Dagur - Tíminn Akureyri - 23.07.1997, Side 3

Dagur - Tíminn Akureyri - 23.07.1997, Side 3
jninœlS-TUTjEÍlí |Ditgur-'3Kmom XPOX \\uV y.'s•nronbwWnRiVf — fc>t Miðvikudagur 23. júlí 1997 -15 LIFIÐ I LANDINU Björgunarœfingin Samvörður ’97 er hafin. í gœr voru erlendir björgunar- menn teknir í frum- þjálfun á vegum slökkviliðsins á Kefiavíkurfiugvelli, í dag er œfingin undirbúin og á morgun verður jarðskjálftinn. Æf- ingin sjálf hefst á föstudaginn og þá byrja stóru strák- arnir í hápólitískum grœjuleik sem þeir œtla að lœra heil- mikið af. Guðrún Helga Sigurðardóttir skrifar Haraldur Stefánsson slökkviliðsstjóri er ánægður með að hafa fengið útlendu hermennina til íslands og telur fróðlegt að kynnast starfi þeirra og búnaði. Hann er hér í hópi rúmenskra björgunarmanna. Við erum uppljómaðir yfir því að þetta skuli vera hægt og að þetta skuli eiga sér stað. Ég er búinn að vinna hjá hernum í 42 ár. Fyrir nokkrum árum var ekki mögu- legt að fá þessar þjóðir hingað því að þær voru óvinir okkar. Nú er það að breytast sem bet- ur fer. Ég er mjög hamingju- samur, það getur alltaf eitthvað komið fyrir sem við ráðum ekki við og þá þurfum við aðstoð. Auk þess er þetta hápólitísk uppákoma vegna útvíkkunar á NATO. Það þarf ekki að stríða neitt, það er hægt að vinna saman og það er miklu betra,“ segir Haraldur Stefánsson, slökkviliðsstjóri á Keflavíkur- flugvelli. Hermenn frá 20 löndum Æfing Samvörður ’97 er liður í friðarsamstarfi Atlantshafs- bandalagsins og 26 annarra Evrópuríkja og eru 400 erlendir hermenn komnir hingað til lands frá 20 löndum. í þeim hópum er meirihlutinn frá fyrr- verandi ríkjum Austur-Evrópu, til dæmis 48 frá Eist- landi, 27 frá Lett- landi, 36 frá Lit- háen, 47 frá Rúm- eníu, 43 frá Rúss- landi og 37 frá Úkraínu auk her- manna frá Banda- ríkjunum og fleiri ríkjum ásamt til- heyrandi búnaði. Hliðstæðar æf- ingar hafa farið fram í öðrum Evr- ópulöndum en þetta er í fyrsta sinn sem skipuleggjendur æf- ingarinnar eru borgaralegir og áherslan er á almannavarnir. Það var Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra sem setti æf- inguna og gerði liðskönnun að erlendum hætti. Hann sagði að sér hefði litist vel á mannskap- inn enda séu björgunarmenn- irnir komnir af góðum hug og Halidór Ásgrímsson utanrík- isráðherra setti æfinguna. Við setningarathöfnina mátti sjá meðal annars sjá Geir H. Haarde skoða herþyrlur af bestu gerð. Björn Samúelsson og Svanhildur Gunnarsdóttir voru á röltinu. Þeim fannst gaman að sjá björgunartækin. ætli að æfa hjálparstarf hér á landi af fullum krafti ef ein- hvern tímann þyrfti á því að halda. Eftir gos í Vestmannaeyj- um, snjóflóð og jarðskjálfta fyrr á öldinni sé íslend- ingum auðvitað löngu ljóst að þeir þurfi að hafa við- búnað þó að auð- vitað voni allir að ekkert gerist. „Ef stjórnvöld sinna ekki skyld- um sínum á þessu sviði þá er það að mínu mati alvar- legt. Þessi æfing er einmitt liður í að sinna þessum skyldum og líka að ná betra samstarfi og samvinnu við þessar þjóðir," sagði hann. Jarðskjálfti og hamfarir Almannavarnaæfingin fer fram á Suðvesturlandi frá föstudegi fram á sunnudag og miðast við að jarðskjálfti hafi orðið. Jarð- skjálftinn mun eiga sér stað á morgun klukkan ijögur síðdegis og verða miklar náttúruham- farir, byggingar skemmast, vega- og veitukerfi raskast og umtalsverð slys verða á fólki, meðal annars verða íbúar á stóru svæði í Grindavík fluttir á brott frá heimilum sínum vegna björgunaraðgerðanna - enginn þó tilneyddur. Mikill fjöldi íslendinga var viðstaddur opnunarhátíðina og margir notuðu tækifærið til að kynna sér búnað erlendu björg- unarmannanna. Björn Samú- elsson og Svanhildur Gunnars- dóttir voru á röltinu um sýning- arsvæðið. Þeim fannst gaman að sjá björgunartækin og Björn sagði að þetta væri uppgötvun fyrir sig enda tækin fjölbreyti- leg. Hann er einmitt slökkviliðs- maður að atvinnu. Svanhildur tók undir og taldi skipta miklu máli að björgunarsveitirnar hefðu landsmenn bak við sig við svona æfingu enda starfsemi þeirra byggð á vinnu sjálfboða- liða og fjárframlögum frá al- menningi. Hafa kljáðst við ófagrar aðstæður Georg Rosenmayr, major í aust- urríska björgunarliðinu AFDRU, Austrian Forces Disast- er Relief Unit, var ásamt félög- um sínum í hvítu sjúkratjaldi og kynnti búnaðiim. Hann sagði að þarna væri aðeins til sýnis örlít- ið brot af tækjabúnaði 15 manna björgunarliðs en tvö austurrísk björgunarlið eru komin til landsins. Majorinn sagði að í hverju björgunarliði væru tveir læknar, sem færu með á slysstað og flyttu hina slösuðu. I tjaldinu fengju slas- aðir aðhlynningu í hálftíma til tvo tíma eða þar til hægt væri að flytja þá á sjúkrahús. -Hvað er hægt að hlynna lengi að slös- uðum? „Það fer eftir aðstæðum, því hvað hefur gerst, hvernig fólkið er slasað, hve lengi hamfarirn- ar liafa staðið. Stundum þarf margar klukkustundir til að finna fólk úr rústum. Liðið myndi þá einbeita sér að einni til fimm manneskjum eftir því hvernig meiðslin eru,“ segir hann. Austurrísku björgunarmenn- irnir vita ekki enn nákvæmlega hvert verður þeirra hlutverk í æfingunni. Þeir bíða bara eins og hinir erlendu gestirnir eftir því að fá upplýsingar um það þegar æfingin byrjar. Þeir hafa tekið þátt í svona æfingum víða um lönd auk þess að kljást við ófagran raunveruleikann, til dæmis í Armeníu fyrir nokkrum árum. Þá koma þeir frá Austur- ríki íjallanna og hafa því kynnst snjó með tilheyrandi snjóflóða- hættu. Þeir eru því ýmsu vanir. Georg Rosenmayr, majór í austurríska björgunarliðinu, og Boris Scmalko yfirliðsforingi sýna hluta af búnaði liðsins, sjúkrabörur fyrir slasaða og súrefnistæki til að flytja þá burt af svæðinu. Austurríkismenn eru með tvö björgunarlið, sjúkratjald og ýmsan búnað til að bjarga fólki úr jarðskjálfta, snjóflóði eða öðrum náttúruhamförum. Myn* ghs

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.