Dagur - Tíminn Reykjavík - 05.02.1997, Page 1
Stjórnmál
AMt á fullu á Alþingi
Þrjár utandagskrár-
umræður í dag.
Jóhanna Sigurðardóttir hef-
ur óskað eftir umræðum
utan dagskrár á Alþingi í
dag um kynferðislega misnotk-
un á börnum og stöðu mála
þeirra í réttarkerfinu. Þorsteinn
Pálsson, dómsmálaráðherra,
verður til andsvara.
í samtali við Dag-Tímann
sagði Jóhanna að hún vildi fá
fram hvað liði störfum nefndar
sem skipuð var árið 1993 og
falið var að kanna stöðu mála
barna sem eru þolendur í kyn-
ferðisbrotamálum. Jóhanna
segir að ekki nema 10% mála af
þessu tagi, sem komi fram í
dagsljósið, fari til dómstóla og
því vakni sú spurning hvort rík-
issaksóknari og dómar ráði við
sérhæfð mál af þessu tagi.
„Börn sem misnotkuð eru kyn-
ferðislega fá oft mjög litla og
ófullnægjandi meðferð," segir
Jóhanna, - sem mun reifa þessi
mál á breiðum grundvelli í um-
ræðunum í dag.
Steingrímur J. Sigfússon ósk-
ar eftir umræðum rnn tillögur
stjórnar ÁTVR um breytta til-
högun á sölu áfengis og tóbaks.
Friðrik Sophusson fjármálaráð-
herra svarar. Þá óskar Hjörleif-
ur Guttormsson eftir umræðum
um hvemig staðið er að kynn-
ingu á Markaðsskrifstofu iðnað-
arráðuneytisins og Landsvirkj-
unar gagnvart ijárfestum. Þar
svarar Finnur Ingólfsson iðnað-
arráðherra. -sbs.
Alþingi
Pólitísk hrossakaup
Fyrirhugaðar
breytingar á skipan
stjórnar Lands-
virkjunar eru liður
í pólitískum hrossa-
kaupum stjórnar-
flokkanna. Þetta
fullyrti Svavar Gests-
son á Alþingi í gær.
Svavar Gestsson, þing-
flokksformaður Alþýðu-
bandalagsins, sagði í um-
ræðum á Alþingi í gær um um-
deilt frumvarp um Landsvirkj-
un, að fyrirhugaðar breytingar
á skipan stjórnar fyrirtækisins
væru liður í pólitískum hrossa-
kaupum stjórnarflokkanna.
Þeir ætli að skipta á milli sín
forstjórastólnum og stjórnarfor-
mennskunni.
Gert er ráð fyrir að Halldór
Jónatansson láti af starfi for-
stjóra næstu áramót, en stjórn
Landsvirkjunar ræður eftir-
mann hans. í henni sitja núna 9
menn, þar af 4 fulltrúar ríkisins
sem Alþingi kýs. Samkvæmt
frumvarpinu á iðnaðarráðherra
að skipa alla frá ríkinu. „Þannig
að eftir að þeir eru búnir að
Friðrik er á leið í Landsvirkjun,
segir Svavar. Mynd: Pjetur
koma þessu saman hafa þeir
öruggan meirihluta og ráða
ferðinni," segir Svavar. Hann
gaf í skyn í umræðunum í gær
að stjórnarflokkarnir væru bún-
ir að semja um arftaka Halldórs
Jónatanssonar og átti þar við
Friðrik Sóphusson, ijármála-
ráðherra, sem ítrekað hefur
verið orðaður við forstjórastól-
inn.
„Það er slæmt að raforkunot-
endur á íslandi skuli þurfa að
borga hálfan milljarð á ári ofan
á rafmagnsverðið sitt, á næstu
árum, fyrir hrossakaup Fram-
sóknarflokksins,“sagði Svavar.
Listaskólinn
Þykkt ryklag á gólfum og kaffiaðstaðan þætti hvergi mannsæmandi. Þetta hús var hannað sem sláturhús og það
er ekki hægt að laga það að þörfum listaskóla, segja nemendur í Myndlista- og handíðaskólanum í Laugarnesi.
Myndir: Hilmar
Petta er algjört
hneyksli
Húsnæði Myndlista-
og Handíðaskólans er
heilsuspillandi og
ekki mönnum bjóð-
andi, segja nemend-
ur. Þeir hafa farið
fram á það við Heil-
brigðiseftirlit
Reykjavíkur að það
loki húsinu.
Við erum búin að fá nóg.
Við ætlum ekki að vera
hér lengur. Þetta er al-
gjört rugl og hneyksli," segir
Helga Þórsdóttir, skólaráðsfuil-
trúi og nemandi í Myndlista- og
handíðaskólanum í Laugarnesi.
Nemendafélagið hefur sent
Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur
kæru vegna aðstöðu myndlist-
ardeildar skólans, sem er í
kjallara fyrrum húsnæðis Slát-
urfélags Suðurlands í Laugar-
nesi. Þar segir m.a að loftræst-
ing sé óvirk og niðurföll stífluð.
Húsið sé mjög kalt á veturna og
dæmi um að fólk hafi fengið
bronkitis og fleiri kuldatengda,
krómska sjúkdóma. Sumar
kennslustofur séu án rennandi
vatns og engin stofa hafi verið
þrifin í vetur, en mýs og önnur
óværa eigi greiðan aðgang inn.
Gólfin séu ekki rykbundin og
ekki þrifin og því myndist fín-
gert steinryk inni, sem erti önd-
unarfæri. f bréfi nemenda til
heilbrigðiseftirlitsins segir jafn-
framt að þeir ætli ekki að sætta
sig við að enn ein undanþágan
verði veitt fyrir áframhaldandi
kennslu, „því ekki er nóg að
plástra yfir stóra skurði. Nú
óskum við eftir tafarlausum að-
gerðum, af hálfu heilbrigðiseft-
irlitsins í formi þess að húsinu
verði lokað,“ segir orðrétt í
kærunni.
Vinnueftirlit ríkisins veitti
Myndlista- og handíðaskólanum
bráðabirgðaleyfi 1992 til þess
að nota kjallara SS hússins til
kennslu. Það rann út fyrir ári,
en „ekkert bendir til þess að á
næstunni verði staðið við þær
framtíðaráætlanir, sem bráða-
birgðaleyfið byggðist á,“ segir í
bréfi eftirlitsins tfl skólans í
desember síðastliðnum. Þar var
þess krafist að tafarlaust yrði
bætt úr loftræstingu, þrifum og
fleiru í húsinu. Gylfi Már Guð-
jónsson, tæknifulltrúi eftirhts-
ins, segir að verið sé að vinna í
málinu. Búið sé að ræða við
verktakann sem sjái um þrifin
og einnig að yfirfara loftræst-
ingu. Hluti af vandanum sé að
reykt sé alls staðar í húsinu,
þótt það sé bannað. Þá séu gólf-
in vandamál, því þau halla, en
ekki sé gott að eiga við það fyrr
en í sumar, þegar kennslu sé
lokið. Ekki náðist í Heilbrigðis-
eftirlitið í gær. -vj
Lífið í landinu
Hvað þýða
einkunn-
irnar
. 6
ísiensk náttúra í
ióðlegu siónvarpi
FAXNÚMER
AIKLÝSINGADEILDAR ER
5516210