Dagur - Tíminn Akureyri - 16.07.1997, Síða 12
Miðvikudagur ló.júlí 1997
Veðrið
í dag
þurrkari
Þurrkari, 5 kg.
Snýst í báðar áttir, tvö hitastig
Verð kr. 33.155
Gæði, gáð þjónusta.
QKAUPLAND
KAUPANOI
Sfmi 462 3565 • Fax 461 1829
Línuritin sýna ijögurra
daga veðurhorfur á
hverjum stað. Línan sýnir
hitastig, súluritið 12 tíma
úrkomu en vindáttir og
vindstig eru tilgreind fyr-
ir neðan.
Hæg norðlæg eða
breytileg átt.
Yfírleitt skýjað
en að mestu þurrt.
Hiti 9 til 19 stig,
hlýjast
sunnanlands.
Knattspyrna
Taugaveiklun
Guðni Þ.
Ölversson
skrifar
Sigurður Grétarsson rek-
inn! Sú ákvörðun stjórn-
ar knattspyrnudeildar
Vals kom flestum á óvart og
engum meira en Sigurði sjálf-
um. Uppgefin ástæða fyrir
brottrekstrinum er hefðbund-
in, óviðunandi árangur í Sjó-
vár-Almennradeildinni.
Fjórir reknir það
sem af er
Sigurður er ekki fyrsti þjálfar-
inn sem rekinn er úr starfl í
sumar. Fyrstur fauk Lúkas
Kostic frá KR, þá Þórður Lárus-
son frá Stjörnunni, Logi Ólafs-
son var rekinn úr sæti lands-
liðsþjálfara og í fyrradag fékk
svo Sigurður Grétarsson reisu-
passann frá Val.
Valsmenn hafa reyndar verið
nokkuð iðnir að losa sig við
þjálfara undanfarin ár. Eftir að
Ingi Björn Albertsson hafði
þjálfað liðið í þrjú ár og skilað
því þremur bikartitlum var ekki
endurnýjaður samningur við
hann. Þá tók Kristinn Björnsson
við og var með liðið í tvö ár. Á
seinna árinu var orðið mjög
heitt undir Kristni og Guð-
mundur Þorbjörnsson var beð-
inn að taka við liðinu. Hann
neitaði og studdi Kristinn sem
stjórnin vildi svo ekki endur-
ráða. Þá, árið 1995, tók síðan
Hörður Hilmarsson við liðinu
en var sagt upp störfum þegar
sjö leikir voru eftir og Kristinn
Björnsson fenginn til að bjarga
málunum. Hann vildi síðan ekki
taka liðið að sér aftur fyrir
tímabilið 1996 þó honum stæði
það til boða. Þá kom Sigurður
Grétarsson til sögunnar.
Á framanrituðu sést að stöð-
ugleikinn hefur ekki verið mik-
ill undanfarin ár hjá hinu forna
stórveldi að Hlíðarenda. Sjálf-
sagt eru ástæður þess margar
en ljóst er að félagið hefur átt
erfitt uppdráttar í Ijármálum og
samstaða hefur ekki verið mikil
milli stjórnar, þjálfara og leik-
manna á undanförnum árum.
Fyrrum þjálfari Vals sagði
við Dag-Tímann að þraut-
arganga félagsins væri orðin
býsna löng og lítil samstaða
hafi verið innan knattspyrnu-
deildarinnar síðan Ian Ross var
með liðið síðast á blómaskeiði
þess.
Lúkas Kostic.
„Auðveldara að reka
einn en tuttugu
og tvo“
Að sögn formanns knattspyrnu-
deildarinnar, Þorleifs
Valdimarssonar, var tapið gegn
Grindavík kornið sem fyllti
mælinn. Eftir þann leik var ljóst
að „eitthvað" þurfti að gera.
Þegar Þorleifur var spurður
hvort stjórnin hafi verið
óánægð með starf Sigurðar var
svarið: „Við höfum verið
ánægðir með Sigga og allt gott
um hann að segja. Hann er
góður drengur og allt það. En
við vorum óánægðir með gengi
liðsins og teljum að hægt sé að
fá meira út úr þeim mannskap
sem við höfum. Það er auðveld-
ara að reka einn en tuttugu og
tvo.“ ............
Svarið
er
nokkuð hefð-
bundið hjá for-
manninum.
Vinnubrögð
stjórnarinnar
eru það einnig,
að því er sýnist.
