Dagur - Tíminn Reykjavík - 03.01.1997, Blaðsíða 12

Dagur - Tíminn Reykjavík - 03.01.1997, Blaðsíða 12
! Föstudagur 3. janúar 1997 Magnús Jónsson veðurfrœðingur Candy uppþvottavél C4810 5 þvottakerfi • Sérstaklega hljóSlátar • Sparnaöarrofi Frábært verb kr. 54.590 KAUPLAND KAU PANGI Sími 462 3565 • Fax 461 1829 Línuritin sýna fjögurra daga veðurhorfur á hverjum stað. Línan sýnir hitastig, súluritið 12 tíma úrkomu en vindáttir og vindstig eru tilgreind fyr- ir neðan. Hæg vestlæg átt eða breytileg átt. Skýjað með lítilsháttar súld á stöku stað vestanlands en þurrt annars staðar og vfðast bjart veður um landið austanvert. Sumsstaðar vægt frost í bjartviðri inn til landsins en annars hiti á bilinu 1 til 5 stig. Næstu vikuna lítur út fyrir suðvestlægt blíðviðri sem ekki er alveg í takt við árstímann en kannski í takt við dagtímann. ■ IÞROTTAMAÐUR ARSINS Jón Amar kjörinn i annað sinn Jón Arnar Magnússon var í gær útnefndur íþróttamað- ur ársins í kjöri Samtaka íþróttafréttamanna. Jón Arnar tók við verðlaunum sínum á Hótel Scandic Loftleiðum í gær- kvöldi. Petta er annað árið í röð sem Jón Arnar hlýtur nafnbót- ina íþróttamaður ársins. Pað sem hæst ber hjá Jóni Arnari á árinu er eflaust frammistaða hans á Ólympíu- Geir Sveinsson leiddi íslenska landsliðið í handknattleik í gegnum riðlakeppni HM. leikunum í Atlanta. Hann hafn- aði í 12. sæti í tugþrautar- keppninni á nýju íslandsmeti, 8274 stigum. Þá varð hann í þriðja sæti á Evrópumeistara- mótinu innanhúss í sjöþraut og bætti eigið íslandsmet í grein- inni. Guðrún Arnardóttir, fijáls- íþróttakona úr Ármanni, hreppti annað sætið. Hún var skammt frá því að komast í úr- slit í 400 m grindahlaupi á Ólympíuleikunum, þar sem hún fékk tíunda besta tímann í greininni. Hún bætti íslands- metið í greininni tvívegis. Geir Sveinsson hafnaði í þriðja sætinu en hann hefur verið styrkasta stoð íslenska handknattleikslandsliðsins á ár- inu. Vala Flosadóttir, sem látið hefm- að sér kveða í stangar- stökki, hafnaði í 4. sæti í kjör- inu. Hún er Evrópumeistari í stangarstökki og á heimsmet í unglingaflokki, bæði utan- og innanhúss. Þessir fjórir íþróttamenn voru í nokkrum sérflokki á ár- inu, sé tekið mið af atkvæða- dreifingunni í kjörinu sem fram hefur farið árlega allar götur frá 1956. Jón Arnar Magnússon, tugþrautarmaður úr UMSS, var kjörinn íþrótta- maður ársins af íþróttafréttamönnum, annað árið í röð. Hér heldur hann á Guðrúnu Arnardóttur sem náði mjög góðum árangri á árinu og hafnaði í öðru sæti í kjörinu. Mymj. sgs Þau fengu atkvæði i kjörinu á íþróttamanni ársins Alls fengu 32 íþróttamenn atkvæði í kjörinu á íþróttamanni ársins sem kjörinn var af íþróttafréttamönnum og skiptust atkvæðin þannig. Þeir íþróttamenn sem höfnuðu í tíu efstu sætunum fengu að launum veglega bókagjöf frá Máli & Menningu og þeir þrír efstu fengu auk þess verðlaunagripi til eignar. 1. Jón Arnar Magnússon, frjálsíþróttamaður úr UMSS 335 2. Guðrún Arnardóttir, frjálsíþróttakona úr Ármanni 310 3. Geir Sveinsson, handknattleiksmaður með Montpellier 240 4. Vala Flosadóttir, frjálsíþróttakona úr MAI/ÍR 240 5. Birgir Leifur Hafþórsson, kylfmgur úr Leyni 91 6. Birkir Kristinsson, knattspyrnumaður úr Brann 64 7. Teitur Örlygsson, körfuknattleiksmaður Njarðvík/Larissa 43 8. Kristinn Björnsson, skíðamaður úr Leiftri 34 9. Ólafur Þórðarson, knattspyrnumaður úr ÍA 33 10. Kristín Rós Hákonardóttir, sundkona úr ÍFR 32 11. Dagur Sigurðsson handknattleiksmaður úr Val/Wupperthal 28 12. Vernharð Þorleifsson, júdómaður úr KA 24 13. Rúnar Alexandersson, fimleikmaður úr Gerplu 17 14. Kristján Helgason, snókerspilari 12 15. -16. Bjarni Guðjónsson, knattspyrnumaður með ÍA 11 15.-16. Julian Róbert Duranona, handknattleiksmaður með KA 11 17.-18. Ásthildur Helgadóttir, knattspyrnukona úr Breiðablik 10 17.-18. Eydís Konráðsdóttir, sundkona úr SFS 10 19. Nína Björg Magnúsdóttir, fimleikakona úr Björk 9 20. -21. Ólafur Eiríksson, sundmaður úr ÍFR 6 20.-21. Þórður Guðjónsson, knattspyrnumaður með Bochum 6 Aðrir sem fengu atkvæði í kjörinu: 22.-24. Gunnar Oddsson, knattspyrnumaður með Leiftri, Haraldur Ingólfsson, knattspyrnumaður með ÍA/Aberdeen og Vanda Sigur- geirsdóttir, knattspyrnukona með Breiðablik - öll með fimm at- kvæði, 25.-28. Guðmundur Hrafnkelsson, handknattleiksmaður með Val, Guðni Bergsson, knattspyrnumaður með Bolton, Heimir Guðjónsson, knattspyrnumaður úr KR og Karen Sævarsdóttir, kylf- ingur úr Golfklúbbi Suðurnesja, öll með íjögur atkvæði. 29. Martha Ernstdóttir frjálsíþróttakona úr ÍR þrjú atkvæði, 30.31. Bjarki Sig- urðsson, handknattleiksmaður úr Áftureldingu, og Guðmundur Stephensen, borðtennismaður úr Víkingi, hlutu sitthvort atkvæðið í kjörinu.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.