Dagur - Tíminn Reykjavík - 03.01.1997, Blaðsíða 4

Dagur - Tíminn Reykjavík - 03.01.1997, Blaðsíða 4
4 - Föstudagur 3. janúar 1997 |Dagur-®mthm Menntamálaráðuneytið Laust embætti Embætti forstöðumanns Listasafns íslands er laust til umsóknar. Samkvæmt 4. gr. laga nr. 58/1988, um Listasafn ís- lands, eru gerðar þær hæfniskröfur til forstöðumanns að hann hafi sérfræðilega menntun og staðgóða þekk- ingu á myndlist og rekstri listasafna. Skipað verður í embættið til fimm ára frá 1. mars 1997 að telja. Um laun og starfskjör fer eftir ákvörðun kjara- nefndar, sbr. lög 120/1992, um Kjaradóm og kjara- nefnd, með síðari breytingum. Umsóknir með ýtarlegum upplýsingum um menntun og störf skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, Sölv- hólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 1. febrúar 1997. Menntamálaráðuneytið, 30. desember 1996. NÁTTÚRUVERNDARRÁÐ Viöauki I Hagsmunaaðilar, félagasamtök og stofnanir með sæti á Náttúruverndarþingi 1997 Alþýðusamband íslands • Arkitektafélag íslands • Bandalag íslenskra farfugla • Bandalag is- lenskra skáta • Bændasamtök íslands • CAFF skrifstofan á íslandi • Ferðafélag islands Ferðafélagið Útivist • Ferðaklúbburinn 4x4 • Ferðamálaráð • Ferðaþjónusta bænda • Félag áhugafólks um hálendi Austurlands • Félag eigenda sumardvalarsvæða • Félag íslenskra landslagsarkitekta • Félag íslenskra náttúrufræðinga • Félag landfræðinga • Félag leiðsögu- manna • Fjallið (Hagsmunafélag jarð- og landfræðinema) • Framtíðarstofnun • Flugmálasljórn Fuglaverndarfélag íslands • Geislavarnir ríkisins • Hellarannsóknarfélag íslands • Hafrannsókn- arstofnunin • Haxi (hagsmunafélag líffræðinema) • Háskóli islands • Hið islenska náttúrufræði- félag • Hollustuvemd ríkisins • Jarðfræöafélag islands • Jöklarannsóknafélag íslands Kennarasamband islands • Kvenfélagasamband Islands • Landgræðsla ríkisins • Landlæknis- embættið • Landmælingar íslands • Landssamband hestamannaféiaga • Landssamband ís- lenskra vélsleðamanna • Landssamband stangveiðifélaga • Landssamband veiðifélaga Landssamtökin Lif og land • Landsvirkjun • Landvarðafélag íslands • LandverndLiffræðifélag islands • Líffræðistofnun Háskólans • Náttúruvernd rikisins • Náttúruverndarfélag Suðvestur- lands • Náttúruverndarsamtðk Austurlands • Náttúruverndarsamtök Suöurlands • Náttúruvernd- arsamtök Vesturlands • Orkustofnun • Náttúmfræðistofa Kópavogs • Náttúrurannsóknarstöðin við Mývatn • Rafmagnsveitur ríkisins • Rannsóknaráð íslands • Rannsóknastofnun landbúnað- arins • Raunvísindastofnun Háskólans • Samband dýraverridarfélaga islands • Samband ís- lenskra sveitarfélaga • Samlff (Samtök líffræðikennara) • Samtðk um náttúruvemd á Norður- landi • Samtðk um umhverfismál og náttúruvemd • Siðfræðistofnun Háskólans • Siglingastofn- un islands • Sjálfboðaliðasamtök um náttúruvemd • Skipulag rfkisins • Skotveiðifélag Islands Skógrækt ríkisins • Skógræktarfélag islands • Surtseyjarfélagið • Ungmennafélag Islands Vegagerðin • Veiðimálastofnun • Veiðistjóraembættið • Veðurstofan • Verkfræðingafélag ís- lands • Verkfræðistofnun Háskólans • Vestfirsk náttúruverndarsamtök • Vinnueftiriit ríkisins Vinnuveitendasamband islands • Vísindafélag íslendinga • Yfirdýralæknisembættiö • Þjóð- minjasafn • Æðarræktarfélag islands • Æskulýðssamband íslands Náttúruverndarráð bendir þeim sem telja sig eiga seturétt á Náttúruvernd- arþingi en er ekki getið í ofangreindum reglum að hafa samband við skrif- stofu Náttúruverndar ríkisins, Hlemmi 3, pósthólf 5324, 125 Fteykjavík, fyr- ir upphaf Náttúruverndarþings. Náttúruverndarráð. 