Dagur - Tíminn Reykjavík - 29.01.1997, Síða 11
|3agur-ÍEmnrtrt
Miðvikudagur 29. janúar 1997 - 23
En svo má nú líka velta fyrir sér
hvor er tígulegri Naomi eða móðir
hennar Valerie.
Það er illa gert gagnvart svo
glæsilegri konu sem Naomi
Campell er að smella af einmitt
þegar hún lendir í dulitlu og al-
gjöru undantekningarbasli með
skóinn sinn.
Ekki veit ég hver
meiningin var með
þessum tuskubleðli
nema heitasta ósk
Töru Palmer-Tomkin-
son hafi verið að
enda, eða kannski
fremur byrja, kvöldið
inni á únísex klósetti.
Hún hefur svo sem
skrokkinn í þetta en
kjóllinn er bara eins
og dreginn af olíubor-
inni klúbbkvensu.
Óttaleg beinasleikja
mætti með hinni íðilfögru
fyrirsætu Kate Moss sem
að vísu gleymdi að farða
sig og hlaut því ekki
nema einsdálksmynd í
virðulegu og útbreiddu
tímariti.
Evíta var frumsýnd íLondon um daginn og gat
þar að líta rjómann afbresku þjóðinni, eða gest-
um hennar. Hann jafnast náttúrulega ekki á við
rjómann íHollívúdd en þama innanum var þó
hið gómsœtasta lið og Bretaveldi til sóma.
Himna-
ríki
Geðklofinn gamanleikur
Sýnt á
Breiðumýri
Vegna mikillar
aðsóknar:
Aukasýning
föstud. 31. jan. kl. 21.
Aukasýning
sunnud. 2. febr. kl. 21.
Síðustu sýningar.
Miðapantanir
í síma 464 3175.
EFLING.
Öxndœlir fyrr og nú
Þorrablót verður haldið að Melum laugardag-
inn 8. febrúar kl. 20.30.
Matur á staðnum.
Miðapantanir fyrir 5. febrúar hjá Fjólu í síma 462
6984, og Bigga og Lillu í síma 462 7205.
Fallega
á Evftu
fólkið
Þessar skeggræmur í and-
liti Bob Geldofs eru eins og
sniðnar til að hleypa hverri
kerlingu á harðasprett.
Enda virðast þau Bob og
Jeanne Marine vart geta
beðið...
(ZötcwíCPið
Teitur Þorkelsson
skrifar
Lífsklukkan
Eðlið lætur ekki að sér hæða.
Krakkar hætta að garga og
sprilda og fara að gefa hinu
kyninu auga. Pör draga sig
saman. Síðan er fólk hæstánægt
með stöðu mála í einhvern tíma
eða þangað til eðlið byrjar að
hrópa á meira. Þá kemur að því
að parið vill fá hreiður út af fyr-
ir sig þar sem þau geta dúllað
sér saman, lagað allt eftir sínu
höfði og auðvitað notað til ásta-
leikja og yndis. í friði fyrir
heiminum. Og hvað skyldi
vanta í tómt hreiður? Auðvitað
ungana. Enda kemur að því að
eðlið æpir svo mjög á barneign-
ir að fólk byrjar að drita niður
börnum. En óttist ekki, því eðhð
má blekkja. Barneignahungrið
má nefnilega seðja um stundar-
sakir með því að beina um-
hyggju ykkar að einhverju öðru.
Hvernig væri til dæmis að fá sér
hund? Það er oftast skýrt merki
um þrýsting um barn frá öðrum
aðilanum þegar par í hreiðri
fær sér hund. Hundurinn er
eins konar millistig að barn-
eign. Ef karlmanninn langar í
barnið er best að velja kraft-
mildnn hund sem þarf að fara
með út að hlaupa daglega en ef
það er konan sem þráir barnið
hentar púddel hundur frábær-
lega. Með hundinn má
krúsídúllast og honum má
kenna ýmsar kúnstir. Á hund-
inn má jafnvel prjóna peysur í
pastel litum og breiða svo yfir
hann á kvöldin.
OPIÐ HÚS
FYRIR ALDRAÐA
í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju fimmtudag-
inn 30. janúar kl. 15-17.
Dagskrá:
1. Ungir hljóðfæraleikarar frá Tónlistarskóla Akur-
eyrar koma fram.
2. Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir, sveppafræðingur,
kynnir starf sitt og sveppi í náttúrunni.
3. Fjöldasöngur.
Veitingar á vægu verði.
Fólksflutningabíll kemur að Víðilundi og Hlíð.
Verið velkomin.
Undirbúningsnefndin.