Dagur - Tíminn Akureyri - 16.07.1997, Blaðsíða 2
2 - Miðvikudagur 16. júlí 1997
ÍDagur-®tnráttt
F R É T T I R
I Danmörku hefur verið meira um lús en nokkru sinni síðan um 1940 þrátt fyrir metsölu lúsameðala. Hérlendis er
ástandið ekki svo slæmt þó heldur sé meira um hana í vetur en áður.
Lúsin ónæm fyrir
lúsasj ampóinu
Heiti Potturinn
Sparkfræðingar í sund-
laugum um land allt
undruðust mjög uppákom-
una hjá Val í fyrrakvöld þegar
Sigurður Grétarsson þjálfari
var látinn taka pokann sinn.
Flestum fannst sem flaust-
urslega hefði verið staðið að
brottrekstrinum. Slíkt ætti
ekki að þurfa að koma fyrir
að Hlíðarenda, hjá eina
íþróttafélagi landsins sem
hefur yfir kapellu að ráða.
Nær hefði verið að leita fyrst
á náðir séra Friðriks. í stað
þess að hlusta á messu
þjálfarans í hálfleik hefði liðið
getað átt kyrrðarstund í kap-
ellunni og komið svo vel
andlega nært til leiks í
seinnihálfleik. Einnig hefði
stjórnin getað sótt sér áfalla-
hjálp í guðshúsið og beðið
fyrir betra gengi við fætur
föður Vals.
Framsóknarmenn í heita
pottinum eru farnir að
óttast borgarstjórnarkosn-
ingarnar sem fram fara
næsta vor. Þeir segjast ekki
óttast það að Reykjavíkur-
listinn tapi fyrir Sjálfstæðis-
flokknum og skipti þá engu
hver muni fara fyrir honum.
Hræddari eru Frammarar við
að átök um röðun á fram-
boðslista Reykjavíkurlistans
kosti hann meirihlutann.
Kratar eru sagðir þrýsta á
galopið prófkjör, en það
segja Frammarar að komi
ekki til greina. Þeim þykir
það líka sumum skrýtin pólit-
ík að vilja endilega breyta
uppskriftinni að lista, sem
færði flokkunum fjórum
lyklavöldin að borginni.
Höfuðlúsin verður
ónæm gegn
eiturefnum ekki
síður en trjálúsin.
s
næmi lúsar gagnvart lyfj-
um er vel þekkt vanda-
mál. Við erum á verði
gagnvart þessu, enda hljótum
við að lenda í því eins og aðrir,
að efnin hætti að virka,“ sagði
Lúðvík Ólafsson, héraðslæknir í
Reykjavík. Hann segist hafa
kannað ástandið í öllum skól-
unum sl. vetur. „Pað var svolítið
um lús í vetur, en ekkert yllr-
gengilegt eða neitt sem við get-
um kallað sérstakt vandamál
vegna lúsafaraldurs. Efnin sem
við höfum notað hafa reynst
ágætlega. Það hefur tekist að
drepa lúsina niður, en kannski
gekk það þó heldur verr í vetur
en áður.“
Lúðvík var spurður um
ástandið í lúsamálum hjá okkur
vegna frétta frá Danmörku (í
Politiken), að meira sé nú um
lús þar í landi heldur en nokkru
sinni síðan um 1940, þrátt fyrir
metsölu lúsameðala, eða fyrir
um 100 milljónir króna í fyrra.
En þau virðist hins vegar í
mörgum tilfellum hætt að vinna
á lúsinni, sem gerir heldur eng-
an mannamun.
Lúðvík segir vandamálið það
sama með mannalús, eins og
aðra lús, trjálús t.d., að þessi
kvikindi verði ónæm fyrir efn-
unum sem notuð eru gegn
þeim. Þau eiturefni sem Danir
nota aðallega í baráttunni við
höfuðlúsina segir Lúðvík t.d.
einnig vel þekkt í garðaúðun-
inni. Aðgerðir gagnvart lúsinni
þurfi að vera samræmdar, bæði
hvaða efni eru notuð og eins
geti verið nauðsynlegt að skipta
um efni á nokkurra ára fresti.
Lúðvík segir Iíka mikilvægt
að forðast alla fyrirbyggjandi
lúsaþvotta. Því slíkt sé ekki að-
eins gagnslaust, heldur auki
þeir beinlínis hættuna á ónæmi
lúsarinnar gegn eiturefnunum.
Fyrst eigi fólk að greina lúsina
og grípa síðan til ráðstafana. Þá
sé líka áríðandi að forðast allt
hálfkák. Menn verði að kaupa
nóg af efnunum, alls ekki að
reyna að drýgja skammtinn á
fleiri einstaklinga, því það skapi
einnig ákveðna hættu á ónæmi.
Að sögn héraðslæknis kemur
lúsin, af einhverjum ástæðum,
venjulega upp í skólunum á
haustin. Yfirleitt sé búið að út-
rýma henni vel fyrir jól, þótt
kannski komi fyrir eitt og eitt
tilfelli eftir það. - HEI
Orri Hauksson.
Forsætisráðuneytiö
Davíð fær
aðstoð
Orri
Hauks-
son, 26 ára
gamall véla-
verkfræðing-
ur, hefur ver-
ið ráðinn að-
stoðarmaður
Davíðs Odds-
sonar forsæt-
isráðherra.