9. Náttúruverndarþing verður haldið dagana 31. janúar og 1. febrúar 1997 að Hótel Loftleiöum. Hlutverk þingsins er að fjalla um náttúruvernd og kjósa fulltrúa í Náttúruverndarráð. Samkvæmt ákvæðum laga nr. 93/1996 um náttúruvernd hefur Náttúru- verndarráð samið eftirfarandi reglur um Náttúruverndarþing. 1. gr. í samræmi við ákvæði laga nr. 93/1996 um náttúruvernd verður Náttúru- verndarþing haldið dagana 31. janúar og 1. febrúar 1997 að Hótel Loft- leiöum, Reykjavík. Hlutverk þess er að fjalla um náttúruvernd og kjósa full- trúa í Náttúruverndarráð. 2. gr. Á Náttúruverndarþingi eiga sæti: A. Með fullum réttindum: 1. Náttúruverndarráð. 2. Fullfrúi frá hverju setri Náttúrufræðistofnunar íslands. 3. Fulltrúi frá hverri náttúrustofu. 4. Fulltrúi kjörinn af hverri náttúruverndamefnd. 5. Einn fulltrúi fyrir hvem eftirfarandi hagsmunaaöila, félagasamtaka og stofn- ana: (sjá viðauka 1). B. Með málfrelsi og tillögurétt. 1. Einn fulltrúi fyrir hvert ráðuneyti. 2. Einn fulltrúi fyrir hvern þingflokk á Alþingi. 3. Forstjóri Náttúruvemdar ríkisins, forstjóri Náttúrufræðistofnunar íslands, þjóð- garðsverðir. 3. gr. Náttúruverndarráð undirbýr Náttúruverndarþing og leggur fyrir það skýrslu um störf sín. Formaður ráðsins setur þingið og stýrir því uns það hefur kosið sér forseta. Þingið setur sér þingsköp. Seta á náttúruverndarþingi er ólaunuð, en hlutaðeigandi aðilar greiða kostnað fulltrúa. Annar nauðsynlegur kostnaður af þinghaldinu greiðist úr ríkissjóði samkvæmt úrskurði umhverfisráöherra. 4. gr. Náttúruverndarráð er skipað níu mönnum. Umhverfisráðherra skipar sex þeirra í upphafi náttúruverndarþings, fimm að fengnum tillögum Náttúru- fræðistofnunar islands, Háskóla (slands, Bændasamtaka íslands, Ferða- málaráðs og skipulagsstjóra ríkisins og einn án tilnefningar og skal hann vera formaður ráðsins. Þrjá þeirra kýs Náttúruverndarþing. Varamenn eru skipaðir og kosnir með sama hætti. 5. gr. Reglur þessar eru settar með vísan til laga nr. 93/1996 um náttúruvernd og öðlast þegar gildi. Reykjavík, 30. desember 1996, Náttúruvemdarráð, Arnþór Garðarsson - Kristján Geirsson. F R E T T I R Skagafjörður I Heímalöndin kort- lögð á 147 jörðum Hólar í Hjaltadal. Þar verður miðstöð hinnar nýju fræðslu- og leiðbeiningarþjónustu. Þróun, fræðsla og leið- beiningar um vörslu, meðferð, ræktun og landnotkun í víðasta skilningi ásamt aukinni þekkingu á sögulegum, menningarlegum og nátturulegum landgæð- um er markmið nýs samstarfssamnings. m áramót hófst samn- ingsbundið samstarf Hólaskóla, Landgræðslu ríkisins, Skógræktar ríkisins og Búnaðarsambands Skagfirðinga um þróun, fræðslu og leiðbein- ingar til bænda, vísindamanna og annarra hagsmunaaðila og áhugafólks á sviði landgræðslu, skógræktar og íjölþættrar land- notkunar. Vegna þessa verður ráðinn sérstakur starfsmaður með aðsetur í Hólaskóla sem leggur honum til starfsaðstöðu ásamt hálfum launum á móti 25% frá Landgræðslunni, en Skógræktin og Búnaðarsam- bandið skipta með sér þeim 25% sem þá vantar. Hluti samstarfsverkefnisins er kortlagning heimalanda 147 jarða í Skagafirði. Sú vinna er raunar þegar hafin og áætlað að henni ljúki 1998. Þróun í gerð landnýtingarkorta er með- al helstu verkefna sem tengjast almennri landnotkun, ásamt gerð nýtingarkorta