Dagur - Tíminn Akureyri - 16.07.1997, Page 3

Dagur - Tíminn Akureyri - 16.07.1997, Page 3
^DagurÁEmnmt Miðvikudagur 16. júlí 1997 - 3 Akureyri BuUandi óánægja með launakjör Guðmundur Stefánsson og Gfsli Bragi Hjartarson ræða málin á bæjarstjórnarfundi. Launamál bæjarstarfsmanna voru m.a. til um- ræðu á fundi í gær. Mynd: gs Óánægja með launa- kjör meðal embættis- manna Akureyrarbæj- ar. Röðun í launa- flokka og ósamræmi milli stofnana er meðal þess sem óánægjan beinist gegn. Megn óánægja virðist vera meðal embættis- manna á Akureyri með launakjör og starfsmannastefnu bæjarins. Illa hefur gengið að manna auglýstar stöður hjá Ak- ureyrarbæ og fáar umsóknir verið um þær stöður sem á annað borð hefur verið sótt um. Margir hafa af því áhyggjur að nú þegar efnahagslífið réttir úr kútnum þá bresti á atgervis- flótti úr bænum. Enginn hefur sótt um starf tölvufræðings sem auglýst var og ekki hefur tekist að manna stöður sálfræðinga og félags- ráðgjafa. Aðeins ein umsókn hefur borist um stöðu deildar- stjóra leikskóladeildar og til þess var tekið hve fáir sóttu um lausar skólastjórastöður í bæn- um nú í vor. Launum haldið niðri Samkvæmt heimildum blaðsins hafa nýir starfsmenn bæjarins átt í erfiðleikum með að semja um ásættanleg kjör og vitað er um að embættismaður hafi sagt starfi sfnu lausu, einkum vegna óánægju með kjör sín. Einn við- mælenda blaðsins, sem ekki vildi láta nafns síns getið, gagn- rýndi starfsmannastjóra harð- lega og sagði að svo virtist sem starfsmannastjórinn liti á það sem skyldu sína að halda laun- um starfsmanna niðri. Samkvæmt heimildum blaðs- ins hefur óánægjan bæði beinst að röðun í launaflokka, svo og að ósamræmi er í bílastyrk og fastri yíirvinnu. Einnig telja menn að mikið ósamræmi sé milli bæjarstofnana varðandi launakjör starfsmanna. Dagur- Tíminn hefur rætt við fjölmarga starfsmenn bæjarins þar sem þetta hefur komið fram, en enginn starfsmaður bæjarins hefur viljað koma opinberlega fram með sitt mál. Aflir hafa þeir þó Iýst áhyggjum sínum af þróun mála og óttast að skortur verði í framtíðinni á hæfu fólki ef svo heldur fram sem horflr. Þeir hafa þó tekið fram að Ak- ureyrarbær sé ekki eini staður- inn sem svo sé ástatt fyrir, held- ur séu lág laun á vinnustöðum bæjarins að verða stórkostlegt vandamál fyrir bæinn í heild sinni. Menntun eða kyn? Launamál starfsmanna komu til umræðu á bæjarstjórnar- fundi í gær í tengslum við bréf jafnréttis- og fræðslufulltrúa til kjaranefndar. í bréfinu er þess óskað að kannað verði hvort kjör jafnréttisfulltrúans brjóti í bága við jafnréttislög. Sigríður Stefánsdóttir lýsti því að dapur- legt væri að Akureyrarbær, sem fyrstur hefði fengið viðurkenn- ingu fyrir jafnréttisáætlun, skuli fá kæru frá jafnréttisfulltrúa. Sigríður benti á að í mörg ár hefðu konur í stjórnunarstöðum hjá bænum verið óánægðar með kjör sín m.a. vegna fast- heldni bæjarins á að gefa upp- lýsingar, en litið hefur verið á laun einstakra starfsmanna sem trúnaðarmál. Bréf jafnrétt- isfulltrúa gefi því ágætis ástæðu til að farið verði yfir þessi mál. Guðmundur Stefánsson sagði hinsvegar litla ástæðu til að hrökkva við þar sem launa- munur hjá bænum byggðist ekki upp á kynjamismun heldur mismunandi mennvun. „Þetta endurspeglar launamun í þjóð- félaginu þar sem raungreina- störf eru yfirleitt betur launuð," sagði hann. Bláa lónið Öryggið uppmálað inna lón, flot- bryggjur, girðingar og vegatálmar. Sí- menntun starfsfólks í við- bragðsáætlun. Það kemur ekki til þess að Bláa lóninu verði lokað miðað við það sem búið er að gera í öryggismálum og því sem unnið er að í þeim efnum,“ segir Ómar Hauks- son starfsmaður heilbrigðis- eftirlits