Dagur - Tíminn Akureyri - 12.09.1997, Side 6
6 - Föstudagur 12. september 1997
^ctgur-®hrrtmt
Uppstokkun eða orðalagsbreytingar?
'■ Jóhannsdóttir
Stofnfundir Landsbankans
hf. og Búnaðarbankans hf.
voru haldnir í fyrradag og
kosin ný bankaráð og nýir for-
menn. Reyndar er fullmikið í
lagt að tala um ný ráð, því
margir þeirra sem þar sitja,
voru þar fyrir. Það er líka um
það samið að yfirmenn bankans
verða þeir sömu og nú er. Ann-
að starfsfólk á einnig rétt á
sambærilegu starfi á sambæri-
legum kjörum hjá hlutafélögun-
um. Við fyrstu sýn gæti því virst
sem breytingarnar séu varla
meiri en orðalagsbreytingin
ein. Því fer íjarri, segir boðberi
breytinganna, Finnur Ingólfs-
son, viðskiptaráðherra. Hann
segir að framundan séu einar
umfangsmestu breytingar á ís-
lenskum fjármagnsmarkaði í
áraraðir.
Rfkið hyggst draga úr hlut-
deild sinni á þessum markaði,
en mörgum hefur þótt nóg um
hversu fyrirferðarmikið það
hefur verið. Selja á stóran hlut í
fjárfestingabankanum nýja þeg-
ar á næsta ári og hann allan
síðar. Frá og með áramótum
verður ábyrgð ríkisins á rekstri
Landsbanka og Búnaðarbanka
afnumin og keppa þeir þá eftir-
leiðis á jafnréttisgrundvelli við
aðra banka og sparisjóði, sem
lengi hafa gagnrýnt ríkis-
ábyrgðarfyrirkomulagið. Einnig
verður hafinn undirbúningur að
því að auka hlutafé í ríkisvið-
skiptabönkunum og selja einka-
aðilum.
Hrókeringar í banka-
ráðum
Viðskiptaráðherra skipar í
bankaráð hlutafélagabank-
anna, en áður voru bankaráðs-
menn kjörnir hlutfallskosningu
á Alþingi. Ráðherra leitaði eigi
að síður álits formanna A-flokk-
anna og tilnefndu þeir 2 menn í
hvorn banka.
Kjartan Gunnarsson var for-
maður bankaráðs Landsbank-
ans, en Helgi S. Guðmundsson
tekur við af honum enda um
það samið milli stjórnarflokk-
anna að skipta á formanni í
bönkunum tveimur. Pálmi Jóns-
son, fyrrverandi þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, verður for-
maður bankaráðs Búnaðar-
bankans hf.
Einn aðalbankastjóri
Þrír bankastjórar eru í hvorum
banka og svo verður áfram, en
þó í breyttri mynd. Það verður
ráðinn einn aðalbankastjóri og
hann á að fara með megin-
ábyrgð á daglegum rekstri
ásamt tveimur bankastjórum.
Viðskiptaráðherra segir að
þetta sé svipað fyrirkomulag og
í íslandsbanka, nema hvað þar
heiti þeir framkvæmdastjórar
og séu fleiri en bankastjórarnir
í nýju hlutafélagabönkunum.
Þegar hefur verið gengið frá því
að Björgvin Vilmundarson verði
aðalmaðurinn í Landsbankan-
um og Stefán Pálsson í Búnað-
arbankanum. Hinir eru Sólon
Sigurðsson og Jón Adolf Guð-
jónsson í Búnaðarbanka og
Halldór Guðbjarnarson og
Sverrir Hermannsson í Lands-
bankanum. Sverrir er reyndar
kominn á löggiltan ellilífeyris-
aldur og þrátlátur orðrómur
um að hann láti af störfum á
næsta ári og að umsamið sé að
Kjartan Gunnarsson taki við.
Þetta hefur þó ekki fengist stað-
fest.
Gamlir vendir
Máltækið segir að nýir vendir
sópi best og því mætti kannski
draga þá ályktun að það verði
lítið sópað í ríkisviðskiptabönk-
unum. Finnur Ingólfsson lagði á
það áherslu á blaðamannafundi
í fyrradag að það væru banka-
ráðin sem réðu bankastjórana,
rétt eins og hann eða aðrir for-
ystumenn ríkisstjórnarinnar
hefðu ekkert með það að gera.
Hann sagðist hins vegar alveg
sáttur við að hafa sömu menn
áfram. Breytingar á bönkunum
ætti ekki gera í stórum stökk-
um. Verið væri að afnema ríkis-
ábyrgð á rekstri þeirra og því
mikilvægt að fara varlega og
vekja ekki áhyggjur þeirra sem
skipta við þá. Núverandi stjórn-
endur bankans njóti trausts og
séu í trúnaðarsambandi við við-
skipamenn og lánadrottna og
það sé mikilvægt. „Það er ekki
skynsamlegt að gera einhverja
byltingu. Þarna munu auðvitað
eiga sér stað einhverjar breyt-
ingar í framtíðinni og ég bendi
á það að það verður töluverð
endurnýjun í bankaráðunum.
