Dagur - Tíminn Akureyri - 11.06.1997, Page 13
|Dítgur-®mtmt
Miðvikudagur 11. júní 1997 - 25
Smáauglýsingar
AL-ANON
Samtök ættingja og vina
alkohólista.
Er áfengi vandamál í þinni fjölskyldu?
Ef svo er getur þú í gegnum samtökin:
- Hitt aðra sem glíma við
samskonar vandamál
- byggt upp sjálfstraust þitt.
- bætt ástandið innan fjölskyldunnar.
- fundið betri líðan
Fundarstaður:
AA húsið, Strandgötu 21, Akureyri,
Sími 462 2373.
Fundir í Al-Anon deildum eru:
Miðvikudaga kl. 21.00 og
laugardaga kl. 11.00
(nýliðar boðnir velkomnir kl. 10.30)
Þakjárn
Ódýrt þakjárn, lofta- og veggklæðnlng-
ar.
Framleiðum þakjárn, lofta- og vegg-
klæðningar á hagstæðu verði.
Galvaniserað, rautt, hvítt, koksgrátt og
grænt.
Timbur og stál,
Smiðjuvegi 11, Kópavogi.
Símar 554 5544 og 554 2740.
Bændur
Traktorsdekk & básamottur.
Eigum gott úrval af Vredestein traktors-
og landbúnaöardekkjum. Sterk og góð
vara frá Hollandi. Beinn innflutningur
tryggir góða þjónustu og hagstætt verð.
Munið þýsku básamotturnar á góða
verðinu.
Gúmmívinnslan hf. - Akureyri,
sími 461 2600.
Þjónusta
Greiðsiuerfiðleikar
Erum vön fjárhagslegri endurskipulagn-
ingu hjá einstaklingum, fyrirtækjum og
bændum.
Gerum einnig skattframtöl.
Fyrirgreiöslan efh.,
sími 562 1350.
Sendiþjónustan hans Guíla.
Gulli sendill auglýsir:
Er með stóran vagn aftan í reiðhjóli.
Óska eftir að sendast fyrir fyrirtæki á
Isafirði.
Uppl. í síma 456 4184 eftir hádegi og á
kvöldin, símboði 845 3626.
Verslunarhúsnæðí
Til sölu verslunarhúsnæði á annarri
hæö í Sunnuhlíö.
Húsnæðið er 115 fm. auk geymslu og
hlutdeildar í sameign, samtals 166 fm.
Innréttingar geta fylgt.
Ásett verð kr. 6 millj.
Skipti á íbúð koma til greina.
Uppl. veitir Pálmi Stefénsson, vinnusími
462 1415 og heimasími 462 3049.
Kvígur
Til sölu þrjár kvígur.
Burðartfmi f september.
Verð 75.000 + vsk pr. stk.
Á sama stað fæst gefins 5 mánaöa
Scháfer hvolpur.
Uppl. f sima 463 1163.
Plöntusala
Garðeigendur.
Verðum f göngugötunni með fjölærar
plöntur á fimmtudag og föstudag frá kl.
12.30.
Sesselja og Hjördís.
Heílsuhomið
Bio Selen + zink, frábær blanda fýrir
eldri borgara.
Bio Glandin, sterkasta glandinefniö f dag.
Fewer Few fyrir þá sem þjást af mígreni.
Cróm til aö minnka sykurþörfina og gefa
orku.
Tyggjanleg bragðgóð fjölvítamín fyrir
unga sem aldna.
Okkar vftamfn eru úr náttúrulegum hrá-
efnum og án sykurs, gers og aukaefna.
„12 tíma“ megrunarkex, góð lausn, líka
fyrir þá sem eru að flýta sér en vilja eitt-
hvaö gott.
Létt og bragðgott jurtakjöt f bakpokann
og feröalagið.
Nýkomið góðgæti frá ítalfu og Mexíkó.
Tan Express og aörar góðar sólarvörur
frá Banana Boat.
Allison húövörur fyrir fólk með viðkvæma
húð.
Ertu á leið til útlanda? Ekki láta maga-
kveisu, sólbruna, kvef eða skordýrabit
spilla frfinu, í Heilsuhorninu finnur þú
allt sem þarf til að foröast svona
vandamál.
Nuddolíur og ilmolíur.
Verið velkomin, alltaf eitthvaö nýtt!
Heilsuhorniö,
Skipagötu 6, Akureyri,
sími 462 1889,
sendum f póstkröfu.
Garðaúðun
Roðamaur, maðkur og lús.
Erum byrjuð aö úða.
Fljót og gjóð þjónusta.
Verkval, sfmi 461 1172, á kvöldin f sfma
461 1162.__________________________'
Tek að mér garöaúðun fyrlr trjámaðki,
lús og roðamaur.
