Dagur - Tíminn Reykjavík - 29.01.1997, Page 2
14- Miðvikudagur 29. janúar 1997
íDagur-Cmtimx
HÁSKÓLALÍFIÐ f LANDINU
Að lærasemmest
- og líða sem best
„Hjá heilbrigðisdeild Háskólans
á Akureyri hefur verið mörkuð
sú stefna að nemendum eigi að
líða vel í námi; að þeir læri sem
mest og líði sem best. Þessi
hugmyndafræði byggist m.a. á
rannsókn sem ég gerði á upplif-
un nemenda á umhyggju- eða
umhyggjuleysi í samskiptum við
kennara og áhrifum þess á
námsáhuga þeirra og -árangur.
í rannsóknum sem ég hef gert
kemur í ljós að umhyggjuleysi
hefur neikvæð áhrif á bata
sjúklinga, en góð umhyggja get-
ur aftur þýtt að þeir komist fyrr
heim á sjúkrahúsi. Á sama hátt
getur kennari, sem ekki veldur
starfi sínu, haft neikvæð áhrif á
námsáhuga- og árangur nem-
enda sinna,“ segir Sigríður
Halldórsdóttir forstöðumaður
heilbrigðisdeildar.
Einvala kennaralið
Hugmyndir Sigríðar um
kennslu í hjúkrunarfræði eru
eftirbreytniverðar. „Við leggjum
allt upp úr því að hér starfi
góðir kennarar, sem sýni nem-
endum sínum faglega um-
hyggju. Slíkt tel ég gera þá að
góðum hjúkrunarfræðingum,
þegar þeir eru komnir til starfa
úti á sjúkrahúsunum,“ segir
hún.
Hjá heilbrigðisdeild HA er
tvisvar á vetri efnt til svonefns
Dags heilbrigðisdeildar. Þá eru
nemendur m.a. spurðir um álit
sitt á ýmsum þáttum í starfi
„Höfum lagt áherslu að nemendur geti bjargað sér við hvaða aðstæður sem er.
Þar get ég til dæmis nefnt bráðahjúkrun," segir Sigríður Halldórsdóttir forstöðu-
maður heilbrigðisdeildar, sem hér er í kennslustund með nemendum. - Mynd: -
JHF.
deildarinnar og hefur þessi
dagur þegar skilað miklum ár-
angri í starfi deildarinnar, að
mati Sigríðar. Þá hefur einu
sinni á misseri sl. fjögur ár ver-
ið gert mat á námi og kennslu
sem hefur skilað sér í góðum og
færum kennurum. Sú meðal-
einkunn sem nemendur gáfu
kennurum sínum fyrir íjórum
árum var ekki ýkja há en er nú
um 7,5. „Þeir kennarar sem
lakastir hafa komið út úr þess-
ari könnun, það er einkunn fyr-
ir neðan 5,0, hafa í dag allir
snúið sér að öðrum störfum. í
dag myndi ég segja að heil-
brigðisdeild
HA hefði á að
skipa einvala
liði kennara,"
segir Sigríður.
Rösklega
100 nem-
endur
Nemendur
hjúkrunar-
fræðum
heilbrigðis-
deild HA í dag
eru rösklega
100. Nám í
hjúkrunarfræði til BS gráðu
tekur íjögur ár og eru nemend-
ur á hveiju námsári um eða
rétt yfir 25. Að mati Sigríðar
stendur deildin vel að vígi hvað
varðar kennara og tilhögun
námsins, en rannsóknir þarf þó
tilfinnanlega að efla.
Við heilbrigðisdeild er
starfandi sérstakt gæða-
ráð, en það skipa tveir
fulltrúar kennara og jafn-
margra nemenda. Megin-
tilgangur þess er að auka
gæði náms við deildina,
eins og Sigríður kemst að
orði. Meðal þess sem
framundan er hjá gæða-
ráðinu á næstunni er að
gera könnun meðal
hjúkrunarfræðinga út-
skrifaðra frá deildinni
hvernig þeir hafi spjarað
sig úti á vinnumarkaðin-
um, en einnig verða yfir-
menn
þeirra á heil-
brigðisstofnun-
um spurðir um
hvernig starfs-
menn þeir hafi
reynst. Niður-
stöðum þessar-
ar könnunar
kveðst Sigríður
ekki kvíða,
enda hafi hún
víða heyrt við-
horfin og þau
séu yfirleitt já-
kvæð.
