Dagur - Tíminn Reykjavík - 03.01.1997, Blaðsíða 5
ÍOagur-tEtnthtn
Föstudagur 3. janúar 1997 - 5
F R E T T I R
Akureyri
Svæðisskrifstofan lögð niður
Valgerður Magnúsdóttir félagsmálafulltrúi og Þórgnýr Dýrfjörð, forstöðumaður reynslusveitarfélagsverkefnis Ak-
ureyrarbæjar, aðstoða Bjarna Kristjánsson, framkvæmdastjóra Svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra, við flutning
úr Glerárgötu 26, en skrifstofan hefur verið lögð niður og þjónustan veitt af Akureyrarbæ. Þremenningarnir hafa
verið í verkefnastjórn um yfirtöku á málefnum fatlaðra á Eyjafjarðarsvæðinu. Myn&.as
Nýársdagur markaði
tímamót hjá
félags- og fræðslu-
sviði Akureyrarbæjar
en þá var Svæðis-
skrifstofa um málefni
fatlaðra á
Norðurlandi eystra
lögð niður.
Skrifstofan hefur starfað á
Akureyri frá 1985 til árs-
loka 1996 en Akureyrar-
bær tekur við allri ráðgjafar-
þjónustu við fatlaða á Eyja-
fjarðarsvæðinu í tengslum við
samning við ríkið um hiutverk
bæjarins sem reynslusveitarfé-
lag. Með því
stígur Akur-
eyrarbær
skrefi lengra
en önnur
reynslusveitar-
félög en for-
senda þess var
að þjónusta
Svæðisskrif-
stofu um mál-
efni fatlaðra
væri góð. Frá
áramótum fær-
ast verkefni félagsmálastofnun-
ar undir ráðgjafardeild og verk-
efni sambýlis og öldrunardeild-
ar undir búsetudeild. Á félags-
og fræðslusviði starfa þá at-
vinnudeild, deildarstjóri Rögn-
valdur Símonarson; búsetu-
deild, deildarstjóri Björn Þór-
leifsson; ráðgjafardeild, deild-
arstjóri Guðrún Sigurðardóttir;
leikskóladeild, deildarstjóri
Ingibjörg Eyfells; skóla- og
menningardeild, deildarstjóri
Ingólfur Ármannsson og
íþrótta- og tómstundadeild,
deildarstjóri Eiríkur Björn
Björgvinsson en félagsmála-
stjóri er Valgerður Magnúsdótt-
ir. Hjá félags- og fræðslusviði
eru nú liðlega 600 stöðugildi en
um 2 þúsund manns eru á
launaskrá.
Öll þjónusta verður þrátt fyr-
ir þessar breytingar til staðar
sem áður en með samskipan
fatlaðra við samfélagið verður
hagstæðara að nýta þá fjármuni
betur sem til
málaflokksins
renna og
möguleikar
aukast á auk-
inni þjónustu.
Ný verkefni á
vegum Akur-
eyrarbæjar
sem reynslu-
sveitarfélags
eru auk mál-
efna fatlaðra,
öldrunarþjón-
usta og rekstur heilsugæslu-
stöðvar og koma til þeirra verk-
efna um 600 milljónir króna frá
ríkissjóði. í verkefnisstjórn
vegna yfirtöku á málefnum fatl-
aðra hafa setið frá því í febrú-
armánuði Valgerður Magnús-
dóttir, félagsmálastjóri, Þórgnýr
Dýrfjörð, forstöðumaður
reynslusveitarfélagsverkefnis-
ins og Bjarni Kristjánsson, frá-
farandi framkvæmdastjóri
Svæðisskrifstofu um málefni
fatlaðra, sem tekur senn við
starfi framkvæmdastjóra Svæð-
isskrifstofu málefna fatlaðra í
Reykjavík. GG
Með samskipan
fatlaðra við samfélag-
ið verður hagstæðara
að nýta þá fjármuni
sem til málaflokksins
renna og þjónusta
ætti að aukast.
