Dagur - Tíminn Akureyri - 11.06.1997, Side 4

Dagur - Tíminn Akureyri - 11.06.1997, Side 4
16- Miðvikudagur 11. júní 1997 ÍOagur-®mtrm Umbúðalmist Eigi skal höggva Það skildi þó aldrei vera að konur mættu ekki vera svo sterkar að karl- mönnum stæði ógn af þeim. Jafnvel svo að þeim fyndist hoggið undan sér? ^^9«, 'f Agnarsdóttir > g var einu sinni stödd á norrænni ráðstefnu um konur og leikhús í Finn- landi og lenti uppi á hótelher- bergi með frægri sænskri leik- konu (við vorum ekki saman sko) Gunnel Lindblom hét hún, fræg Bergmanleikkona svo ég nafnadriti pínulítið. Við vorum auðvitað að tala um kynjamál- in, hvað annað, þetta er enda- laus umræða. Gunnel hafði mestar áhyggjur af því að ef við konur værum of herskáar í bar- áttu okkar, þá misstu karlar náttúruna og hætti að standa til kvenna og hvar væri mannkyn- ið þá statt? Við konur bærum ábyrgð á því að mannkynið þurrkaðist ekki út. Við mættum ekki vera svo sterkar að karl- mönnum stæði ógn af okkur þannig að þeim fyndist hoggið undan sér. Biskupar á höggstokk Ég mundi allt í einu eftir þess- ■ um orðum leikkonunnar þegar ég las að fjölmiðlagagnrýnanda Dagblaðsins liði alltaf eins og Jóni biskupi Arasyni á högg- stokknum þeg- ar hann læsi pistlana mína. Ég fylltist ógur- legri sektar- kennd og hugs- aði með mér: „Eigi skal höggva." Jón biskup býr nú afturgenginn og óhogginn í einum mesta húmorista bæj- arins og bíður eftir náðarhögg- inu frá mér á hverri stundu, því honum leiðist biðin á högg- stokknum. Á þessu blaði er ég einn af fulltrúum siðaskipt- anna, þar sem konur eru óþreytandi við að höggva karla niður í hverri viku. Samkvæmt afturgöngu Jóns mistekst mér þó nær alltaf, líklega af því exi mín er illa brýnd eða nei, ég er ekki nógu höggviss. Ég hitti af og til kennda menntamenn (ókenndir og ómenntaðir tjá sig ekki að óþörfu) sem finnst þeir hafa orðið fyrir barðinu á þess- um mistæku höggum mínum og þusa ein- hver lifandis býsn yflr því að þeir nenni aldrei að lesa pistlana mína af því að þeir séu svo leiðinlegir. Þá fer ég nú yfir- leitt að hlæja, því skemmtilegri þversögn hef ég sjaldan heyrt. Hvernig getur þeim fundist eitt- hvað leiðinlegt sem þeir hafa aldrei lesið? Jú, þeir þurfa ekki að lesa, þeir hafa farið á hrað- lestrarnámskeið og renna frán- um augum sínum rétt sem snöggvast yfir orðin, finna fljótt orðið „karlmenn“ og fá sam- stundis svokallaðan „femfnista- hroIl“, holdið á þeim skreppur saman og þeir samsama sig undireins illa förnum biskup- um, hvort sem það er Jón Ara eða Óli Skúla. Cjáifvirk kvenhræðsla Kannski þarna sé Ioks að finna skýringuna á gjánni milli kynj- anna; þessir biskupar þurfa ekki nema finna lyktina af því sem þeir halda að sé „femín- ismi“ og hræðast mest í heimi og þá fer sjálfvirk kvenhræðsl- an í gang eins og reykskynjari sem ýlir án þess að það hafi kviknað í. Ef þeir neyðast til að lesa eitthvað eftir konur, hlusta á þær eða kynnast þeim þá get- Á þessu blaði er ég einn af fulltrúum siðaskiptanna, þar sem konur eru óþreytandi við að höggva karla niður í hverri viku. eœst ur ýmislegt komið þeim á óvart og jafnvel víkkað út sjóndeild- arhring þeirra; „Þú ert nú miklu skárri en ég hélt,“ segja þeir þá og afhjúpa fordóma sína eða „ég var alveg hissa á því hvað þetta var fullburða hjá þér“ og afhjúpa um leið litlar væntingar til kvenna. Það er engum blöðum um það að fletta, þessi sjálfskipuðu bisk- upsefni andans eru miklu merkilegri, gáfaðri og fyndnari en kvenböðlar nýju siðaskipt- anna. Þetta vita konur vel, enda hafa þær alltaf sýnt sálarflækj- um karlmannsins mikinn áhuga og skilning og sumar vilja ná þessum hrolli úr þeim. Kannski ættu konur