Fjarnám fer af stað
í lok þessa mánaðar fer af stað
samstarf Heilbrigðisdeildar HA
og háskólans í Manchester á
Englandi um íjarnám til MS-
gráðu í hjúkrunarfræði. Náms-
gögn verða send m.a. með
tölvutæku formi til HA, sem
miðlar þeim m.a. í gegnum al-
netið til nemenda sinna víða
um land. Þurfa nemendurnir að
koma í skólann þrisvar sinnum
á hverju námsmisseri, þá til
skrafs og ráðagerða um nám
sitt og námsefm.
Skyldur við lands-
byggðarfólk
Sigríður Halldórsdóttir bindur
ekki síst vonir við að nám af
þessu tagi geti hentað fólki í
heilbrigðisstéttum, sem búsett
er á landsbyggðinni. Að hennar
mati hefur Háskólinn á Akur-
eyri, sem Iandsbyggðarstofnun,
siðferðislegum skyldum að
gegna við það fólk. „Við höfum
lagt áherslu að nemendur geti
bjargað sér við hvaða aðstæður
sem er. Þar get ég til dæmis
nefnt bráðahjúkrun. Hjúkrun-
arfræðingar úti á landi verða að
geta veitt skjólstæðingum sín-
um aðstoð við slíkar aðstæður,“
segir Sigríður, og hún heldur
áfram:
„Ég sagði að við hefðiun ein-
mitt ákveðnar siðferðislegar
skyldur gagnvart heilbrigðis-
menntuðu fólki á landinu og
menntun þess. Staðreyndin er
sú að mikið af hjúkrunarfræð-
ingum sem útskrifast frá HA
setjast að úti á landi og starfa
þar. En þeir sem nema þessa
sömu grein við Háskóla íslands
í Reykjavík setja sig frekar nið-
ur í Reykjavík og starfa á heil-
brigðisstofnun, þar sem sérhæf-
ing er meiri og minna reynir á
að bjarga sér og sjúklingum
sínum í nánast hverju sem er.“
-sbs.
við
„/ rannsóknum sem ég hef
gert kemur í Ijós að um-
hyggjuleysi hefur neikvœð
áhrif á bata sjúklinga, en
góð umhyggja getur aftur
þýtt að þeir komist fyrr
heim á sjúkrahúsi en ella. “
Smæðin er styrkur okkar
„Það er ljóst að við getum skipulagt
tengsl okkar við atvinnulífið mun betur
en flestir aðrir háskólar, fyrst og fremst
vegna smæðar okkar. Nemendur í
þriggja ára markaðsfræðinámi við
rekstrardeild HA eru um 30, á meðan
nemar í sambærilegu námi við Háskóla
íslands eru kannski 300. Smæðin er okk-
ar styrkur hvað varðar verkefnavinnu
nemenda í fyrirtækjum - og helsti styrk-
ur rekstrardeildar í heild sinni eru góð
tengsl við atvinnulífi," segir Bjarni
Hjarðar, forstöðumaður rekstrardeildar
Háskólans á Akureyri.
Styrkur fyrirtækja og nemenda
Um 70 manns stunda í vetur nám við
rekstrardeild HA. í boði er tveggja ára
nám á iðnrekstrarbraut,
þriggja ára nám til BS =====
gráðu, annarsvegar á
markaðssviði og hinsveg-
ar á stjómunarsviði, þar
sem áhersla er lögð á
gæðastjórnun - ásamt
ljórða námsárinu í gæða-
stjórnun.
Náin tengsl við ____________________
atvinnuh'fið hafa frá upp- -------;-----
hafi verið aðalsmarki
náms við Háskólann á Akureyri. Fyrir-
tæki á Akureyri - og víðar - hafa sóst eft-
ir að fá nemendur frá rekstrardeild í
vinnu við einstök verkefni, sem lúta til
dæmis að markaðs, og þróunarstarfi.
