÐ A
SMÁAUGLÝSINGUM
FYRSTA BIRTING
800 KR,
ENDURBIRTING
400 KR.
Ofangreind verO miOast vlO staOgroiflslu eöa VISA / EURO
Sfmi auglýsingadeildar er 460 6100
Fax augiysingadeildar er 460 6161
Vinningar Fjöldi vinninga Vinnings- upphæö
*| 5 a» 5 1 11.475.700
2.4PSH W 6 120.130
3. ■“■I5 127 9.790
4. 3af 5 4.394 660
Samtals: 16.339.850
Upplýsingar um vinningstölur fást einnig I simsvara
568-1511 eöa Grœnu númeri 800-6511 og I textavarpl
ásföu 451.
Fjölskylduskemmtun
Enginn aðgangseyrir
Boreames
^ S.-6.jií/e 7997 J
Erlent fyrirtæki, sem framleiðir vinsælan, vandað-
an herrafatnað undir eigin nafni, á góðu verði, (yfir
250 verslanir í Skandinavíu) óskar eftir að komast
í samband við aðiia, eða fyrirtæki á Akureyri, sem
áhuga hafa á að opna herrafataverslun, eða opna
svokallað shop in shop í verslun sem fyrir er. Fyr-
irtækið útvegar innréttingar og mikið af auglýs-
ingaefni ásamt góðri aðstoð frá fyrsta degi. Fyrir-
tækið býður eiganda eða verslunarstjóra erlendis á
kynningarnámskeið áður en opnað yrði. Um beinan
innflutning á fatnaðinum yrði að ræða.
Þeir sem áhuga hafa, vinsamlegast hafið samband
við Dag-Tímann og Ieggið inn nafn og símanúmer
ásamtykkar hugmyndum, merkt 1, 2 og 3, fyrir 5.
júní 1997, og haft verður samband fljótlega.
Alger trúnaður áskilínn.
GARÐYRKJUSKÓLI RÍKISINS
Matjurtir í heimilisgarðinum
Trjágróður í mismunandi umhverfi
Garðyrkjuskóli ríkisins, Reykjum í Ölfusi, verður með tvö
námskeið á Akureyri laugardaginn 31. maí 1997.
Námskeiðin verða þessi:
Matjurtir í heimilisgarðinum, sem haldið verður í húsnæði
umhverfisdeildar við Drottningarbraut.
Leiðbeinandinn á námskeiðinu, Gunnþór Guðfinnsson,
kennari við Garðyrkjuskólann mun fjalla um allt það
helsta sem viðkemur matjurtum í heimilisgarðinum, lífræna
ræktun, safnhaugagerð og fleira.
Trjágróður í mismunandi umhverfi, sem haldið verður í
skátaheimilinu Hvammi, Hafnarstræti 49. Á námskeiðinu
mun Kristinn H. Þorsteinsson, garðyrkjustjóri Rafmagnsveitu
Reykjavíkur, fjalla um mismunandi gróður í bæjarkjörnum,
útivistarsvæðum og í sumarbústaðalöndum.
Bæði námskeiðin standa frá kl. 10-16 og er þátttökugjald
kr. 3.000,- (innifalið: Námskeiðsgögn, hádegismatur
og miðdegiskaffi).
Skráning fer fram hjá endurmenntunarstjóra
Garðyrkjuskólans í síma 483 4061 og á
skrifstofu skólans í síma 483 4340.
1