Dagur - Tíminn Reykjavík - 25.01.1997, Side 9

Dagur - Tíminn Reykjavík - 25.01.1997, Side 9
|Dagur-®íxramt Laugardagur 25. janúar 1997 - 9 RITSTJORNARSPJALL Birgir Guðmundsson aðst.ritstjóri skrifar Prestar hafa verið að tala um að „flýta upphafi bisk- upskjörs“ og skipað sér í flokka með og á móti. Satt að segja hef ég átt í erfiðleikum með að skilja hvað þetta „upp- haf biskupskjörs" þýðir, en orðalagið er einhvern veginn svo sérkennilegt að ég hallast helst að því að það sé komið frá Geir Waage, formanni Prestafé- lagsins, og einum helsta tals- manni þess að flýta sem mest þessu upphafi. En guðhræddur góðkunningi minn benti mér á að spurningin snerist um hvort flýta ætti þeim tímapunkti sem talið er við hæfi að færa átökin um nýjan biskup út úr skúma- skotunum og tala um þau á al- mannafæri. Kirkjunnar menn eru enn að velta þessu fyrir sér, en greinilegt er að hugmyndin um að flýta upphafi biskups- kjörs hefur með öðrum hætti gert vart við sig víðar í þjóðfé- laginu. Þannig hafa menn með ýmsum hætti víða um land ver- ið að flýta upphafi næstu sveit- arstjórnarkosninga, sem verða eftir rúmt ár - í það minnsta eru menn farnir að huga að vígstöðu sinni og möguleikum þegar upphafið skellur á. Snjall leikur Sá sem virðist einna lengst kominn í þessum efnum - (Geir Waage stjórnmálanna?) - er Árni Sigfússon. í vikunni hefur hann verið að koma á sjón- varpsskjái landsmanna og beð- ið þá um að segja upp bifreiða- tryggingum sínum. Árni er að vara menn við því að festast í sínum gömlu tryggingum einu sinni enn og sitja uppi með með okurprísa. Sjálfur geti hann út- vegað lægra verð og ef menn kaupa ekki beint af honum þá er í það minnsta líklegt að gömlu tryggingafélögin muni lækka sitt verð til að standast samkeppnina. Pessi skilaboð sendir Árni Sigfússon ekki til landsmanna í krafti stöðu sinn- ar sem oddviti sjálfstæðis- manna í Reykjavík. Hann gerir það sem formaður Félags ís- lenskra bifreiðaeigenda. Þetta framtak Árna er með hans snjöllustu leikjum, því þrátt fyr- ir allt eru bfleigendur þakklátur hópur og Árni Sigfússon er Friðrik Sophusson, Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson, Gunnar Jóhann Birg- isson, og Ellert Schram eru dæmi sem kastað hefur verið fram um hugs- anlega arftaka. vissulega vinur þeirra. Árni er því í hlutverki bjargvættsins, mannsins sem bfleigendur eiga skuld að gjalda - óháð því hvar þeir eru í pólitík. Ég hvet ykkur... En Árni er hins vegar í pólitík og þar sem Árni er aðeins einn og ekki „tví-einn“ eða „þrí- einn“ þá er ógerlegt að skilja á milli stjórnmálamannsins og bfleigendavinarins Árna Sigfús- sonar. Þetta veit auðvitað Árni og notar því tækifærið til að flýta upphafi borgarstjórnar- kjörsins með því að koma sjálf- ur fram í sjónvarpi með skila- boð til þjóðarinnar. Enda segir Árni ekki: „FíB hvetur bfleig- endur til að segja upp trygging- um sínum." Hann segir ábúðar- fullur við okkur hérna megin við sjónvarpsskjáinn: „Ég hvet ykkur....“ Þetta kann Árni vel og hefur nú sýnt að hann er vaxandi stjórnmálamaður. Ég sagði áðan að trúlega væri þessi „vinur bfleigand- ans“- leikur hjá Árna með því snjallasta sem hann hefur gert. Bæði er að hann er að gera bfl- eigendum raunverulegan greiða, sem skilað hefur sér í lægri tryggingum annað hvort hjá FÍB eða í formi lækkunar hjá gömlu félögunum. En pólit- ískt gefur þetta Árna ýmis sóknarfæri, sem honum annars stóðu ekki til boða. Þessi sókn- arfæri eru bæði innan flokksins og gagnvart R- listanum. Styrkir Árna innan flokksins Almælt