Stjórnendur sumra þeírra hafa í fram-
haldinu ráðið nemendur til sumarstarfa
við að halda áfram í verkefnum á sömu
nótum. Hafa fyrirtækin þá jafnvel getað
mætt launakostnaði með styrk úr Ný-
sköpunarsjóði námsmanna.
Góður gagnabanki
„Stjórnendur fyrirtækja eru að átta sig
á því að fólk, útskrifað frá HA, er margs
megnugt. Þeir vita líka að ef þeir ráða
þá ekki í vinnu, þá gera keppinautar það
í staðinn," segir Gunnar Karl Níelsson,
sem Reka - félags nema í rekstrardeild.
Að undanförnu hafa nemendur
rekstrardeildar unnið að gerð viðhorfs-
könnunar meðal stjórnenda fyrirtækja í
bænum um rekstrarumhverfi. Könnunin
er samstarf Atvinnumálaskrifstofu Akur-
eyrarbæjar og
Rannsókna-
stofnunar Há-
„ Við getum skipulagt
tengsl okkar við atvinnulíf-
ið mun betur en flestir aðr-
ir háskólar, fyrst og fremst
vegna smœðar okkar. “
skóians á Akur-
eyri. Svör hafa
borist frá
stjórnendum
um 160 fyrir-
tækja. Gunn-
laugur Sig-
hvatsson, for-
stöðumaður
RHA, segir gott yfirlit fást yfir atvinnuh'f-
ið á Akureyri með þessari könnun - og
niðurstöður hennar verði gagnabanki
fyrir enn frekari rannsóknarverkefni
sem kennarar og nemendur rekstrar-
deildar vinna að á hverjum tíma.
Þrefölduð sala á hangiáleggí
Niðurstöður þessarar könnunar verða
birtar í næsta mánuði. Þó eru línur nú
þegar farnar að skýrast. Könnunin leiðir
m.a. í ljós að þrátt fyrir bættar
samgöngur og nokkuð stöðugan íbúa-
Qölda á Akureyri og Eyjafjarðarsvæðinu
hefur verslun ekki dregist saman, eins
Bjarni Hjarðar, forstöðumaður rekstrardeildar Háskólans á Akureyri, sem
er til vinstri á þessari mynd og Gunnlaugur Sighvatsson, forstöðumaður
Rannsóknastofnunar HA. Mynd: JHF
og margur kynni að ætla. Ástæðan er
talin vera skýrari og markvissari mark-
aðssetning hjá verslunarmönnum bæjar-
ins. Þá segja stjórnendur að þeir vilji
áfram staðsetja fyrirtæki sín norðan
heiða, því rekstrarumhverfið sé harla
gott.
Verkefni þau sem nemendur rekstrar-
deildar vinna fyrir fyrirtæki eru unnin
án endurgjalds. Stjórnendur deildarinn-
ar h'ta svo á að hagur háskólans og nem-
enda hans að fá aðgang að fyrirtækjxm-
um - og þau hagnist á því á móti.
„í nýjasta fréttabréfi Landsbréfa er
sagt frá verkefni sem var unrnð í sam-
starfi við Kjarnafæði, er laut að mark-
aðssetningu hangiáleggs. Sala þess hef-
ur þrefaldast að undanförnu, eftir að
áherslum í framsetningu og markaðs-
starfi var breytt. Þetta er dæmi um
hvernig tengsl atvinnuhfs og háskóla
koma að góðum notum,“ sagði Bjarni
Hjarðar. -sbs.
Háskólinn á Akureyri
Opið húsá
laugardag
Opið hús verður á laugardag hjá Háskól-
anum þar sem starfsemi skólans verður
kynnt. Meðal annars verður opið hús hjá
deildum hans og kynnt sú starfsemi sem
þar er í gangi. Dagur-Tíminn tók forskot
á sæluna og kynnti sér það helsta sem er
í gangi hjá heilbrigðis- og rekstrardeild-
um. -sbs.