Dagur - Tíminn Reykjavík - 05.02.1997, Qupperneq 4
4 - Miðvikudagur 5. febrúar 1997
|DagurJ3Imrám
ASÍ
Fastar húsnæðisbætur
í stað vaxtabótanna
Innan verkalýðshreyfingar er
töluverður áhugi fyrir því að
teknar verði upp fastar hús-
næðisbætur í stað vaxtabóta-
kerfisins sem þykir
skuldhvetjandi. Ef af yrði
mundi þessi breyting leiða til
þess að fólk mundi fá hlutfalls-
lega meiri vaxtaniðurgreiðslu
því minna sem það væri með í
lánum. Útfærsla á þessari
breytingu er þó ekki talin ein-
föld í framkvæmd.
„Við höfum alltaf verið
þeirrar skoðunar að vaxtabóta-
kerfið sé ekki skynsamlegt.
Bæði út af tekjutengingunni og
þá ekki síst að það er svo rosa-
lega skuldhvetjandi," segir Gylfi
Arnbjörnsson, hagfræðingur
ASÍ.
Hann bendir á að þegar fólk
er með mjög mikil vaxtagjöld
þá fái það miklar vaxtabætur
og niðurgreiðslur frá ríkinu. En
til þess að standa undir miklum
vaxtagjöldum þurfa menn ein-
att að hafa miklar tekjur.
Þessar hugmyndir inn breyt-
ingar á vaxtabótakerfinu er
verið að vinna að í tengslum við
væntanlega kröfugerð verka-
lýðshreyfingar á hendur ríkinu
vegna komandi kjarasamninga.
Samhliða því er verið að vinna
að tillögugerð um breytingar á
skattakerfinu með áherslu á
lækkun jaðarskatta hjá lág-
tekjufólki og fólki með meðal-
tekjur sem þarf
einatt að greiða yf-
ir 60% í jaðar-
skatta. í efnum
hefur komið upp
hugmynd um fjöi-
þrepa skattkerfi
með stighækkandi
tekjuskatti.
Hagfræðingur
ASÍ segir að í al-
þjóðlegum saman-
burði séu jaðar-
skattar hæstir hjá
íslenskum meðaljónum á sama
tíma og þeir séu lægstir hjá há-
tekjufólki. Þessu sé hins vegar
alveg þveröfugt farið hjá öðrum
þjóðum. -grh
Gylfi Arnbjörnsson
hagfræðingur ASI
„Við höfum alltaf verið
þeirrar skoðunar að
vaxtabótakerfið sé
ekki skynsamlegt. “
Sjávarútvegur
Nýtt skipurit hjá SH
Sölumiðstöð hraðfrystihús-
anna var breytt í hlutafó-
lag trm síðustu áramót og
á fyrsta stjórnarfundi félagsins
sem hlutafélags nýverið var
samþykkt nýtt skipurit fyrir fyr-
irtækið. Gylfi Þór Magnússon,
sem gegnt hefur stöðu fram-
kvæmdastjora markaðsmála,
verður framkvæmdastjóri er-
lendra verkefna jafnfram því að
gegna áfram starfi forstöðu-
manns skrifstofu SH á Akur-
eyri. Kristján Hjaltason tekur
við starfi framkvæmdastjóra
þjónustu og markaðsmála en
hefur stýrt söluskrifstofu SH í
Hamborg. Við starfi Kristjáns
tekur Sturlaugur Daðason,
framkvæmdastj óri.
Friðrik Pálsson, forstjóri SH,
segir að mjög hafi safnast að SH
erlend verkefni upp á síðkastið,
en til þessa hefur því aðallega
verið sinnt gegnum dótturfyrir-
tækið ICECON. Pétur Einarsson,
sem þar hefur verið fram-
kvæmdastjóri, hefur tekið að sér
að fylgja eftir Nílarkarfaverkefni
SH við Viktoríuvatn. GG
Austurland
Reykjavík
Iðnaðarmenn 130 ára
í vikunni fögnuðu reykvískir iðnaðarmenn og velunnarar þeirra að
130 ár voru liðin frá stofnun Iðnaðarmannafélags Reykjavíkur. l'
samræmi við tilgang frumkvöðlana að efla menntun og menningu
iðnaðarmanna hefur stjórn félagsins ákveðið að veita upplýsinga-
skrifstofu INF- 2000 áætlunar ESB aðstöðu á skrifstofu félagsins.