Margra ára reynsla, fljót og góð þjón-
usta.
Uppl. f sfmum 461 1194 eftir kl. 19,
461 1135 (kaffistofa), 853 2282 (bfla-
sfmi) og 893 2282 (GSM).
Garðtækni,
Héöinn Björnsson,
skrúðgarðyrkjumeistari.
Samkomur
HvíTASunnummn
Miðvikud. 11. júní kl. 20.30. Andlegar
þjálfunarbúðir. Allir velkomnir.
Atliugið
Minningarkort Heimahlynningar
krabbamcinssjúkra á Akureyri fást hjá
Pósti og síma (sími 463 0620), Bókabúð
Jónasar, Bókval, Möppudýrinu, Blómabúð-
inni Akur, Blómabúð Akureyrar og Blóma-
smiðjunni.
Stígamót, samtök kvenna gegn kynferðis-
legu ofbeldi. Símatími til kl. 19.00 í síma
5626868.___________________________
Minningarkort Akureyrarkirkju fást í
Safnaðarheimili Akureyrarkirkju, Blóma-
búðinni Akri og Bókvali.
PENNI PÆMflLflUSI
Hei! Vaknið þið! Við skulum fara á alla staði
og gera allt.
Athugið
Minningarkort Gigtarfélags Islands fást í
Bókabúð Jónasar.
Samúðar- og heillaóskakort
Gideonfélagsins.
m Æ) Samúðar- og heillaóskakort Gi-
deonfélagsins liggja frammi í
flestum kirkjum landsins, einnig hjá öðrum
kristnum söfnuðum.
Ágóðinn rennur til kaupa á Biblíum og
nýjatestamentum til dreiflngar hérlendis og
erlendis.
Útbreiðum Guðs heilaga orð.
JMinningarkort Glerárkirkju
fást á eftirtöldum stöðum: í
Glerárkirkju, hjá Ásrúnu Páls-
dóttur Skarðshlíð 16a, Guðrúnu
Sigurðardóttur Langholti 13 (Rammagerð-
inni), í Möppudýrinu Sunnuhlíð og verslun-
inni Bókval.
Frá Náttúrulækningafélagi Akureyrar.
Félagar og aðrir velunnarar eru vinsamlega
minntir á minningakort félagsins sem fást í
Blómabúðinni Akri, Amaro og Bókvali.
Iþróttafélagið Akur vill minna á minning-
arkort félagsins. Þau fást á eftirtöldum stöð-
um: Bjargi Bugðusíðu 1 Akureyri og versl-
uninni Bókval við Skipagötu Akureyri.
Minningar- og tækifæriskort Styrktarfé-
lags krabbameinssjúkra barna fást hjá fé-
laginu í síma 588 7555. Enn fremur hjá
Garðsapóteki, sími 568 0990 og víðar um
land.
Minningarkort Umhyggju, félags til
stuðnings sjúkum börnum, fást í síma 553
2288 og hjá Body Shop, sími 588 7299
(Kringlan)/561 7299 (Laugavegur 51).
Miðstöð fyrir fólk í atvinnulcit.
Opið hús í Punktinum alla mið-
vikudaga frá kl. 15-17.
Kaffiveitingar í boði, dagblöð
liggja frammi og prestur mætir á staðinn til
slaafs og ráðagerða.
Sérstök dagskrá auglýst ef svo ber undir.
Akureyrarkirkja.
Hvar er barnið þitt
að leika sér?
J---------^
0RÐ
DAGSINS
462 1840
K_________r
Akureyri
Fjölskylduhelgi
Akureyrarsóknar
Helgina 13.-15. júní nk. verður
íjölskylduhelgi Akureyrarsókn-
ar haldin á Kirkjumiðstöðinni
við Vestmannsvatn í Aðaldal.
Slík helgi var í fyrsta sinn á
dagskrá safnaðarstarfs Akur-
eyrarkirkju í fyrrasumar og
þótti takast mjög vel.
Skráning fer fram í Akureyr-
arkirkju í síma 462 7700 og þar
fást ennfremur nánari upplýs-
ingar.
Minjasafnið á
Akureyri
Minjasafnið á Akureyri, Aðal-
stræti 58. Sími 462 4162, fax
461 2562. Opið alla daga frá 1.
júní til 15. september, kl. 11-17.
Einnig á þriðjudags- og fimmtu-
dagskvöldum frá 1. júlí til 28.
ágúst, kl. 20-23.
Píanótónleikar
Hakan Ali Toker, píanóleikari
frá Tyrklandi, mun halda tón-
leika í Safnaðarheimili Akur-
eyrarkirkju miðvikudaginn 11.
júní kl. 20.30. Á tónleikunum
verður ljölbreytt efnisskrá og
mun hann auk eigin tónsmíða,
leika verk eftir E. Bakihanov, A.
