Dagur - Tíminn Reykjavík - 07.01.1997, Qupperneq 2

Dagur - Tíminn Reykjavík - 07.01.1997, Qupperneq 2
2 - Þridjudagur 7. janúar 1997 Jlagur-®mrátn Heiti Potturinn Ær Ipottinum í gær voru mættir nokkrir Vest- mannaeyingar sem sögðu sögur af stórkostlegum flug- eldasýningum þar um ára- mótin. í Eyjum hefur komið upp mikill metingur milli út- gerðarmanna og skipstjór- anna, og vakta þeir vel hvað hinir eru að kaupa til að skjóta upp. Enginn vill vera eftirbátur kollega sinna. Út- koman er eins og í öllum „vopnakapphlaupum" gríð- arleg uppsöfnun skotelda sem fara allir í loftið á gaml- árskvöld. Hermt er að til um- ræðu hafi komið hjá bæjaryf- irvöldum að heimta sérstakt sorphirðugjald af skipstjór- um og útgerðarmönnum vegna stóraukins sorp- magns.... Kaupmaðurinn í pottin- um sagði í gær frá því að kaupmenn séu búnir að senda Neytendasamtökun- um athugasemdir um hvern- ig eigi að gera stórar verð- kannanir, en mikill hasar reis út af málinu í desember. Meðal þess sem kaupmenn vilja að gert sé er að könn- unin sé gerð í sem flestum verslunum samtímis. Þá vilja kaupmenn að vörurnar séu tindar í innkaupakerru og könnunarmaðurinn hegði sér eins og hver annar viðskipta- vinur og fari að kassa. En það er síðasta krafa kaup- manna sem vekur athygli, en hún er að þeim fjölmiðlum sem ekki segja frá könnun- inni samkvæmt réttum fyrir- framákveðnum reglum verði refsað með því að láta þá ekki fá niðurstöðurnar úr næstu könnun. Þetta segja pottverjar hámark bjartsýn- innar - enginn fjölmiðill láti stýra sér utan úr bæ. FRÉTTIR, Reykjavík Víða um land byrjuðu menn að taka niður jólaskrautið í gær Snjómokstursliðið nú á fullu í söfnun jólatrjáa Jólatrén endurnýtt en fólk sem dregur jafnvel vikum sam- an að losa sig við trén veldur hreins- unarmönnum mest- um erfiðleikum við söfnunina Starfsmenn gatnamálastjór- ans í Reykjavík byrjuðu í morgun að safna jólatrjám sem borgarbúum hefur verið bent á að setja út fyrir lóða- mörkin hjá sér. „Við vildum gjarnan ljúka þessari söfnun sem allra mest og helst að fullu á 2-3 dögum. En það sem hefur kannski valdið okkur mestum erfiðleikum er þegar fólk er að draga það jafnvel vikum saman að koma frá sér jólatrjánum og lætur þau síðan út fyrir lóða- mörk. Það er ákaflega óþægi- legt að þurfa að koma aftur og aftur í sömu götuna eftir jófa- trjám, viku eftir viku,“ sagði Sigurður Skarphéðinsson gatnamálastjóri. Þau 25-30 þúsund jólatré sem prýtt hafa stofur borgarbúa um jólin verða aftur að gróðurmold. Sigurður sagði drjúgan hluta starfsmanna sinna nú fara í þetta verkefni. Um 10-12 manns í hverju bæjarhverfi eða alfs milli 40 og 50 manns, sem muni sinna söfnun jólatrjáa mikinn hluta vinnutíma síns í þessari viku. Þetta eru menn sem annast aimennt viðhafd og rekstur á gatnakerfi borgarinn- ar, og eru því oft önnum kafnir við snjómokstur eða söltun gatna á þessum árstíma. „En þegar veðurfarið er eins og nú er þörf á slíku eðlilega í algjöru lágmarki og því getum við beitt öllu okkar liði í þetta verk að þessu sinni,“ sagði Sigurður. Trén segir hann að veruleg- um hluta endurnýtt. Farið er með þau upp í Gufunes á svæði gömlu sorphauganna, þar sem trén eru kurluð niður og notuð sem stoðefni við jarðvegsgerð. íblöndun efnis eins og tréflísa sé nauðsynleg þegar verið sé að jarðgera gras og slíkan úrgang sem til fellur í borgarlandinu. Þannig að jólatrén séu afveg kjörin í þetta. Spurður um áætlaðan ijölda bendir Sigurður á að jólatré í einhverju formi séu væntanlega á vel flestum af u.