Dagur - Tíminn Akureyri - 23.07.1997, Blaðsíða 12
jDttgur-®inmm
Miðvikudagur 23. júlí 1997
Venjulegir og
demantsskomir
tnilofunarhringar
Afgnreiddir samdægurs
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI ■ SÍMI 462 3524
I rigningu sem sól
geta vegfarendur í
miðbœnum átt von
á að hittafyrir ungt
fólk sem hefur
skellt sér úr galla-
jakkanum ogfelu-
litabuxunum og
brugðið sér í nœlon-
sloppa og litfagra
búninga - og er þó
hvorki steggur né
gœs...
Götuleikhús Hins hússins hefur
í fjögur ár gert sitt til að
brjöta upp Laugavegsrápið og
miðbæjarröltið með góðum árangri.
Þar sem við stormum ábúðarfull með
geysimikilvægt erindi í bankann að
borga gíróseðilinn frá stöðumæla-
verðinum, eða kaupa nærjur í Kjör-
garði, er léttir að horfa upp á stráka
og stelpur leggjast á götu, sofna á
bekkjum, sletta fótum eða blaðra ein-
hverja vitleysu.
Kolbrún Erna Pétursdóttir hefur
þjálfað hópinn, sem samanstendur af
skólafólki og krökkum í starfsnámi, í
sumar. Leikhópurinn þjálfar á
morgnana og svo hoppa þau út eftir
hádegi svona þegar veður og skapið
leyfir. Fyrirtæki og stofnanir hafa líka
verið dugleg við að panta sýningar
frá hópnum og eru margir krakkarn-
ir orðnir ansi flinkir, segir Kolbrún,
eftir sumarið.
Lúrir hún á steinkantinum.
Gagga og Kristín sátu við að lakka neglur og kynntu sig góðfúslega með Lólóarhreim ellegar -Bibbu. Kvaðst
önnur vera frá „Grundó" og sjá hana Göggu sína alltof sjaldan en svo vildi svo óheppilega til að „við læstum okk-
ur úti, sjáðu til, vorum að redda gúrkum á augun..." Þær báru sig aumlega vinkonurnar, fundu enda engan stiga
þrátt fyrir mikla leit, né neina björgunarkarla. „Þessir karlar eru allir í einhverjum björgunarliðsæfingum," sögðu
þær og dæstu.
GAGGA: Við höfum sem sagt bara „bjútímeiköppið" hérna í sólinni. Annars er þessi maski búinn að vera ansi
lengi en það hlýtur að vera gott fyrir húðina, maður hlýtur bara að verða fjallmyndarlegur."
Hver hefur ekki alltaf þráð að faðma Ijósastaur - en aldrei látið það eftir sér?
Fengu sér kaffipásu á Austurvelli,
Af Hirerju elcki?
Ertu að leita að bifreiðaverkstæði, bókabúð, bólstrun eða...
Af hverju kíkirðu ekki í Gulu bókina? Þjónustuskráin kemur þér skemmtilega á óvart.
Gula bókin sími 520 2000