Dagur - Tíminn Akureyri - 06.09.1997, Blaðsíða 5
|Dagur-'2Imrimt
Laugardagur 6. september 1997 -17
MENNING OG LISTIR
'v'-" w
• s
Þremur éirum
áundan í skélu
Andrei Ermolinskiy
verður stúdent
nœsta vor eins og
jjölmörg önnur ung-
menni. Hann hefur
þó ákveðna sér-
stöðu. Er ekki nema
sextán ára gamall
og þremur árum á
undan í skóla.
Hann verður því ekki
nema sautján ára þegar
hann byrjar í háskóla. Er
ákveðinn í því að fara strax og
halda áfram námi. Langar mest
til Bandaríkjanna og læra tölv-
unarfræði. Segist ekki vera of
ungur til þess.
Skrítið að flytja til ís-
lands
Andrei er fæddur árið 1981 í
Rússlandi. Hann bjó fyrstu árin
sín í Moskvu, íluttist þaðan til
Úkraínu, þá tU Búdapest í Ung-
verjalandi, loks til Borgarness á
íslandi og núna býr hann á
Akranesi. Flakkið á honum er
tengt starfi föður hans sem er
körfuknattleiksmaður. Andrei
er sonur Alexanders Ermo-
Unskiy sem í dag þjálfar og spU-
ar með liði Akraness í körfu-
bolta.
„Pabbi minn er körfuknatt-
leiksmaður og fékk samning við
Skallagrím í Borgarnesi 1991.
Það er þess vegna sem ég,
mamma, pabbi og bróðir minn
fluttum til íslands.“ Pað hlýtur
að hafa verið frekar undarlegt
fyrir tíu ára gamlan strák frá
Austur- Evrópu að flytja tU ís-
lands. „Það var svolítið skrítið
fyrst. Veðurfar hér er kalt og ég
hafði líka búið í stórborgum aUt
mitt líf, Moskvu og Búdapest.
Borgarnes er ekki stór bær eins
og við vitum þannig að koma
þangað voru töluverð viðbrigði.
Það var frekar skrítið.“
Ellefu ára í 7. bekk
Námsárangur Andrei er fram-
úrskarandi og sjaldan sem
heyrist af krökkum sem eru
mörgum árum á undan í skóla,
sérstaklega á íslandi. Hann seg-
ir að honum hafi alltaf gengið
vel í skóla og haft gaman af því
að læra. Hafi strax farið í
barnaskóla í Borgarnesi. „Ég
var þar í grunnskóla. Var 11
ára og átti að fara í 5. bekk en
byrjaði í 7. bekk.“
Hann segir að það sé vegna
þess að mikill munur sé á
grunnskólastiginu á íslandi og í
Rússlandi. Kennarinn í Borgar-
nesi hafi skoðað kennslubæk-
urnar hans í stærðfræði og
ensku og sagt að best væri fyrir
hann að fara strax í 7 bekk.
Hann ætti ekki heima neðar.
„Þetta hefur verið fínt,“ segir
Andrei. „Það er allt í lagi að
vera þetta langt á undan. Það
venst.“
Fjórtán ára í fram-
haldsskóla
Andrei var því ekki nema Ijór-
tán ára þegar hann kláraði
barnaskóla og hann fór strax í
framhaldsskóla. „Ég er í Fjöl-
braut á Akranesi. Á eftir eitt ár
í stúdentinn, klára hann næsta
vor.“ Þá verður hann sautján
ára. Hefur því tekið framhalds-
skólann á þremur árum.
Þar var nefnilega sama sag-
an. Kennararnir í Fjölbraut á
Akranesi skoðuðu námsbæk-
urnar hans og sögðu að hann
gæti hoppað yfir nokkra byrjun-
aráfangaáfanga. Hann fékk því
45 einingar metnar áður en
hann byrjaði í framhaldsskóla.
Mátti m.a. sleppa stærðfræði,
ensku og eðlisfræði. Það eru
reyndar uppáhaldsfögin hans.
„Ég er á eðlisfræðibraut. Raun-
greinar eiga vel við mig. Mér
finnst þær lang skemmtilegasta
sviðið.“
Sautján ára í háskóla
Tölvurnar eiga hug hans allan.
Hann er ákveðinn í því að læra
tölvunarfræði og einbeitir sér
að því þessa dagana að læra
forritun og allt tengt henni.
„Mig langar að gera þetta að
ævistarfi. Ég finn það vel og
ætla í háskólanám í þessu fagi.“
Hann ætlar sem sagt strax í
háskóla næsta haust en segir
bara spurninguna hvert hann
fari í nám. „Mig langar helst til
Bandaríkjanna. Þar fær maður
góða menntun.“
Andrei er byrjaður að spá í
háskólanám fyrir alvöru. „Ég er
að reyna að gera það núna. Það
er ekki seinna vænna. Það er
hins vegar ekki svo erfitt að
komast inn í háskóla í Banda-
ríkjunum ef maður á 30 þúsund
dollara í vasanum. Ef maður á
þá ekki er þetta erfiðara."
