Dagur - Tíminn Reykjavík - 29.01.1997, Síða 1
LÍFIÐ í LANDINU
Miðvikudagur 29. janúar 1997 - 80. og 81. árgangur -19. tölublað
UNGAR KONUR
ERU BTARTSÝNAR
í DAG
Það hefur mikill árangur
orðið í jafnréttisbarátt-
unni en mörgu er enn
ólokið. Við þurfum ekki annað
en að líta á tölur til að sjá það.
Launamisréttið milli karla og
kvenna er geysilegt. Karlar eru
í áhrifastöðum í þjóðfélaginu.
Pað er því langt í land með að
jafnrétti sé að fullu náð,“ segir
Guðrún Katrín Þorbergsdóttir
forsetafrú en hún var einmitt
heiðursgestur á 90 ára afmælis-
hátíð Kvenréttindafélags ís-
lands á mánudag og samþykkti
að veita örstutt viðtal í tilefni
þess.
Amman barn
síns tíma
Á afmælishátíðinni flutti Guð-
rún Katrín ávarp og benti á að
saga Kvenréttindafélagsins væri
samofin baráttusögu íslenskra
kvenna fyrir auknum réttind-
um. Oft hefði verið dimmt yfir í
þessari sögu og ávinningarnir
hefðu ekki staðist væntingar.
Konur væru enn í áhrifum og
völdum á eftir körlum við mót-
un þjóðfélagsins og bæru minna
úr býtum fyrir vinnuframlag
sitt. f’rátt fyrir þetta hefði svo
mikið áunnist að því mætti líkja
við fáránleika að konur hefðu
með harðfylgi þurft að sækja
kosningarétt og kjörgengi í
byrjun aldarinnar.
I ávarpi sínu nefndi Guðrún
Katrín dæmi
um breytta
stöðu kvenna
og sagði að
amma sín
hefði verið
„barn síns
tíma“. Hún
hefði í raun
aldrei átt neitt
nema það sem
henni hefði
verið rétt af
manni sínum
og hún hefði
sáralitlu ráðið
varðandi líf
sitt. „Hlut-
skipti konunn-
ar var það
sem eigin-
maðurinn
bauð henni,"
sagði Guðrún
Katrín og
benti á að
mikið vatn
hefði runnið
til sjávar síð-
an. Réttindi
kvenna væru
nú ljós. í dag
þyrftu konur
bara að ganga
til verks og
nýta þau.
Ungar konur
gengju til
móts við
framtíðina
fullar bjart-
sýni á jafna
möguleika
kynjanna. Pau
viðhorf fælu í
sér mikinn
sigur.
Frú Guðrún Katrín Þorbergsdóttir var heiðursgestur á afmælishátíð Kven-
réttindafélags íslands nýlega. Hún hefur verið mjög önnum kafin undan-
farna mánuði enda segir hún að ekki hefði verið hægt að sameina það að
vera maki forseta og útivinnandi um leið. Myndir: Pjetur
Eigum að
framkvæma
„Við höfum réttinn og við eigum
að framkvæma," segir Guðrún
Katrín aðspurð um stöðu ungra
kvenna í dag. Hún bendir á að
ungum konum þyki nú sjálfsagt
að fá sömu menntun og karl-
menn og hafa
jafna stöðu á við
þá. „Það er eðli-
legt að konur
takist á við lífið
eins og karlar,"
segir hún.
Frú Guðrún
Katrín starfaði
lengi sem fram-
kvæmdastjóri
Póstmannafé-
lags íslands og
var virk í félags-
málum, meðal
annars sem bæj-
arfulltrúi á Sel-
tjarnarnesi í 16
ár. Hún hefur
hætt þeim störf-
um til að geta
sinnt þeim
skyldum sem
fylgja embætti
forseta fslands.
Guðrún Katrín
segir að það
hafi verið sér
umhugsunarefni í aðdraganda
kosninganna hvaða breytingar
yrðu á hennar högum ef maður
hennar næði kjöri.
Endalaus
verkefni
„Þetta hefur ekki verið mér erf-
ið staða. Það hefði ekki verið
hægt að sam-
eina það að
vera maki for-
seta og vera
útivinnandi
um leið. Ég
hef sjaldan
verið önnum
kafnari heldur
en undan-
farna mánuði.
Það eru enda-
laus verkefni.
Vinna mín
hefur verið
svo mikil að
ég hef eigin-
lega ekki mátt
vera að því að
leiða hugann
að því hvort
það væri betra
eða skemmti-
legra að vera
með eigin
starfsvettvang
annars stað-
ar,“ segir Guðrún Katrín.
Guðrún Katrín
Þorbergsdóttir
forsetafrú flutti
ávarp á 90 ára
afmœlishátíð
Kvenréttindafélags
íslands. Hún
sagði að í dag
vœru ungar konur
bjartsýnar
um möguleika
sína til jafns
við karla.