Ekkert virðist
hafa verið rætt
við Sigurð um
hvað væri að og
hverju væri
hægt að breyta,
áður en til
brottreksturs- ■
ins kom. Fyrsta hálmstráið var
gripið og þjálfarinn rekinn. Fyr-
irliði liðsins var eini leikmaður-
inn sem hafður var með í ráð-
um og aðrir leikmenn mættu
síðan á fund með hinum nýja
þjálfara og fengu þá tíðindin.
Veikara Valslið nú
en áður
Sigurður Grétarsson afsakar
„meintan" slakan árangur liðs-
Það færist nú mjög í
vöxt að knattspyrnulið
reki þjáifara sína. Fjórir
á einu sumri er íslands-
met. Spurningin er
hvort taugaveiklun
stjórnarmanna eða slæ-
leg vinnubrögð þjálfara
ráða slíkum
ákvörðunum.
Sigurður Grétarsson.
ins með því að leikmannahóp-
urinn hafi þynnst frá síðasta
ári. Liðið hafi misst fleiri góða
leikmenn en það fékk. Þessu er
formaðurinn ekki sammála.
„Við höfum fengið Hörð Magn-
ússon, Arnar Hrafn Jóhannsson
og Atla Helgason,“ sagði Þor-
leifur og heldur því fram að
hægt sé að ná betri árangri
með nýjum þjálfara.
Hvað það er sem raunveru-
lega er að hjá Valsliðinu er ekki
auðvelt að útskýra í stuttu máli.
Eitt er þó víst, að staða Vals
væri öllu verri í dag ef ekki nyti
liðið Lárusar Sigurðssonar,
markvarðar síns. Hann hefur
sýnt snilldartakta í sumar og
forðaði liðinu frá mun stærra
tapi í Grindavík á dögunum.
_______________ Meðan aðrir
leikmenn liðs-
ins eru aðeins
áhorfendur og
fara í engu eft-
ir fyrirmælum
þjálfara síns,
eins og gerðist
í Grindavík, er
trauðla hægt
að kenna þjálf-
aranum um
slakt gengi.
Einhvern veg-
inn lítur brott-
rekstur Sigurð-
_______________ ar út eins og
menn, sem
eiga að axla ábyrgð ekki síður
en þjálfarinn, séu að velja sér
auðveldustu leiðina út úr
ógöngunum. Enda kom það
fram hjá formanninum að
menn höfðu mismunandi skoð-
anir á því hvaða breytingar ætti
að gera þó svo stjórnin hafi
staðið einhuga að brottrekstrin-
um þegar sú ákvörðun var tek-
in. Leikmenn liðsins eru nokkr-
ir ágætir en ekkert betri en
Þórður Lárusson.
leikmenn liðanna í næstu sæt-
um fyrir ofan Val í deildinni.
Liðið er nú með 10 stig í 7. sæti
þegar mótið er rétt hálí'nað og
staðan langt frá því að vera
vandræðaleg. Því verður að
álíta að mikil taugaveiklun
Hlíðarendabænda hafi ráðið
mestu um brottrekstur Sigurð-
ar.
Þorlákur Árnason
Hinn nýi þjálfari meistara-
flokks, Þorlákur Árnason, hefur
verið starfsmaður Vals í þrjú ár,
sem íþróttafulltrúi og þjálfari 2.
flokks. Þó ekki hafi hann enn
unnið titla með flokki sínum er
árangurinn ágætur og flokkur-
inn á mikilli uppleið, að sögn
Þorleifs, hann hefur góða for-
ystu í íslandsmótinu og kominn
í 8 - liða úrslit bikarkeppninnar.
Þegar Dagur-Tíminn ræddi
við Þorlák var hann hress og
sagði að starfið legðist vel í sig.
Hann vissi ekkert um breyting-
arnar fyrr en búið var að reka
Sigurð og hann beðinn að taka
við og sagði að það hefði komið
sér á óvart. Á fundi með leik-
mönnum Vals setti enginn sig á
móti breytingunni. Sú afstaða
leikmanna ætti að auðvelda
hinum nýja þjálfara starfið.
Um það hvort hann treysti
sér til að ná betri árangri með
liðið en Sigurður sagðist Þor-
lákur ekki vilja bera sig neitt
saman við Sigurð. Hann sagði
jafnframt að það væri ekki upp-
stilling liðsins eða Ieikkerfin
sem væri vandamálið. Það væru
leikmennirnir inni á vellinum.
Hvers vegna var Sigurður þá
rekinn?