Dagur - Tíminn Reykjavík - 25.01.1997, Blaðsíða 5

Dagur - Tíminn Reykjavík - 25.01.1997, Blaðsíða 5
t J3agur-®mtbm Landakaup ungmenna um 90 milljónir í fyrra Vitað er að á útihátíðum unglinga er mikið um landa. Þeir sem drekka landa voru miklu færri 1995 en tveim árum áður en drykkjan jókst í þeim hópi. Ungmennum sem drukku landa fækkaði stórlega milli áranna 1993 og 1995 (úr 32% niður í 20%) og þó hvergi meira en í hópi 14-15 ára. En þeir sem á annað borð héldu tryggð við landann juku drykkjuna töluvert. Deilt niður á allan hópinn (samtals um 55 þúsund manns á aldrinum 12- 24 ára) minnkaði landadrykkj- an úr rúmlega 1,5 flöskum í 1,1 flösku að meðaltali á mann. Landakaup þessa hóps hafa samkvæmt því minnkað úr um 83 þúsund flöskum niður í 61 þúsund flöskur á þessum tveim árum - eða úr rúmlega 120 milljónum niður í rúmlega 90 milljónir, m.v. 1.500 kr. meðal- verð á lítra (flösku). Landakaup þeirra sem eldri eru vantar í þessar tölur. Neysla á landa var meðal þess sem Gallup spurði um í umfangsmikilli könnun gerðri fyrir Áfengisvarnaráð vorið 1996 og bar saman við samsvarandi könnun frá 1994. í ljós kom að næstum enginn byrjar í landanum fyrir 14 ára aldur. Þeim 14-15 ára sem drukku landa einhvern tíma á árinu fækkaði gífurlega (úr 21% niður í tæp 6%). Landadrykkja minnkaði llka stórum hjá 16-19 ára ungmennum en minnst hjá tvítugum og eldri. Kringmn 30% allra 16-24 ára segist hafa drukkið landa einhvern tíma á árinu 1995 - sem gefur til kynna að landakaup þeirra sem komnir eru á „Ríkisaldur" séu líka umtalsverð. í síðari könnuninni sögðust um 20% allra 12-24 ára hafa drukkið landa árið áður, en nær þriðjungur svaraði svo tveim árum fyrr. En þeir sem voru í landanum höfðu aukið neysl- una um meira en fimmtung, úr rúmlega 6 flöskum upp í rúm- lega 7,4 flöskur að meðaltali í þessum hópi. Könnunin leiddi mjög glöggt í ljós að því yngri sem krakkar eru þegar þau byrja að drekka, þeim mun meira drekka þau seinna. Af þeim 18 ára og eldri sem byrjað höfðu áfengis- drykkju þegar þeir voru 12 ára, var nú meira en helmingurinn (55%) í hópi landadrykkju- manna, og drukku að jafnaði yfír 20 flöskur árið 1995. Af þeim sem byrjuðu 15 ára var innan við þriðjungur í landan- um (með 5 flöskur). Og af þeim sem frestað höfðu til 17 ára aldurs að smakka áfengi voru aðeins 13% í landahópnum í fyrra og með aðeins eina flösku að meðaltali. Staría ekki í umboði flokks Stjórn sjálfstæðisfélagsins í Hveragerði hefur sagt skil- ið við bæjarfulltrúa flokks- ins og segir þá ekki stabfa á vegum félagsins lengur. Ekkert lát er á væringum meðal sjálf- stæðismanna í bænum. Fram kemur í Sunnlenska fréttablaðinu að skorað var á bæjarfulltrúana að slíta meiri- hlutasamstarfi D- og H-lista í bæjarstjórn Hveragerðis en H- listinn er sameiginlegt framboð vinstri flokka og framsóknar- manna. Enginn minnihluti er í bæjarstjórninni, en sú sér- kennilega staða kom upp, þeg- ar Knútur Bruun, fyrrum odd- viti flokksins, sagði skilið við fé- laga sína. Félagsfundur í Ing- ólfi, félagi sjálfstæðismanna í Hveragerði, samþykkti að sh'ta bæri samstarfinu en því var ekki sinnt. Því afréð stjórn Ing- ólfs að slíta á tengsl flokks og fulltrúa en þeir starfa áfram í eigin nafni. Þingmenn sjálf- stæðismanna á Suðurlandi, Þorsteinn Pálsson og Árni John- sen reyndu að sætta menn í vetur en án árangurs. -hþ. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri, og Gerður G. Óskarsdóttir í dyrum Fræðslumiðstöðvarinnar. Inni má sjá Sigrúnu Magnúsdóttur, borgarfuiltrúa og formann fræðsluráðs. Mynd:ÞöK Fræðslumiðstöð opnuð Lyfta hefur verið sett í húsið og að- gengi fatlaðra bætt, en innra skipulag skólans er að mestu óbreytt. Reynt hefur verið að sýna trúnað við húsið, tíma þess og sögu, við þessar endurbætur," sagði borgarstjór- inn í Reykjavík, Ingibjörg Sól- rún Gísladóttir, þegar hún af- henti Miðbæjarskólann með formlegum hætti fyrir starfs- semi Fræðslumiðstöðvar og Námsflokka Reykjavíkur. Gagngerum endurbótum á innviðum þessa elsta barna- skólahúss höfuðborgarinnar í upprunalegri mynd er nú lokið. Þær kostuðu tæpar 134 millj- ónir og mun það vera í sam- ræmi við upphaflega kostnað- aráætlun, en allt ytra byrði hússins var endurnýjað árið 1980. Lyfta hefur verið sett í húsið og aðgengi fatlaðra bætt, en innra skipulag skólans er að mestu óbreytt, þó að riokkrum kennslustofum sé nú skipt með gleri og léttum veggjum. Mið- bæjarskólanum er nú skipt í tvennt eftir notkun stofnananna tveggja, en hluti af starfsemi Námsflokkanna hefur verið fluttur í skiptistöð SVR í Mjódd- inni. FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ Á AKUREYRI Sérfræðingur í háls-, nef- og eyrnalækningum 70% staða sérfræðings í háls-, nef- og eyrnalækn- ingum við háls-, nef- og eyrnadeild Fjórðungs- sjúkrahússins á Akureyri er laus til umsóknar. Við ráðningu verður lögð áhersla á faglega þekkingu ásamt hæfileikum á sviði samskipta, samvinnu og sjálfstæðra vinnubragða. Umsóknarfrestur er til 10. mars 1997. Nánari upplýsingar um starfið veitir Eiríkur Sveinsson, yfirlæknir. Umsóknir, á þar til gerðum eyðublöðum, ásamt upplýs- ingum um nám og fyrri störf, sendist framkvæmda- stjóra sjúkrahússins, Halldóri Jónssyni. Öllum umsóknum um starfið verður svarað. Forstöðumaður eldhúss - stjórnunarstaða Laus er til umsóknar staða forstöðumanns eld- húss FSA. Um er að ræða heila stöðu sem veitist frá 1. mars n.k. eða eftir samkomulagi. Forstöðumaður er yfirmaður starfsmanna eldhúss og ber stjórnunarlega og rekstr- arlega ábyrgð á starfsemi eldhússins, matreiðslu á fæði fyrir sjúklinga og rekstri mötuneytis fyrir starfs- menn. Umsækjendur þurfa að hafa meistararéttindi í mat- reiðslu eða hafa lokið námi í matarfræði, næringar- fræði eða öðrum skyldum greinum. Við ráðningu verð- ur ennfremur lögð áhersla á nám eða reynslu í stjórn- un, frumkvæði og góða hæfni til samskipta. Umsóknir sendist Vigni Sveinssyni, aðstoðarfram- kvæmdastjóra, fyrir 15. febrúar n.k. og veitir hann jafn- framt nánari upplýsingar um starfið. Öllum umsóknum um starfið verður svarað. Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. - reyklaus vinnustaður -

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.