þ.b. 40 þús- und heimilum í borginni. „Þannig að 25-30 þúsund tré kæmu mér ekki á óvart,“ segir gatnamálastjóri. Keflavík Laus úr haldi Maðurinn sem veitti ung- um manni alvarlega áverka með dúkahníf í Keflavík á nýársnótt var lát- inn laus úr gæsluvarðhaldi í fyrradag. Að sögn Þóris Maronssonar, yfirlögreglu- þjóns í Keflavík, er máhð að miklu leyti rannsakað og er það ástæða þess að mannin- um er sleppt nú. M.a. hefur verið reynt að feiða til lykta hver átt hafi upptökin. Hvað sakamálið í Sand- gerði varðar, þar sem maður er grunaður um að hafa banað sambýlismanni móð- ur sinnar, segir Þórir að rannsókn miði eðlilega. BÞ Þingvellir Hætt koniiini við köfun Maður um tvítugt var hætt kominn í gjánni Silfru á ÞingvöUum sl. sunnudag, en hann var þar að kafa ásamt köfunarkenn- ara. Það var súrefnisútbún- aður sem brást þegar mað- urinn var í kafi á um 20 metra dýpi. Köfunarkennar- anum tókst að koma mann- inum upp úr gjánni. Lög- regla og sjúkralið voru kvödd á vettvang og maður- inn fluttur á sjúkrahús Reykjavíkur þar sem hlúð var að honum. Stranglega er bannað að kafa í gjám á Þingvöllum á þessum árstíma, en til köf- unar á Þingvöllum þarf sér- stakt leyfi sem aðeins er veitt yfir sumarmánuðina. FRÉTTAVIÐTALIÐ „Skilyrði fyrir styrk er samruni" Guðmundur Malmquist forstjóri Byggðastofnunar Alvarlegt atvinnuástand á Þingeyri sem tengist lokun frystihúss Fáfiiis hf. hefur mjög verið í sviðsljósinu. Fyrirtækið gekk gegnum nauða- samninga árið 1995 þar sem boðin var 20% greiðsla og eins hefur Byggðastofnun komið að lausn vandans með því m.a. að leggja til 18,2 milljónir króna til greiðslu á for- gangskröfum; 11,6 milljónir króna til að greiða fyrir frjálsum nauðasamn- ingum og 12 milljónir króna til að breyta lánum í hlutafé. Guðmundur Malmquist, forstjóri Byggðastofnunar, segir að rekja megi upphaf vandans til nýbyggingar togara í Slippstöðinni hf. á Akureyri 1986, eitt svokallaðra „dollaraskipa". Þau skip sem byggð voru á svipuðum tíma hafa öll verið seld á nauðungaruppboði, m.a. skip sem fóru til Húsavíkur og Grundar- Ijarðar. Verið er að tala um að koma bol- jiskvinnslunni af stað aftur þrátt fyrir að hún sé rekin í dag með 12% halla. Ætlar Byggðastofnun að veita fé til þess? „Nei, Byggðastofnun veitir ekki rekstrarstyrki. Þegar Vísir hf. í Grindavík sýndi rekstrinum áhuga á sínum tíma, velti Byggðastofnun því fyrir sér með hvaða hætti hún gæti komið að því fyrir hönd heimamanna til að gera dæmið fýsilegt fyrir Vísi hf. sem hafði aflaheimildir og möguleika á vinnslu bæði á Þingeyri og í Grinda- vík. Það gekk ekki eftir þar sem þeim þótti skuldsetningin of mikil. Þegar rætt er um að það þurfti allt að 400 milljónir króna til að „bjarga" fyrir- tækinu er einnig verið að ræða um töluverð kvótakaup. Byggðastofnun hefur samþykkt að bjóða fram styrk til að létta af skuldum af fyrirtækinu, eða 30 milljónir króna, en hann er skilyrtur þannig að þarna heíjist aftur starfseini á fullum krafti til framtíðar. Það gerist með samruna eða samein- ingu eða að annað félag kaupi eignir Fáfnis hf. og við höfum verið að vona að hið nýja Básafell hf. á ísafirði skoði það mál af alvöru. Það hefur ekkert svar borist við því en við höfum átt viðræður við forsvarsmenn Olíufélags- ins og íslenskra sjávarafurða um það mál. Það er erfitt að reka á Þingeyri frystihús og ætla að byggja hráefnis- öflunina einvörðungu á kaupum á mörkuðum. Á Þingeyri hefur verið sáralítið um aðkomufólk þar sem heimamenn hafa mannað allar lausar stöður í frysti- húsinu og á skipunum. Á sama tíma hafa aðrir staðir á Vostíjörðum verið með töluvert af aðkomufólki. Það er umhugsunarvert," sagði Guðmundur Malmquist. GG

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.