Dagur - Tíminn Akureyri - 26.07.1997, Blaðsíða 2
2 - Laugardagur 26. júlí 1997
IDagur-'ðHmirat
Mótmæii
Fjölmiðlar
Ragnar Aöalsteinsson, talsmaður Sævars Ciesielski og Sigursteinn Másson höfundur heimildaþáttarins Aðför að
lögum, mættu á fundinn og kröfðust réttlætis. Mynd-.jAK
Réttlæti heimtað!
Fólk mótmælti
hæstarétti og krafð-
ist réttlætis á Lækj-
artorgi í gær.
Tæplega 300 manns komu
saman á Lækjartorgi' í
gær til að mótmæla úr-
skurði Hæstaréttar sem neitaði
í síðustu viku beiðni Sævars Ci-
esielski um endurupptöku Guð-
mundar- og Geirfinnsmáisins.
Yfirskrift fundarins var: Við
krefjumst réttlætis. Greinilegur
var þungur undirtónn í ræðu-
mönnum og listamönnum sem
fram komu á fundinum en hon-
um stjórnaði Hrafn Jökulsson
sem opnaði fundinn með því að
benda á hús hæstarréttar að
Arnarhvoli og segja um leið að
herramennirnir í þessu húsi
haíi verið sammála um það að
Þingmenn Alþýðubandalagsins Svavar Gestsson og Sigríður Jóhannes-
dóttir hlustuðu með athygli á Bubba Morthens syngja Segulstöðvablús.
Svavar ávarpaði fundinn. Myn&.MK
vera ósammála þjóðinni. Bubbi
Morthens kvað hæstarétt hafa í
úrskurði sínum falhst á pynt-
ingar á föngum. Veðrið lék við
fundarmenn því að rétt stytti
upp fyrir fundinn eftir rigningu
allan daginn. rm
Amundi Amundason.
Amundi kaupir
Helgarpóstínn
Amundi Ámundason krafta-
verkamaður á auglýsinga-
deild Alþýðublaðsins hefur
keypt 49.16% í Helgarpóstinum
og ætlar sér meirihluta. Helgar-
pósturinn hefur verið í krögg-
um að undanförnu. Ámundi var
spurður hvort hann hefði keypt
gegnum tengsl Alþýðubanda-
lagsins við HP: „Ég hef alltaf
verið jafnaðarmáður" svaraði
hann og stefnir á föstudagsút-
gáfu. Hann segir að blaðið
muni fylgja nýrri línu og hefur
hugmyndir um samsetningu á
ritstjórn sem hann vill ekki
ræða. Hann stefnir að að vera
kominn með meirihluta um
helgina.
Heiti Potturinn
Iheita pottinum er mikið rætt
um stöðu Hallvarðs Einars-
sonar, ríkissaksóknara, og þá
einkum og sér í lagi fjárhags-
kröggur hans. Sagt er að
Hallvarður vilji hætta þótt tvö
ár vanti upp á að hann hafi
náð löggiltum gamalmenna-
aldri, ef hann fái að halda full-
um launum eins og hæsta-
réttardómarar, en þeir geta
hætt 65 ára á fullu kaupi. Rík-
islögmaður mun víst hafa
komist að þeirri niðurstöðu
að ríkissaksóknari ætti ekki
að sitja við sama borð og
dómarar í þessu efni, heldur
þræla sér út til 67 ára, eins og
flestir launamenn. Nú er fullyrt
í pottinum að dómsmálaráð-
herra hafi pantað nýtt lög-
fræðiálit út í bæ, og þykir það
renna stoðum undir grun um
að dómsmálaráðuneytið vilji
gjarnan að Hallvarður hætti
snemma.
Hafnarfjarðarpólitík er
einnig vinsælt umræðu-
efni í pottinum, enda meiri-
hlutinn þar búinn að hanga á
bláþræði vikum saman. Nú er
staðan sögð á afar viðkvæmu
stigi, en pottormar sem
þekkja til segja að ef Ingvari
Viktorssyni takist að halda
meirihlutanum saman út kjör-
tímabilið, styrki það stöðu
hans innan flokksins veru-
lega. Að sama skapi segja
menn það áfall fyrir Guðmund
Árna Stefánsson, þingmann
krata og varaformann, ef ekki
tekst að slíta meirihlutanum
og stökkva í bólið hjá Alþýðu-
bandalaginu, að ekki sé talað
um áfallið fyrir bæjarfulltrúana
Tryggva Harðarson og Val-
gerði Guðmundssdóttur.
Loðnuveiðar
í slipp á
Akureyri
Tugmilljóna króna tjón varð
á loðnuskipinu Bjarna Ól-
afsyni AK þegar grænlenska
loðnuskipið Ammmasat sigldi á
talsverðri ferð inn í stjórnborð-
síðu þess. Ilún er stórskemmd
og nótagálgi brotnaði af. Gat
kom á stafnhylki Ammasat og
er verið að gera við skipið í
Slippnum á Akureyri.
Reykjavík
Akureyrí
SSA3 SA3 NNA3 V3
SSA3 SA4 SAS VNV4
Stykkishólmur
ANA2 VSV2 SSA2 ANA3 VSV2
VNV3 SSA3 SA4 ASA4
Egilsstaðir
SSV3
SSA3 SA3 NNA3 VNV3
ASA3 ASA4 NNV4
Bolungarvík
SSA3 SSV3 S3 A4 S3
SSA3 S4 SSA5 SSA5
Kirkjubæjarklaustur
.9 Sun Mán Þri Mið mm
15 r " m " 11 r15
10 - ^
S-| lil 111 III l 5
0-
NNA2 A2 SA2 NNA2 NNV2
NA2 A2 A2 . N3
SV2 SSV2 SSA2 NNA2 VSV1
SV2 SSA2 SA3 SV3
Blönduós
Stórhöfði
V1 SSV1 SSA2 NA2 V2
VSV1 SA1 ASA2 N2
SSA3 SSA4 SA4 N4 V5
S3 SSA5 SA6 V5
Línuritin sýna
fjögurra daga
veðurhorfur á
hverjum stað.
Línan sýnir
hitastig,
súluritið 12
tíma úrkomu en
vindáttir og
vindstig eru
tilgreind fyrir
neðan.
Hæg breytileg
A-átt, víðast
skúrir við
suður- og
austurströndina
og á annesjum
fyrir norðan.
Áfram hlýtt í
veðri.
Færð á vegum
Vegir á landinu eru nú yflrleitt greiðfærir. Víða er unnið við vegagerð og
vegfarendur hvattir til að haga akstri samkvæmt merkingum til að forðast
skemmdir á bílum. Vegir um hálendið eru færir bflum, sem eru ætlaðir til slíkra
ferða en gæta þarf sérstakrar varfærni þegar ekið er yfir ár. Vegirnir um Kaldadal
og Kjöl eru þó færir öllum bílum, sé ekið með gát.