Dagur - Tíminn Reykjavík - 14.01.1997, Síða 8
Annar með gel og hínn
með hárlos!
Nemarnir Elma Rún Ingvarsdóttir nemi í Háskólanum á Akureyri, Hrafnhildur Reykjalín nemi í
VMA, Gunnlaugur Jónsson VMA og Dagur Óskarsson nemi í VMA voru sæl með að geta
slappað af og gleymt amstri dagsins á föstudagskvöld. Myndir: GS
Gísli Helgason,
vélstjóri á Dalborgu
frá Dalvík, lét fara
vel um sig í einu af
mörgu sófasettum
staðarins.
Birgir Björnsson
og Þorleifur
Gestsson tóku
létta sveiflu undir
laginu um Lukku
Láka.
Solla Maja, Dýrun Pálsdótttir og Kolbrún Sjöfn létu söng Matthíasar raska ró sinni.
Matthías Sigvaldason frá
Ólafsfirði fékk að taka í
hljóðnemann og fékk góðar
undirtektir félaga sinna.
Það er víða sem kaffihúsin spretta. Á Dalvík er að finna eitt sem ber
nafnið Café Menning sem er í eigu Friðriks Gígju. Þegar Ijósmyndari
Dags-Tímans heimsótti staðinn sL fostudagskvöld var þar margt
góðra gesta sem voru ýmist að skemmta sér hressilega eða að taka
lífinu með ró. Tvímenningarnir Gulli ogMaggi sem skipa
hljómsveitina Annar með gel og hinn með hárlos tróðu upp og gerðu
stormandi lukku. Hlýlegur og heimilislegur staður við Eyjafjörð getur
yljað þreyttum og nýjungagjömum ferðalöngum á köldum
vetrarkvöldum, eins og Café Menning. En góðjusleg ábending til
eiganda staðarins, frönsk stafsetning á íslensku menningarkaffihúsi
grefur undan fallegum ásetningnum.
Guðbjörg Jóhannesdóttir barþjónn, Friðrik Gígja eigandi og Eva Magnúsdóttir
tilbúin að taka á móti glaðhlakkalegum gestum
Kaffið er gott og
eitthvað með því.
Sólveig
Antonsdóttir
bóksali, Fríða
Þorsteinsdóttir
hárgreiðslukona og
Hallgrímur
Pétursson kennari
á góðri stund.