Hann kemur
til starfa í ráðuneytinu
miðjan næsta mánuð.
Þessi nýi aðstoðarmaður for-
sætisráðherra kemur úr röðum
starfsmanna Eimskips þar sem
hann hefur starfað frá 1995.
Hann var stúdent frá MR 1991
og lauk námi í véla- og iðnaðar-
verkfræði frá Háskóla íslands
1995. Á námsárum sínum vann
hann sem fararstjóri hjá Sam-
vinnuferðum-Landsýn.
Orri hefur gegnt fjölmörgum
trúnaðarstörfum í félagsmálum
og var m.a. formaður Framtíð-
arinnar og oddviti Vöku í stúd-
entaráði HÍ. Síðast en ekki síst
var hann varaformaður Heim-
dallar 1996-1997. -grh
um
Járnblendið
Bjami
tekinn við
Bjarni Bjarnason tók formlega
við stöðu framkvæmdastjóra
íslenska járnblendifélagsins hf. í
gær. Fráfarandi framkvæmda-
stjóri, Jón Sigurðsson, verður fé-
laginu til ráðgjafar um sinn, eða
eftir efni og ástæðum.
Ekki hefur enn verið ráðinn
eftirmaður Bjarna í stöðu fram-
kvæmdastjóra Kísiliðjunnar hf.
við Mývatn. Á meðan stjórn
verksmiðjunnar liggur undir
feldi er daglegur rekstur hennar
í höndum þeirra Pálma Vil-
hjálmssonar fjármálastjóra og
Gústavs Nilssonar framleiðslu-
stjóra. -grh
FRETTAVIÐTALIÐ
Askell Kárason
forst.m. meðferðarheimilisins Stuðla
Starfsfólk Stuðla hefur ekki treyst
sér til þess að taka á móti ung-
lingum í neyðarmóttöku meðferð-
arheimilisins eftir ummœli um-
boðsmanns barna um að þar séu
hugsanlega brotin mannréttindi
og lög á börnum.
Engar yfirhylmingar
„Ég skrifaði yfirvöldum bréf fyrir
nokkru og sagðist ekki telja rétt að
taka á móti unglingum í neyðarmóttök-
una við þessar aðstæður sem nú hafa
skapast. En við höfum ekki lokað neyð-
armóttökunni og okkur er skylt sam-
kvæmt lögum að halda uppi þessari
þjónustu. Ef það kemur beiðni um
neyðarvistun þá skoðum við það og
reynum auðvitað að tryggja að við get-
um veitt einhverja þjónustu án þess að
fá yfir okkur ásakanir um mannrétt-
indabrot. Þetta eru mjög viðkvæm mál
og erfitt að vinna í þessu með einhvern
hasar í loftinu."
- Það var óskað eftir neyðarvistun
fyrir 14 ára ungling um síðustu
helgi, sem ekki fékk inni að Stuðlum.
Er það eina dœmið?
„Já. Við fórum fram á að það yrði
fundin önnur Iausn á því máli.“
- Eru þessi viðbrögð ekki merki um
að þið séuð að hefna ykkar eða farin
í fýlu vegna þeirrar gagnrýni sem
Stuðlar hafa orðið fyrir?
„Við erum hvorki að hefna okkar né
í fýlu. Það er lögð fram álitsgerð frá
umboðsmanni barna þar sem er bein-
línis sagt að allar líkur séu á að verið
sé að brjóta mannréttindasáttmála,
stjórnarskrána og hegningarlög með
þessari starfsemi sem er í neyðarvist-
uninni á Stuðlum. Það er ekkert hægt
að vinna við þær aðstæður. Við erum
beðin fyrir þessi börn og ef einhver
vafi leikur á um vinnubrögðin þá verð-
ur að eyða honum. Mitt starfsfólk er
mjög slegið yfir þessu og mér fannst ég
ekki geta lagt það á það að halda
áfram án þess að þetta væri skoðað og
reynt að eyða þessari óvissu. Mér
finnst þetta fullkomlega eðlileg við-
brögð og þau hafa ekkert með ein-
hverjar tilfinningasveiflur að gera.“
- Á ekki ýmislegt í gagnrýni um-
boðsmanns barna rétt á sér?
„Það geta verið ýmis atriði í svona
starfi sem orka tvívmælis og ekkert að
því að þau séu könnuð. En eins og
þetta er uppbyggt hjá umboðsmanni
barna er nánast búið að sakfella okkur
og það gerir embættismaður sem ekki
hafði fyrir því að kynna sér málið. Ilún
sendi mér bréf með þremur spurning-
um, sem aðeins var hægt að svara já
eða nei. Það eru ekki nokkur vinnu-
brögð. En við erum ekki að reyna að
hylma yfir neinum óhæfuverkum. Okk-
ur finnst að það sé alveg sjálfsagt að
fela óháðum aðila að skoða þessi mál.
Það verður gert og við erum bara fegin
því.“
Félagsmálaráðuneytið hefur
ákveðið að fela óháðum aðila að
kanna hvað hœft sé í gagnrýni um-
boðsmanns barna. Er sú vinna hafin?
„Nei ég veit ekki til þess. Það liggur
fyrir yfirlýsing ráðuneytisins um að
það ætli að láta gera þessa könnun, en
hún hefur ekki verið sett af stað.“
-vj