Hann ætlar að reyna að fá
einhverja námsstyrki, hér á
landi eða úti. „Það ætti að vera
ágætur möguleiki," segir hann.
„Sérstaklega þar sem ég er
þetta ungur. Það er víst auð-
veldara.“
Hann er tilbúinn að fara í
háskólanám. Segist ekki vera of
ungur. „Ég get alveg farið að
læra tölvunarfræðina núna.
Held að þetta verði ekkert mál
fyrir mig. Það gæti hins vegar
verið erfiðara að fara í eitthvað
annað nám en hana.“
Honum hefur htið verið strítt
eins og gjarnt er um krakka
sem eru eitthvað öðruvísi. Segir
þó að aðeins hafi borið á því í
Fjölbrautinni þegar hann byrj-
aði enda var hann lang yngstur.
Félagslífið hefur setið á hakan-
um að mestu leyti en hann ger-
ir samt annað en að læra allan
daginn.
Karfan gæti hjálpað
„Ég æfi körfubolta. Pabbi er
leikmaður og þjálfari hér á
Akranesi og ég æfi og spila með
meistaraflokki. Það er mjög
gaman og ég hef mikinn
áhuga.“ Karfan hentar honum
vel enda er Andrei nærri tveir
metrar á hæð. Hann spilaði
hins vegar ekki körfubolta fyrr
en hann fiutti til íslands.
En hann er ekki í boltanum
fyrir pabba sinn þó hann neiti
því ekki að hann hafi fengið
hvatningu frá honum um að
drífa sig í körfuna. „Hún gæti
hjálpað mér upp á það að fá
námsstyrki. Maður getur nefni-
lega oft fengið námsstyrki út á
íþróttir." Það er þess vegna sem
hann ætlar að æfa vel í vetur.
„Það gæti kannski hjálpað mér
upp á framtíðina að standa mig
vel í henni. Best að reyna.“ hbg
Tölvurnar eiga allan hug Andrei.
Hann er ákveðinn i því acf læra
tölvunarfræði og einbeitir sér að
því þessa dagana að læra forritun
og allt tengt henni. „Mig langar að
gera þetta að ævistarfi. Ég finn
það vel og ætla í háskólanám i
þessu fagi.“ Mynd: ohr.
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Stóra sviðið kl. 20
ÞRJÁR SYSTUR eftir Anton Tsjekhof
Þýðing: Ingibjörg Haraidsdóttir
Lýsing: Páll Ragnarsson
Leikmynd og búningar: Vytautas
Narbutas
Tónlist: Faustas Latenas
Leikstjórn: Rimas Tuminas
Leikarar: Steinunn Ólína Þor-
steinsdóttir, Halldóra Björnsdótt-
ir, Edda Arnljótsdóttir, Arnar
Jónsson, Guðrún Gísladóttir,
Baitasar Kormákur, Gunnar Eyj-
ólfsson, Ingvar E. Sigurðsson,
Hilmir Snær Guðnason, Sigurður
Skúlason, Randver Þorláksson,
Stefán Jónsson, Guðrún Steph-
ensen, Sigurður Sigurjónsson.
Frumsýning föd. 19/9 kl. 20,2.
sýn. id. 20/9,3. sýn. sud. 21/9,4.
sýn. fid. 25/9, 5. sýn. sud. 28/9.
Sala og endurnýjun áskriftakorta er
hafin.
Innifalið í áskriftarkorti eru 6 sýningar.
5 sýningar á Stóra sviðinu:
ÞRJÁR SYSTUR -
Anton Tsjekhof
GRANDAVEGUR 7 -
Vigdís Grímsdóttir
HAMLET -
William Shakespeare
ÓSKASTJARNAN-
Birgir Sigurðsson
KRÍTARHRINGURINN í KÁKASUS -
Bertholt Brecht
1 eftirtalinna sýninga að eigin vali:
LISTAVERKIÐ -
Yazmina Reza
KRABBASVALIRNAR -
Marianne Goldman
POPPKORN-
Ben Elton
VORKVÖLD MEÐ KRÓKÓDÍLUM -
Hallgrímur H. Helgason
GAMANSAMI HARMLEIKURINN -
Eve Bonfati og Yves Hunstad
KAFFI -
Bjarni Jónsson
MEIRIGAURAGANGUR -
Ólafur Haukur Símonarson
Almennt verð áskriftarkorta kr. 8.220,-
Eldri borgarar og öryrkjar kr. 6.600,-
Miðasalan er opin alla daga í
september frá kl. 13-20.
Einnig er tekið á móti símapönt-
unum frá kl. 10 virka daga.