hefur verið að sterk öfl innan Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík geti hugsað sér ein- hver annan forustumann en Árna fyrir næstu kosningar. Það er ekki vel séð að tapa borg- inni. Hins vegar hefur nokkuð strandað á því að engin augljós kandídat hefur verið til staðar sem gæti tekið forustuna með trúverðugum hætti. Friðrik SOphusson, Vilhjálmur Þ. Vilj- hálmsson, Gunnar Jóhann Birg- isson, og Ellert Schram eru dæmi sem kastað hefur verið fram um hugsanlega arftaka. Enginn þeirra er þó með sann- færandi hætti betri kostur en Árni, allra síst eftir að Árni hef- ur náð að koma sér upp um- talsverðu baklandi þar sem bfl- eigendur eru. Þess utan má segja að sýnileiki Árna, foringja sjálfstæðismanna í Reykjavík í tenglsum við tryggingarnar haíl orðið til þess að „flýta upphafi“ borgarstjórnarkosninganna. Það væri erfitt fyrir flokkinn, eftir þetta útspil Árna að fara að skipta um foringja núna. Það hefur aldrei þótt góð lausn á Þar á bæ hafa menn semsé ekki síður en Árni flýtt upphafi borgarstjórnarkjörs, svo gripið sé til hins kirkjulega orðalags. aðsteðjandi vanda, að skipta um hest í miðju straumvatni. Það vita sjálfstæðismenn núna af biturri reynslu úr síðustu kosningabaráttu. Eins og málin standa í dag er því lang líkleg- ast að Árni Sigfússon muni leiða lista sjálfstæðismanna í kosningunum eftir rúmt ár. Slagurinn við R-listann Bakland bfleigendavinarins gagnast honum þó ekki aðeins við að verja stöðu sína innan Sjálfstæðisflokksins. Óhjá- kvæmilega mun þetta hjálpa honum í baráttunni við R-list- ann og ekki veitir af. Stjórnar- andstaða sjálfstæðismanna hef- ur einhvern veginn ekki verið mjög öflug, heildræn eða mark- viss. Upphlaup hér og upphlaup þar í bland við upphrópanir um skattahækkanir, „skítaskatt“, eða „sjónhverfingar" munu ekki fleyta sjálfstæðismönnum inn í Ráðhúsið á ný. Meira þarf að koma til, ekki síst í ljósi þess að nú á seinni hluta kjörtímabils- ins er málflutningur Reykja- víkurlistans og starf orðið mun samstilltara en áður og fátt sem virðist ætla að spilla fyrir því. Um síðustu helgi voru t.d. stofnuð jafnaðarmannasamtök- in Gróska sem hrærðu upp í mörgum þeim sem að Reykja- víkurlistanum standa, en hefðu hugsanlega getað spillt fyrir samstarfinu innan R-listans, t.d. milli A-flokka fólks annars vegar og svo kvennalistakvenna og framsóknarmanna hins veg- ar. Forustumenn listans, með Ingibjörgu Sólrúnu í broddi fylkingar, pössuðu sig vandlega á að blandast ekki inn í það mál, sem sýnir að samstarfið gengur smurt og erfiðleikalaust fyrir sig. Eins og komið hefur fram í fréttum er R-listinn far- inn að undirbúa hvernig staðið skuli að listauppstillingu fyrir kosningarnar, prófkjöri og þess háttar. Þar á bæ hafa menn semsé ekki síður en Árni flýtt upphafi borgarstjórnarkjörs, svo gripið sé til hins kirkjulega orðalags. Fyrst upphafið er.... Þá sögu hef ég heyrt um kunn- an húsvískan hagyrðing að hann hafi einhvern tíma gengið á eftir konu sem var með óvenju svera og mikla kálfa. Þá á hann að hafa sagt: „Augun komast hæst að hné/ hugir margs þó vona./ Hvernig ætli kýrin sé/ fyrst kálfarnir eru svona?“ Flest bendir til að „upphafi borgarstjórnarkjörs“ hafi verið flýtt og Árni Sigfús- son er mættur til leiks í klóku útspili hvað svo sem annars má um það segja. R-listinn er sömu leiðis að gera sig kláran í slag- inn og í Ijósi þessara tilþrifa er óhjákvæmilegt að spyrja: Hvernig æth kosningaslagurinn sjálfur verði fyrst upphafið er svona?

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.