Dagur - Tíminn Reykjavík - 07.01.1997, Side 7
CLagur-®mtmn
Þriðjudagur 7. janúar 1997 - 7
ERLENDAR FRÉTTIR
Téténía
Pólland
Síðustu Rússarnir farnir
Rússnesld herinn lauk
brottflutningi sínum Jrá
Téténíu á sunnudag.
Brottflutningi rússneska herafl-
ans í Téténíu lauk á sunnudag-
inn þegar síðustu hermennirnir
yfírgáfu landið, rúmum tveimur
árum eftir að stríðið þar hófst.
Brottflutningurinn var liður í
friðarsamkomulagi sem gert
var í ágúst sl. milli stjómarinn-
ar í Moskvu og aðskilnaðar-
sinna í Tétém'u, og var við það
miðað að heraflinn væri farinn
áður en kosningar fara fram í
héraðinu þann 27. janúar nk.
Stríðið hófst í desember árið
1994 þegar stjórnin í Kreml
sendi herlið til stuðnings
téténskum stjórnarandstöðu-
hópum, sem voru andvígir að-
skilnaðarhugmyndum
Dúdajevs, forseta Tétém'u. Tug-
ir þúsunda létu lífið í átökun-
um, fjöldinn er talinn hafa verið
einhvers staðar á bilinu 18.000
til 100.000. Efnahagur þjóðar-
innar er í rúst og mannlíf allt í
molum eftir tveggja ára heiftar-
leg stríðsátök.
Samtals voru meira en
30.000 hermenn staddir í
Téténíu á vegum tveggja rúss-
neskra ráðuneyta, innanríkis-
og varnarmálaráðuneytisins.
Stór hluti hersveitaima er nú
staddur í Dagestan og Stavro-
pol, sem eru héröð með landa-
mæri að Téténíu. Að sögn rúss-
neskra fréttamanna dveljast
hermennirnir í lélegum húsa-
kynniun og fæðan er af skorn-
um skammti. -gb
Fyrsti þeldökka löggan
Tvítugur Pólverji, Krzysztof
Sowinski, tekur til starfa sem
lögreglumaður á götum Varsjár
í næsta mánuði. Pólverjum mun
flestum þykja það töluverð tíð-
indi fyrir þá sök að Sowinski er
ekki hvítur á hörund eins og
allir aðrir lögregluþjónar í Pól-
landi, heldur svartur. Móðir
lögregluþjónsins unga er pólsk,
en faðirinn er frá Kúbu. So-
winski vonast til þess að verða
síðar meir fluttur yfir í þá deild
lögreglunnar sem sér um bar-
áttuna gegn skipulögðum
glæpasamtökum. -gb
Einar Logi Einarsson
grasalæknir
verður á Akureyri
fimmtudaginn 9. janúar.
Tímapantanir í dag, þriðjudag,
í síma 56 22 777 og í kvöld í síma 58 777 14
HH BORGARSTJÓRINN
í REYKJAVÍK
Reykvíkingar!
Hirðing jólatrjáa hefst í dag, þriðjudaginn 7. janúar. Setjið
jólatrén út fyrir lóðamörk og verða þau þá fjarlægð.
Þá vil ég hvetja ykkur til að hirða upp leifar af skoteldum
og blysum í nágrenni ykkar.
Höldum borginni okkar hreinni.
Með nýárskveðju.
Borgarstjórinn í Reykjavík.
r Aramótaheitið er
endurvinnsla
Endurunnið heiti Endurvinnslustöðvar er nýtt heiti á gámasvæðum SORPU. Það er í samræmi við hlutverk svæðanna sem móttökuaðstöðu til endurnýtingar og endurvinnslu. Endurunnin gjaldskrá Til þess að koma í veg fyrir misnotkun á endurvinnslustöðvunum hefur gjaldskyldu verið breytt. Sem fyrr eiga íbúar rétt á að losa úrgang, sem fellurtil við daglegan heimilisrekstur, án greiðslu. Eftirtaldir þættir falla ekki undir daglegan heimilisrekstur og eru þar með gjaldskyldir: Úrgangurfrá byggingarstarfsemi Úrgangurfrá bifreiðaviðgerðum Lagervörur eða aðrar fyrningar yfirteknar við húsnæðiskaup Úrgangurfrá húsdýrahaldi Frábær árangur íbúa höfuðborgarsvæðisins og SORPU: 70% þess úrgangs sem kemur inn á endurvinpslustöðvarnar fer í endurvinnslu.
Starfsemi húsfélaga flokkast undir heimilisrekstur ef íbúarnir vinna verkin sjálfir. '1 í
Þú sparar fimmtung ef þú kaupir kort. Kortin eru nú seld á endurvinnslustöðvunum. Þar er einnig tekið við greiðslu fyrir einstaka farma.
Endurunnir afgreiðslutímar Endurvinnslustöðvarnar eru opnar frá, 12:30-19:30 alla daga. Auk þess eru stöðvarnar í Ánanaustum og á Sævarhöfða opnar á morgnana, virka daga frá 9:00 til 19:30. Endurvinnslustöðin í Miðhrauni Garðabæ bætist nú í þann hóp. Velkomin á endurvinnslustöðvar okkar S0RPA SORPEYÐING HQFUÐBORGARSVÆÐISIMS bs Gufunesi • Box 12100 • 132 Reykjavík Sími 567 6677 • Bréfasími 567 6690