Dagur - Tíminn Reykjavík - 29.01.1997, Síða 6
18 - Miðvikudagur 29. janúar 1997
|Dagur-®ímímt
MENNING O G LISTIR
Goðum steypt af
staUi
Farið er að sneiðast um goðsögulegan uppruna nafna eftir
að sýnt varfram á að Njarðvíkur eru ekki nefndar eftir
Nirði sjávarguði, heldur á nafngiftin sér jarðhundnari rœt-
ur. Þetta sannaði Þórhallur Vilmundarson ífyrirlestri sem
hann flutti um efhið, þar sem hann hrakti þá viðurkenndu
skoðun frœðimanna, sem annarra, að Njarðvíkur heitið
vœri kennt við Njörð sem bjó í Nóatúnum samkvœmt goða-
frœðinnt Nú hefur Þórhallur hœtt um hetur og sýnir Jram
á að fuglinn óðinshani, sé alls ekki fugl Óðins, heldur eigi
nafngiftin sér allt annan og ólíkan uppruna, sem kemur
gömlu goðunum ekkert við.
LEIKFELA6 AKUREYRAR
Kór
Leikfélags Akureyrar
Kossar
og kúlissur
Samkomuhúsið
90 óra,
söngur, gleöi, gaman
Frumsýning
fimmtudaginn 30. jan. kl. 20.00.
2. sýning
laugard. 1. febr. kl. 20.00. UPPSELT
Athugið breyttan sýningartíma.
Handrit: Hallgrímur Helgi Helgason.
Utsetning og stjórn tónlistar:
Roar Kvam.
Búningar: Freygerður Magnúsdóttir.
Lýsing: Ingvar Björnsson.
Leikstjórn: Sunna Borg.
Einsöngvarar: AÓalsteinn Bergdal og
Sigríður Elliðadóttir.
Hljóðfæraleikarar: Gréta Baldursdóttir og
Richard Simm.
Afmælistilboð
Miðaverð 1500 krónur.
Undir
berum himni
eftir Steve Tesich
Sýningar
á „Renniverkstæðinu"
(Strandgötu 49)
Föstud. 31. jan. kl. 20.30.
Sýningin er ekki við hæfi barna.
Ekki er hæat að hleypa gestum inn
í salinn ertir að sýning er hafin.
Miðasalan er opin alla virka daga
nema mánud. kl. 13.00-17.00
og fram að sýningu sýningardaga.
Símsvari allan sólarhringinn.
Sími í miðasölu: 462 1400.
• besti tími dagsins!
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Stóra sviðið kl. 20.00
KENNARAR ÓSKAST
eftir Ólaf Hauk Símonarson
i kvöld. Örfá sæti laus.
Laugard. 1. febr. Uppselt.
Laugard. 8. febr. Nokkur sæti laus.
fimmtud. 13. febr.
sunnud. 16. febr.
VILLIÖNDIN
eftir Henrik Ibsen
9. sýn. fimmtud. 30. jan. Uppselt.
10. sýn. sunnud. 2. febr. Uppselt.
Fimmtud. 6. febr. Örfá sæti laus.
Sunnud. 9. febr. Nokkur sæti laus.
Laugard. 15. febr. Nokkur sæti laus.
Fimmtud. 20. febr.
ÞREK OG TÁR
eftir Ólaf Hauk Símonarson
Föstud. 31. jan. Nokkur sæti laus.
föstud. 7. febr.
föstud. 14. febr.
LITLl KLÁU? OG
STORI KLAUS
eftir H.C. Andersen
Sunnud. 2. febr. kl. 14.00. Nokkur sæti laus.
Sunnud. 9. febr. kl. 14.00. Nokkur sæti laus.
Sunnud. 16. febr.kl. 14.00.
Smíðaverkstæðið kl. 20.30
LEITT HÚN SKYLDI
VERA SKÆKJA
eftir John Ford
Á morgun. Nokkur sæti laus.
Laugard. 1. febr. Uppselt.
Laugard. ð. febr. Örfá sæti laus.
sunnud. 9. febr.
Athygli skal vakin á aö sýningin
er ekki við hæf i barna.
Ekki er hægt að hleypa gcstum inn
í salinn eftir að sýning hefst.
Litla sviðið kl. 20.30
í HVÍTU MYRKRI
eftir Karl Ágúst Úlfsson
Föstud. 31. jan.
föstud. 7. febr.
Ekki er hægt að hleypa gestum inn
í salinn eftir að sýning hefst.
Miðasalan er opin mánudaga og þriðjudaga
kl. 13-18, frá miðvikudegi til sunnudags kl.
