Dagur - Tíminn Reykjavík - 03.01.1997, Side 12
!
Föstudagur 3. janúar 1997
Magnús
Jónsson
veðurfrœðingur
Candy
uppþvottavél C4810
5 þvottakerfi • Sérstaklega
hljóSlátar • Sparnaöarrofi
Frábært verb kr. 54.590
KAUPLAND
KAU PANGI
Sími 462 3565 • Fax 461 1829
Línuritin sýna fjögurra
daga veðurhorfur á
hverjum stað. Línan sýnir
hitastig, súluritið 12 tíma
úrkomu en vindáttir og
vindstig eru tilgreind fyr-
ir neðan.
Hæg vestlæg átt eða breytileg átt.
Skýjað með lítilsháttar súld á
stöku stað vestanlands en þurrt
annars staðar og vfðast bjart
veður um landið austanvert.
Sumsstaðar vægt frost í bjartviðri
inn til landsins en annars hiti á
bilinu 1 til 5 stig. Næstu vikuna
lítur út fyrir suðvestlægt blíðviðri
sem ekki er alveg í takt við
árstímann en kannski í takt
við dagtímann.
■
IÞROTTAMAÐUR ARSINS
Jón Amar kjörinn i annað sinn
Jón Arnar Magnússon var í
gær útnefndur íþróttamað-
ur ársins í kjöri Samtaka
íþróttafréttamanna. Jón Arnar
tók við verðlaunum sínum á
Hótel Scandic Loftleiðum í gær-
kvöldi. Petta er annað árið í röð
sem Jón Arnar hlýtur nafnbót-
ina íþróttamaður ársins.
Pað sem hæst ber hjá Jóni
Arnari á árinu er eflaust
frammistaða hans á Ólympíu-
Geir Sveinsson leiddi íslenska
landsliðið í handknattleik í gegnum
riðlakeppni HM.
leikunum í Atlanta. Hann hafn-
aði í 12. sæti í tugþrautar-
keppninni á nýju íslandsmeti,
8274 stigum. Þá varð hann í
þriðja sæti á Evrópumeistara-
mótinu innanhúss í sjöþraut og
bætti eigið íslandsmet í grein-
inni.
Guðrún Arnardóttir, fijáls-
íþróttakona úr Ármanni,
hreppti annað sætið. Hún var
skammt frá því að komast í úr-
slit í 400 m grindahlaupi á
Ólympíuleikunum, þar sem hún
fékk tíunda besta tímann í
greininni. Hún bætti íslands-
metið í greininni tvívegis.
Geir Sveinsson hafnaði í
þriðja sætinu en hann hefur
verið styrkasta stoð íslenska
handknattleikslandsliðsins á ár-
inu.
Vala Flosadóttir, sem látið
hefm- að sér kveða í stangar-
stökki, hafnaði í 4. sæti í kjör-
inu. Hún er Evrópumeistari í
stangarstökki og á heimsmet í
unglingaflokki, bæði utan- og
innanhúss.
Þessir fjórir íþróttamenn
voru í nokkrum sérflokki á ár-
inu, sé tekið mið af atkvæða-
dreifingunni í kjörinu sem fram
hefur farið árlega allar götur
frá 1956.
Jón Arnar Magnússon, tugþrautarmaður úr UMSS, var kjörinn íþrótta-
maður ársins af íþróttafréttamönnum, annað árið í röð. Hér heldur hann á
Guðrúnu Arnardóttur sem náði mjög góðum árangri á árinu og hafnaði í
öðru sæti í kjörinu. Mymj. sgs
Þau fengu atkvæði i kjörinu
á íþróttamanni ársins
Alls fengu 32 íþróttamenn atkvæði í kjörinu á íþróttamanni
ársins sem kjörinn var af íþróttafréttamönnum og skiptust
atkvæðin þannig.
Þeir íþróttamenn sem höfnuðu í tíu efstu sætunum fengu að
launum veglega bókagjöf frá Máli & Menningu og þeir þrír efstu
fengu auk þess verðlaunagripi til eignar.
1. Jón Arnar Magnússon, frjálsíþróttamaður úr UMSS 335
2. Guðrún Arnardóttir, frjálsíþróttakona úr Ármanni 310
3. Geir Sveinsson, handknattleiksmaður með Montpellier 240
4. Vala Flosadóttir, frjálsíþróttakona úr MAI/ÍR 240
5. Birgir Leifur Hafþórsson, kylfmgur úr Leyni 91
6. Birkir Kristinsson, knattspyrnumaður úr Brann 64
7. Teitur Örlygsson, körfuknattleiksmaður Njarðvík/Larissa 43
8. Kristinn Björnsson, skíðamaður úr Leiftri 34
9. Ólafur Þórðarson, knattspyrnumaður úr ÍA 33
10. Kristín Rós Hákonardóttir, sundkona úr ÍFR 32
11. Dagur Sigurðsson handknattleiksmaður úr Val/Wupperthal 28
12. Vernharð Þorleifsson, júdómaður úr KA 24
13. Rúnar Alexandersson, fimleikmaður úr Gerplu 17
14. Kristján Helgason, snókerspilari 12
15. -16. Bjarni Guðjónsson, knattspyrnumaður með ÍA 11
15.-16. Julian Róbert Duranona, handknattleiksmaður með KA 11
17.-18. Ásthildur Helgadóttir, knattspyrnukona úr Breiðablik 10
17.-18. Eydís Konráðsdóttir, sundkona úr SFS 10
19. Nína Björg Magnúsdóttir, fimleikakona úr Björk 9
20. -21. Ólafur Eiríksson, sundmaður úr ÍFR 6
20.-21. Þórður Guðjónsson, knattspyrnumaður með Bochum 6
Aðrir sem fengu atkvæði í kjörinu:
22.-24. Gunnar Oddsson, knattspyrnumaður með Leiftri, Haraldur
Ingólfsson, knattspyrnumaður með ÍA/Aberdeen og Vanda Sigur-
geirsdóttir, knattspyrnukona með Breiðablik - öll með fimm at-
kvæði, 25.-28. Guðmundur Hrafnkelsson, handknattleiksmaður
með Val, Guðni Bergsson, knattspyrnumaður með Bolton, Heimir
Guðjónsson, knattspyrnumaður úr KR og Karen Sævarsdóttir, kylf-
ingur úr Golfklúbbi Suðurnesja, öll með íjögur atkvæði. 29. Martha
Ernstdóttir frjálsíþróttakona úr ÍR þrjú atkvæði, 30.31. Bjarki Sig-
urðsson, handknattleiksmaður úr Áftureldingu, og Guðmundur
Stephensen, borðtennismaður úr Víkingi, hlutu sitthvort atkvæðið í
kjörinu.