Berg, L. v. Beethoven, F. Liszt,
W.A. Mozart og Rachmaninov.
Höfuðborgarsvæðiö
Junior Chamber
ísland
Þann 11. júní nk. hefst 35. Evr-
ópuþing Junior Chamber og
hefur Reykjavík orðið fyrir val-
inu sem þingstaður. Þing á veg-
um Junior Chamber hreyfingar-
innar eru ætíð mjög fjölbreytt
og stefnir í allt að um 1000 er-
lendir gestir heimsæki land og
þjóð á meðan á þinginu stend-
ur. Fjölmargir íslenskir JC fé-
lagar standa þessa dagana að
undirbúningi fyrir þingið en
undirbúningur hófst fyrir 6 ár-
um síðan. Áætlaðar gjaldeyris-
tekjur af þessu þingi eru um
150 milljónir íslenskra króna.
Færeyskur kór
Fimmtudaginn 12. júní kl. 17
syngur færeyski kórinn Glymur
í Norræna húsinu. Stjórnendur
eru Bjarni Restorff og Edvard
Nyholm Debess og mun kórinn
flytja verk eftir þá báða. Kórinn
var stofnaður 1983 af færeyska
tónskáldinu Sunleif Rasmussen.
Efnisskrá kórsins nær allt frá
kúbönskum og afrískum söngv-
um til norrænna söngva en á
tónleikunum í Norræna húsinu
er lögð áhersla á færeysk lög,
bæði ný og gömul, en nokkur
dönsk og ensk lög fljóta einnig
með.
Allir eru velkomnir og að-
gangur er ókeypis.
Félagsfundur
Sjálfsbjargar
Félagsfundur hjá Sjálfsbjörg fé-
lagi fatlaðra á höfuðborgar-
svæðinu verður haldinn mið-
vikudaginn 11. júní kl. 20 í fé-
lagsheimilinu Hátúni 12,
Reykjavík.
Fundarefni: Réttindamál
fatlaðra og hvernig þau tengjast
verkalýðsfélögum. Fulltrúar frá
ASÍ og BSRB flytja erindi og
svara fyrirspurnum.
Önnur mál.
Allir velkomnir
Rúnar Georgsson á
jazzkvöldi
í kvöld, miðvikudaginn 11. júní,
verður Rúnar Georgsson tenór-
saxofónleikari sérstakur gestur
á gestakvöldi með tríói Ólafs
Stephensen í Sölvasal Sólons fs-
landusar. Rúnar er án nokkurs
vafa einn allra vinsælasti jazz-
leikari okkar, en hann hefur
ekki komið fram á jazzkvöldum
um nokkurt skeið.
Gestakvöldið í Sölvasal hefst
klukkan 22 og stendur fram yfir
miðnætti.
Spjallað um „Óvininn"
í Hafnarfjarðarkirkju
f kvöld, miðvikudag, verður
haldin önnur kvöldvaka
sumarsins í Hafnaríjarðar-
kirkju. Sem fyrr verður ákveðið
efni kynnt og rætt yfir kaffibolla
og gefst öllum tækifæri til þess
að leggja orð í belg. í kvöld
verður þemað „Óvinurinn" eða
„Djöfullinn", hvernig hann birt-
ist í Biblíunni og hvaðan hug-
myndir honum tengdar eru
komnar inn í okkar menningar-
heim. Við munum velta fyrir
okkur uppruna hins illa í heim-
inum og hlutverki okkar í bar-
áttunni við það. Kvöldvakan
hefst kl. 20.30 og stendur til kl.
22.00. Sr. Þórhallur Heimisson
annast kynningu og stýrir um-
ræðum.
Hafnagönguhópurinn
í miðvikudagskvöldgöngu
Hafnagönguhópsins 11. júní
verður gengið eftir gömlum og
nýjum hitaveitustokkum í Mos-
fellsbæ. Farið verður frá Hafn-
arhúsinu með rútu kl. 20.
Gangan hefst við Lambhaga,
gróðrarstöð við Vesturlandsveg
kl. 20.20 og gengið eftir nýja
stokknum með Hamrahlíð og
yfir Lágafell að Dælustöðinni og
þaðan til baka eftir gamla
stokknum og rúta tekin niður í
Hafnarhús. Allir eru velkomnir
í ferð með Hafnagönguhópnum.
Landið
Bubbi og K.K. á
Dalvík og Sauðárkróki
Bubbi og K.K. halda tvenna
tónleika á Norðurlandi um
næstu helgi. Þeir verða á Kafíi
Menningu á Dalvík, fimmtudag-
inn 12. júní kl. 21 og Hótel
Mælifelli á Sauðárkróki föstu-
daginn 13. júní kl. 21.