að hætta að ijasa um karlmenn og konur og fara að skrifa um fugla og skordýr eða heimskautaveðrið í byrjun júm' á íslandi, já eða áhrif grænmetisfæðis á meltinguna og hugsunina. Konur hjúkra Getur verið að tormelt kjötát (bíbb) geri það að verkum að svírinn þykkni um of, svo það bíti ekkert á honum og það tor- veldi skilning á eðli og hugsun kvenna? Svona eru (bíbb), alltaf að leita skýringa, svo um- hyggjusamar og alltaf í hjúkr- unarleik og það er auðvitað hjúkrunarkonan í mér sem passar upp á að biskupar þessa lands hvort sem þeir eru lífs eða liðnir og afturgengnir, missi hvorki höfuðið né aðra mikil- væga hluta af líkama sínum. Ef þeir missa höfuðið þá rís þeim ekki lengur hold og ef þeir missa holdið, já, þá er úti um mannkynið eins og Gunnel Lindblom óttaðist. Nei, eigi skal höggva, heldur hjakka í sama farinu. GARRI Tveir tómhentir Garri fær ekki betur séð en tveir nýir búdda- munkar séu að verða til í forustusveit hinnar alþjóð- legu Ólympíuhreyfingar. Kjör- orð búddamunksins er, eins og lesendum Dags-Tímans ætti að vera kunn- ugt eftir for- si'ðuviðtal við íslenska búdda- munkinn á dögunum: „Farðu allt- af tómhent- ur!“ Það er fróttaviðtal í Degi-Tíman- um í gær sem gefur mönnum til- efni til að ætla að þeir Ellert B. Schram, formaður íslensku Ólympíunefndarinnar, og José Samaranch, forseti alþjóðlegu Ólympíunefndarinnar, hyggist snúa baki við hinu veraldlega lífsgæðakapphlaupi og taka upp þann sið að „fara alltaf tómhentir". Ellert segir Raunar er það frótt að þeim Ellerti og Samaranch semur nú afskaplega vel og eru orðn- ir miklir vinir. Það gerist þrátt fyrir að Ellert hafi kallað hann glæpamann í leiðara DV fyrir nokkrum misserum. En Ellert útskýrir málið í fréttaviðtalinu í gær: „Ég kann afar vel við manninn (glæpamanninn??), hann er greindur og tilgerðar- laus. í þessum leiðara var ég að vara við því að tilstand og skrum mætti ekki bera innri þátt leikanna ofurliði og mér sýnist að hann hafi alveg sömu skoðun og ég í þeim efnum. Hann var t.d. mjög ánægður með hve einföid opnunarhátíð- in var hjá okkur.“ Það er greinilegt að Samar- anch hefur iðrast frá því Ellert tjáði sig í leiðaranum fræga hór um árið. Fastlega verður líka að gera ráð fyrir að forseti alþjóða Ólympíunefndarinnar sé ekki einvörðungu ánægður með að fslendingar skuli hafa sparað í opnunarhátíðinni, heldur hafi hann sjálfur ákveð- ið að minnka verulega hjá sér lúxusinn og sé nú farinn að gæta þess að láta ótrúlegan lífsstíl yfir- stjórnar Ólympíu- hreyfingar- innar ekki skyggja á innihald leikanna og hugsjónar- innar að baki þeim. Annars myndi Ell- ert varla hafa tekið þessum sinnaskiptum gangvart mann- inum, því það var jú bruðlið og ilottræfilshátturinn sem hann var m.a. að fetta fingur út í á sínum túna. Þota í reiðileysi Garri vill því skora á frótta- menn að finna farfuglaheimilið sem Samaranch gisti á og fara að spyrjast fyrir á hamborg- arastöðum og pylsubörum þvf þar hefur hann væntanlega borðað. Það væri náttúrulega stórfrétt ef maðurinn er hættur að borða það allra dýrasta og flottasta á dýrustu og flottustu veitingahúsunum. Síðan hlýtur að vera einhvers staðar stór einkaþota merkt ólympíu- hringjunum f reiðileysi því varla liefur búddamúnkurinn Samaranch farið að fara í henni til baka aftur - ekki eftir að þeir Ellert voru orðnir dús og búnir að ákveða að vera alltaf tómhentir. Stóru gleðifréttirnar við Smáþjóðaleikana eru því þær að nú mun hinn innri þáttur þeirra fá að njóta sín óspjall- aður af efnahagsríkidæmi for- ustunnar. Þeir sem iára tóm- hentir skyggja ekki á Ólympíu- hugsjónina. Garri.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.