Austfirðir
Byggðasamlag um
eitt skíðasvæði
Bæjarráð Seyðisijarð-
arkaupstaðar fékk ný-
lega til umsagnar
samning um byggðasamlag
Seyðisfjarðar, Egilsstaða og
Fellabæjar um rekstur og
uppbyggingu skíðasvæða í
Fjarðarheiði auk rekstrar-
áætlunar. Bæjarráð sam-
þykkti eftirfarandi tillögu:
„Bæjarstjórn Seyðisfjarð-
ar samþykkir fyrirbggjandi
samning um byggðasamlag
SeyðisQarðar, Egilsstaða og
Fellabæjar um rekstur og
uppbyggingu skíðasvæða á
Fjarðarheiði. Ennfremur
samþykkir bæjarstjórn
Seyðisíjarðar með tilvísan
til sveitarstjórnarlaga um
byggðasamlög að veita bæj-
arstjóra heimild til að
ábyrgjast lán allt að upp-
hæð 5,3 milljónir króna sem
byggðasamlagið tekur í
Búnaðarbankanum á Egils-
stöðum til kaupa á snjótroð-
ara. Ábyrgðin skiptist milli
aðila í hlutfalli við
íbúafjölda. GG
Akureyri
Jón Hallur til ÚA
Jón Ilallur Pétursson
hefur verið ráðinn for-
stöðumaður fjárhags-
sviðs ÚA frá 1. febrúar nk.
Hann mun hafa með hönd-
um fjármálastjórn, skrif-
stofustjórn auk þess sem
nelaverkstæði og mötuneyti
heyra undir fjárhagssvið.
Jón Hallur er viðskiptafræð-
ingur frá HÍ 1985, starfaði
hjá Deutsche Banki í Saar í
Þýskalandi en hefur verið
framkvæmdastjóri Kaup-
þings Norðurlands frá 1987.
GG
Leiðréttíng
Einhleypur og barnlaus
Ifrétt í blaðinu fyrir áramót
um meint morðmál í ifafn-
arfirði, sagði að Hlöðver
lieitinn Aðalsteinsson hefði
verið fráskilinn. Ilið rótta er að
Hlöðver var alla tíð einhleypur
maður og átti ekki börn.
Dagur-Tíminn leiðréttir
þessa missögn og biðst afsök-
unar á.
Galiup-könnun
Islendingar svart-
sýnir á verkfoll
Mun meiri bjartsýni er
ríkjandi í löndum heims
nú en í fyrra, sam-
kvæmt könnun sem Gallup Int-
ernational lét fara fram í flest-
um löndum heims í byrjun des-
ember. Brasilíumenn eru bjart-
sýnastir allra þjóða og telja
tveir af hverjum þremur þeirra
að hagur þeirra vænkist frá því
sem var í fyrra.
í könnuninni var spurt al-
mennt um mat á högum manna
á þessu ári miðað við síðasta ár,
verkföll og átök á vinnumark-
aði, deilur í alþjóðamálum og
líkum á því að heimsstyrjöld
brjótist út á næstu tíu árum.
Danir eru bjartsýnastir
Norðurlandaþjóða og telja hag
sinn fara batnandi á árinu þó
að þjóðirnar séu reyndar allar
á svipuðu róli hvað bjartsýnina
snertir. íslendingar skera sig þó
úr hópnum því að meirihluti,
eða tæp 60 prósent, telja að
verkföll og deilur á vinnumark-
aði aukist á næsta ári.
íbúar í Hong Kong, sem voru
svartsýnastir allra þjóða í fyrra,
eru mun bjartsýnni nú. Svart-
sýnustu þjóðir eru hins vegar í
Austurríki, Hondúras, Simbab-
we, Ungverjalandi, Tyrklandi og
Slóvakíu. Innan við fimmtungur
þessara þjóða taldi að árið
1997 yrði betra en 1996.
Almennt séð telja þjóðir
heims að deilur í alþjóðamálum
verði meiri á þessu ári en því
síðasta. Sérstaklega eru Evr-
ópubúar svartsýnir á frið á al-
þjóðavettvangi.
-GHS
/ Opinit
s fyrirlestur
Laugardaginn 4. janúar 1997 munu Halldóra Arnar-
dóttir halda opinn fyrirlestur við Háskólann á Akur-
eyri. Hefst fyrirlesturinn kl. 14 og verður í stofu 16 í
húsnæði háskólans við Þingvallastræti 23.
Halldóra Arnardóttir er Akureyringur að uppruna
en hefur dvalið við nám og störf erlendis um tíu ára
skeið. Hún nam listasögu við University of Essex
þaðan sem hún lauk BA prófi. Halldóra lauk síðan
meistaraprófi í sögu nútíma byggingarlistar frá Bart-
lett School of Architecture and Planning, University
College í London.
Fyrirlesturinn sem Halldóra nefnir „Arkitektar
bjóða til veislu“ fjallar um stöðu arkitekta og
hvaða tækniframfarir hafa gert það að verkum að
skynjun manna á veröldinni breytist um Ieið og
heimurinn smækkar. í lok erindisins leiðir Halldóra
hugann að því hvernig lega íslands fær aðra merk-
ingu og möguleikar landsins verða meiri með tilliti
til tækniframfara nútímans.
Fyrirlesturinn er öllum opinn.