Menn stíga varlega til jarðar til
að tryggja áframhaldandi
traust þeirra, sem hafa við-
skipti við þessi fyrirtæki, á
starfsemi þeirra."
Ekkert nýtt
Gunnlaugur Sigmundsson,
flokksbróðir Finns, er alls ekki
sammála þessu. „Ég vildi að
bönkunum yrði breytt til þess
að ná fram sparnaði þar og
gera þá þannig úr garði að þeir
uppfylltu betur þjónustuhlut-
verk sitt við almenning. Eitt af
því sem nefnt var í því sam-
bandi var að gera yfirstjórnina
skilvirkari og ég taldi einna
mikilvægast í því sambandi að
vera með 1 aðila sem bæri
ábyrgð á þessum rekstri og réði
aðra stjórnendur með sér. „Ég
sé bara ekki að það sé neitt nýtt
að gerast annað en það að
menn hafa lagað samkeppnis-
stöðu annarra fjármálastofnana
gagnvart ríkisviðskiptabönkun-
um með því gera þá að hlutafé-
lögum og taka af þeim ríkis-
ábyrgðina, en það er ekki sjá-
anlegt neitt nýtt sem gerir ríkis-
bankana sem slíka að betri
stofnunum."
Bara orðleikur
Gunnlaugur segir það engu
breyta að einn þriggja banka-
stjóra beri titilinn aðalbanka-
stjóri. „Það er bara orðaleikur. í
dag er bankastjórn sem í eru
bankastjórarnir 3 og einn
þeirra er talsmaður hennar.
Það hefur verið Björgvin í
Landsbankanum og Stefán í
Búnaðarbankanum." Gunn-
laugur segir að íslandsbankinn
hafi geflst upp á þessu 3 stjórna
fyrirkomulagi og valið að gera 1
mann ábyrgan. Það sé afar
mikið unnið með því kerfl. „Og
ég er alveg klár á því að niður-
staðan núna er ekki byggð á
rekstrarlegum sjónarmiðun,
heldur er þetta pólitísk mála-
miðlum."
Bankarnir eru eign almenn-
ings, segir Gunnlaugur, og hann
á kröfu á að vel sé með þá far-
ið. „Og við skulum ekkert
gleyma því að það hafa tapast
milljarðar í þessu bankakerfi."
Launakjörin endur-
skoðuð
Launamál bankastjóra hafa ver-
ið landsmönnum eilíft hneyksl-
unarefni, enda flestir hátt í
milljón króna menn og hafa
fengið sérgreitt fyrir allskonar
viðvik, sem þó hafa verið unnin
í vinnutíma þeirra sem banka-
stjóra. Á þessu á að verða
breyting, samkvæmt þeim
áherslum sem Finnur kynnti.
Bankaráðum hlutafélagabank-
anna er ætlað að setja skýrar
reglur um starfskjör yfirstjórnar
og ákveða heildarlaun í ráðn-
ingarsamningi. í því felst m.a.
að bankastjórar þiggi ekki laun
fyrir setu í stjórnum, nefndum
og ráðum fyrirtækja og stofnana
á vegum viðkomandi banka.
Ólíklegt verður hins vegar að
teljast að topparnir í bönkunum
verði lækkaðir í launum. Hins
vegar virðast þeir eiga að fara
að vinna betur fyrir kaupinu
sínu, ef marka má viðskiptaráð-
herra. „Það er alveg ljóst að
með hlutafélagafyrirkomulaginu
og skráningu á Verðbréfaþingi
verða kröfurnar miklu meiri en
áður til þessara stjórnenda,"
sagði viðskiptaráðherra þegar
hann kynnti breytingarnar.
Hér er líka rétt að riija upp
að Finnur lýsti yfir í umræðum
um bankamálin á þingi að Al-
þingi ætti rétt á upplýsingum
um starfskjör bankastjóra, þótt
bönkunum væri breytt í hlutafé-
lög. En sem kunnugt er taldi
samgönguráðherra sig ekki
geta upplýst þingheim um kjör
yfirmanna Pósts og síma eftir
að þeirri stofnun var breytt í
hlutafélag. Finnur verður ef-
laust minntur á yfírlýsingu sína
eftir áramót.
intgl
T i 1 b o &
Intel pentium
• Intel VX mó&urborð / 512k Cache
• 32Mb EDO vinnsluminni
> 53 Trio PCI skjákort m/2mb
> 15“ vandafiur Philips Digital skjár
> 3,1Gb har&ur diskur
> 24x Hra&a Toshiba geisladrif
> SoundDlaster 16 hljó&kort
> 2x60W hátalarar
> WindowsDS á Geisladisk
> 33600 Innbyggt mótald - fri Internet áskrift
> Lyklaborð, mús og motta til 1-11-97
a&eins 139.900,- stgr.
Rátt verð 158.900,- stgr.
Glerárgata 30 Sími- 461 2290