Suðurnesja. I gær rann út sá frestur sem heilbrigðiseftirlitið hafði gefið til að efla öryggi baðgesta í framhaldi af sviplegu dauðaslysi sem varð í lóninu sl. vor. Upp- haflega var fresturinn til 1. júní sl. en hann var síðan framlengdur til 15. júlí. Fulltrúar heilbrigðiseftirlits- ins munu formlega taka ör- yggisatriðin út í dag eða á morgun, en þeir hafa á und- anförnum vikum fylgst náið með því sem unnið hefur verið að í öryggismálum þessa sívinsæla baðstaðar við Svartsengi. Meðal annars hefur lónið verið minnkað með varnar- garði og eins verður fólki gert erfiðara um vik að komast að lóninu eftir lokun með vegatálmum. Þá hefur Iónið verið girt og unnið hefur verið að smíði flot- bryggja sem verða staðsett- ar þar sem lónið er dýpst. Á þessum bryggjum verða m.a. bæði kaðlar og stigar sem baðgestir geta stuðst við til að koma sér upp úr vatninu ef eitthvað bjátar á. Síðast en ekki síst hefur við- bragðsáætlun starfsmanna verið efld og gerður samn- ingur um síendurmenntun þess í öryggismálum. -grh Sjávarútvegur Bolungarvík fjarstýrt frá Grindavík Þorbjörn og Bakki sameinast. Öflugt fyr- irtæki með 11.500 tonna kvóta og 3 milljarða kr. áruveltu. s Akveðið hefur verið að sameina sjávarútvegsfyr- irtækin Þorbjörn hf. í Grindavík og Bakka hf. í Bol- ungarvík. Hið sameinaða fyrir- tæki mun bera nafn Þorbjarnar og verða höfuðstöðvar þess sem fyrr í Grindavík. Stefnt er að því að fá hlutabréf fyrirtækisins skráð á Verðbréfaþingi fslands í haust. Sameiningin er gerð undir formerkjum hagræðingar, bæði í nýtingu kvóta og vinnslu. Hið sama átti sér stað fyrir tveimur árum þegar Bakki var stofnað- ur við samruna fimm sjávarút- vegsfyrirtækja í Bolungarvík og Hnífsdal. Eftir sameininguna verður nýja fyrirtækið með þeim stærstu á landinu, eða með 11.500 tonna kvóta á næsta fiskveiðiári. Áætluð árs- velta er um 3 milljarðar króna. Við samrunann munu hluthafar Bakka eiga 29% í nýja fyrirtæk- inu en hluthafar Þorbjarnar 71%. „Við teljum að staðsetning Bakka hf. í Bolungarvík sé áhugaverð og m.a. út frá rækj- unni,“ segir Eiríkur Tómasson framkvæmdastjóri Þorbjarnar hf. í Grindavík. Ilann bendir á að Þorbjörn sé með jafnmikinn rækjukvóta og Bakki en hefur ekki getað nýtt hann á undan- förnum árum nema til þess að fá kvóta í öðrum tegundum. Eiríkur segir að eftir samein- inguna verði rækjuvinnsla rekin sem fyrr fyrir vestan og þorskur verkaður í salt í Grindavík. Þá verður bolfiskvinnsla áfram í frystihúsi Bakka í Bolungarvík þar sem framleiddir verða fisk- bitar í neytendapakkningar. llann segir stefnt að því að sameiningin hafi sem minnsta röskim í för með sér fyrir starfsfólk. -grh Færeyingar Sækjast eftir lunda s tilefni heimsfrumsýningar á kvikmyndinni Barböru í Norræna húsinu í Þórshöfn eru öll flugsæti að verða upp- seld, hótelin að búa sig undir óvenjulegan gestafjölda og veit- ingahúsin í Þórshöfn „panta nú extra marga lunda frá íslandi, þar sem lundastofninn er á hraðri niðurleið í Færeyjum," sagði nýlega í Jótlandspóstin- um. Þórarinn Sigurðsson, Elliða- eyingur, kvaðst kannast við það að Færeyingar hafi nú í nokkur ár sóst eftir að kaupa lunda frá Eyjum. í hve miklu magni það sé, eða hvort það er nú meira en áður sé hins vegar ekki gott að segja. Því þarna sé ekki um neinn skipulagðan útflutning að ræða, heldur einungis bein við- skipti manna á milli. Færeying- ar virðist naskir á að finna út hverjir vilji hugsanlega selja. Þótt lundaveiði í Vestmanna- eyjum skipti mörgum tugum þúsunda á hverju ári segir Þór- arinn ekkert bera á því að lundastofninn sé þar á neinu undanhaldi, eins og í Færeyj- um. - HEI

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.