13-20 og til 20.30 þegar sýningar eru á þeim
tíma. Einnig er tekið á móti símapöntunum
frákl. 10 virka daga.
DJupevlkorí
Norvlke
Þriðja rit Grímn-
is, sem er um
nafnfræði og er
gefið út af Ör-
nefnastofnun
Þjóðminjasafns,
er komið út. Þar
er ítarleg grein
um hvernig heit-
ið Njarðvík varð
til og þann mis-
skilning að halda
að þær heiti eftir
Nirði í Nóatún-
um. Kenning
höfundar er sú,
að upprunalegt
heiti sé Nærvík.
Þær eru nær til-
teknum stað, svo
sem höfuðbóli
eða íjölmcnnari
byggð, en aðrar
víkur.
Kenningin er
studd ótal dæmum frá Noregi
og öðrum Norðurlöndum, þar
sem „nær“ er algengt í örnefn-
um. Njarðvík á Austurlandi er
næst meginbyggðinni á Fljóts-
dalshéraði, en ijær er Borgar-
íjörður, Brúnavík, Hvalvík,
Kjólsvík o. fl. Njarðvíkur á Suð-
urnesjum eru nær bæ Ingólfs
landnámsmanns og höfuðbólinu
í Vogum, en til að mynda Kefla-
vík eða Helguvík. Þær eru því
réttnefndar Nærvikur. Þegar
siglt er út Dalsíjörð í Noregi, er
farið hjá Vilnes, Nerviken og
Djupeviken. Og í næsta firði eru
í röð V&gane, Nærvik, Merkevik
og Storevik. í tímans rás fór
mjög að gæta tilhneigingar til
að tengja örnefni við menn eða
jafnvel guði, fremur en náttúr-
una, sem landslagið dró áður
nafn sitt af.
Örnefnið Nóatún hlaut svip-
aða meðferð, en uppruna þess
SYGNA*jOG FIRÐAFYLKI
Nærvíkur í Noregi eru nær höfuðbólum, en víkur sem bera önnur heiti.
Afstaða víka á Romshvalanesi tii höfuðbóla.
Njarðvík er nær Vogum og Reykjavík en
aðrar víkur á nesinu.
rekur Þórhallur til bæjarnafns-
ins Nátún (nú Naden) á Roga-
landi.
Önnur grein í Grímni er um
örnefnið Hjörungavágr og hin
þriðja um óðinshana.
Uppruni heitisins óðinshani
er samkvæmt skýringu Þórhalls
sá, að á sundi tifar
fuglinn höfðinu ótt
og títt og snýr sér
snöggt í hringi í
fæðuleit sinni. Hann
er sem sagt, óður
hani. í fornu máli er
óður sama og æstur,
ákafur, kynólmur. Á
þetta vel við hreyf-
ingar og yfirbragð
óðinshana. Merk-
ingin gleymdist og
fuglinn fékk nafn
hins æðsta áss ekki
síðar en á Sturl-
ungaöld og hefur
haldið því
allt síðan.
Svipaðar
nafnbreyt-
ignar hafa
orðið í
fuglaheitum
annars stað-
ar á áhrifa-
svæði gömlu
guðanna.
Það er í
sjálfu sér vitnisburður
um áhrifamátt guðanna,
að nöfn þeirra skuh
hafa þrengt sér inn í ör-
nefni og önnur sérnöfn.
Allar greinarnar eru
eftir ritstjóra Grímrns,
Þórhall Vilmundarson, for-
stöðumann Örnefnastofnunar.
Þá er þar að finna safn til ís-
lenskrar örnefnabókar, eins og í
fyrri ritum. Þar er til dæmis að
finna greinar um uppruna ör-
nefnanna Gemlufell og Glaum-
bær, Siglufjöröur og Skaftafell,
Steig og Svarfhóll, svo að eitt-
hvað sé nefnt. Ritið, sem er vel
myndskreytt og fallega gefið út,
er til sölu í Örnefnastofnun.
OÓ
KíLóið varð að tonni
Fljótfærni olli því að kíló varð að tonni í grein
sem birtist í blaðinu í gær, þar sem íjallað var um
kvótakerfið og hugmyndir manna um forræði
þjóðarinnar yfir auðlindinni. Þar er talað um 15
króna leigupróventu af hverju þorskígildistonni.
Lesendmn hefur eflaust þótt tonnið fara fyrir
heldur h'tið. En þarna átti að sjálfsögðu að standa
„15 kr. leigupróventa af hverju kílói þorskígildis."