fyrir ár og vötn og staðbundinna örnefna- korta. Sömuleiðis ráðgjöf til bænda og annarra hagsmuna- aðila um mat landgæða og nýt- ingu þeirra og eftirlits með beitarálagi og ástandi haga, einkum á Norðurlandi vestra. Verkefni tengd landgræðslu fel- ast í umsjón með landgræðslu- framkvæmdum og ráðgjöf til bænda og annars áhugafólks á Nl. vestra, m.a. verkefninu „Bændur græða landið". Einnig aðstoð til bænda við gerð land- græðsluáætlana fyrir einstakar jarðir. Skógræktarverkefnin felast í kortagerð á skógræktarskilyrð- um, ásamt áætlanagerð og eft- irliti með nytjaskógrækt á bú- jörðum, skráningu á skógi og skógarminjum og almennri ráð- gjöf um skógrækt og gildi henn- ar. Skipulagning, rannsóknir og tilraunir varðandi landgræðslu, skógrækt og fjölþætta landnotk- un á vegum Ilólaskóla er meðal verkefna sem tengjast fræðslu, ásamt kennslu, endurmenntun og námskeiðahaldi fyrir nem- endur skólans, jafnt sem bænd- ur og annað áhugafólk. Framangreind verkefni verða unnin í nánu samráði við ráðuneyti, búnaðarsambönd, sveitarfélög, stofnanir, félög, bændur og aðra einstaklinga. Hagstofan Um helmingur nýju íbúanna í Kópavogi Nær helmingur allr- ar fólksfjölgunar í landinu er í Kópa- vogi, nær 900 manns, en fólks- fækkun varð í öllum landsbyggðarkjör- dæmunum. _ búum höfuðborgarsvæðisins fjölgaði rnn tæplega 2.700 milli ára en íbúum landsins aðeins um rúmlega 1.900, sem þýðir að fólki búsettu utan höf- uðborgarsvæðisins fækkaði alls um nærri 800 manns. Fækkun varð í öllum landshlutum nema á Suðurnesjum, þar sem íbúa- fjöldi stóð næstum í stað. Nærri helmingur allrar fólksfjölgunar í landinu milli 1995 og 1996 varð í Kópavogi, eða tæplega 900 manns. Reykvíkingum Qölgaði um rúmlega 1.200 og Hafnfirðingum um 400 manns. Hlutdeild landsbyggðarinnar af öllum íbúum landsins hefur á einum ártug lækkað úr 45% niður í um 40%. Frá 1. desem- ber í fyrra hefur fólki m.a.s. fækkað í beinum tölum á flest- um þéttbýlisstöðum á lands- byggðinni. Akureyringum fjölg- aði að vísu um nærri 90 manns og h'tils háttar fjölgun varð einnig í Bolungarvík, Súðavík, Dalvík, Húsavík, Egilsstöðum, Eskifirði, Hvolsvelh, Hellu og Selfossi. Hlutfallsleg fólksfækk- un varð aftur á móti mjög mikil í Hnífsdal (18%), Hofsósi (11%) og Grímsey (13%), en mjög víða á bilinu 3-7% milb ára. Hag- stofan áætlar, í bráðabirgðatöl- um, að um 4.300 börn fæðist á landinu í ár, álíka mörg og árið áður og um 2.400 fleiri heldur en kvöddu þetta líf (1.900) á ár- inu. Ef fæðingatíðni yrði hin sama til frambúðar yrðu ófædd- ar kynslóðir jafn fjölmennar og kynslóð foreldranna. Um 4.300 manns hafa flutt frá landinu á umliðnu ári, álíka margir og árið á undan. Til landsins fluttu hins vegar um 3.800 manns, eða um 900 fleiri en árið á undan og hafa raunar aðeins tvisvar áður svo margir flutt til landsins. Undanfarin ár hafa fleiri erlendir ríkisborgar- ar flutt til landsins en frá land- inu. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÞÓREY ÁSMUNDSDÓTTIR, Háteigsvegi 9, lést aðfararnótt 31. desember. Sólveig Steingrfmsdóttir, Birgir Jensson. Svava Ásdís Steingrímsdóttir, Ágúst Már Sigurðsson. Guðrún Steingrímsdóttir, Sigurður Ásgeirsson. Edda Hrönn Steingrímsdóttir, Ásgeir H. Ingvarsson. Alda Steingrímsdóttir, Oddur Eiríksson. Kolbrún Lind Steingrímsdóttir, Jóhannes Eiríksson. Rósa Steingrímsdóttir. Guðmundur B. Jósepsson og barnabörn.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.