En innan þeirrar áætlunar er rekin svokölluð MIDAS-skrifstofa
sem hefur það að markmiði að koma nýjustu upplýsingatækni til
íslenskra fyrirtækja. -grh
Toppstöður
Níu vilja komast
rnn í Iistasafnið
Níu umsóknir bárust um
stöðu forstöðumanns
Listasafns íslands en um-
sóknarfrestur rann út um síð-
ustu mánaðamót. Björn Bjarna-
son menntamálaráðherra ræður
í stöðuna til fimm ára frá og með
1. mars næstkomandi eftir um-
sögn frá safnráði Listasafnsins.
Umsækjendur eru Guðmund-
ur R. Lúðvíksson myndlistar-
maður, Hrafnhildur Schram
listfræðingur, Ólafur Kvaran
listfræðingur, Þorgeir Ólafsson
listfræðingur, Aðalsteinn Ing-
ólfsson listfræðingur, Sigríður
Gunnarsdóttir listfræðingur,
Halldór Björn Runólfsson list-
fræðingur, Guðbjörg Kristjáns-
dóttir listfræðingur og Guðrún
Helga Jónasdóttir listfræðingur.
-GHS
Tvenn stórafinæli á árínu
Gísli Sverrir Árnason og Hermann Stefánsson halda hér uppi fána með af- Helgi Halldórsson, Jónas Þór Jóhannsson, afmælisnefndarmaður, Jón
mælismerki Hornafjarðar. Mynd:svemrA6aistemsson Guðmundsson og Sigrún Lárusdóttir, einnig í afmælisnefnd, á kynningar-
fundi sem haldinn var í hertrukk á Þverklettum á Egilsstöðum. Mynd: sbb
Tvö bæjarfélög á Austur-
landi eiga stórafmæli á
þessu ári, en það eru Höfn
í Hornafirði sem á 100 ára af-
mæli og Egilsstaðir verða fimm-
tugir. A báðum stöðum verður
áfanganna minnst með ýmis-
konar menningarviðburðum.
Upphaf byggðar á Höfn í
Hornafirði er miðað við flutning
verslunar Ottós Túhníusar frá
Papósi í Lóni til Hafnar árið
1897. Verslun á sér þó miklu
lengri sögu, því fyrir tíma einok-
unarverslunar sem komst á árið
1602, sigldu þýskir kaupmenn
inn á Hornaíjörð og áttu við-
skipti við heimamenn. Á einok-
unartímanum sóttu íbúar
Hornaljarðar verslun til Djúpa-
vogs. Um 1860 verður Papós
verslunarstaðiu- og er löggiltur
sem slíkur 1861. Ottó Túlimus
ákveður svo að flytja verslunina
til Hafnar og fleytti hann húsi
sínu sjóleiðina þangað.
Hafnarhreppur var stofnaður
1946, breytt í bæ 1988 og 1994
sameinuðust síðan Höfn, Nes og
Mýrar í eitt sveitarfélag, hið
íjölmennasta á Austurlandi.
Afmælisins verður minnst
með ýmsu móti og mun viða-
mikil menningardagskrá verða í
hverjum mánuði. Helgina 4.-6.
júlí verða aðalhátfðahöldin, þar
sem meðal annarra forseti ís-
lands og frú munu heiðra sam-
komuna. Vinabæjarmót nor-
rænna vinabæja Hornafjarðar
verður þessa helgi, sem og
Humarhátíð með tilheyrandi
húllumhæi frá morgni til kvölds.
í tilefni afmælisins hefur ver-
ið ákveðið að gefa út geisladisk
með 11 hornfirskum lögum sem
vel flest urðu til í tengslum við
samkeppni um afmælislag, sem
haldin var sl. haust. Hornfirð-
ingurinn Grétar Örvarsson mun
sjá um þessa útgáfu og fá til
liðs við sig hina ýmsu lista-
menn. Áætlaður útgáfudagur er
12.apríl.
Formaður afmælisnefndar er
Gísli Sverrir Árnason og fram-
kvæmdastjóri Haukur Ilelgi
Þorvaldsson.
Egilsstaðir
Sveitarfélagið Egilsstaðir var
stofnað með lögum árið 1947,
það var samþykkt þann 24. maí
það ár.
Egilsstaðabær er aðeins hálf-
drættingur á við Höfn er að
aldri kemur, engu að síður
stendur mikið til á þeim bæ á
afmælisárinu.
Segja má að hátíðahöldin
hafi byrjað með þorrablóti sl.
föstudag og má gera ráð fyrir
að árið verði líflegt ef miðað er
við þá byrjun.
Meðal þess sem gert verður í
tilefni þessara tímamóta er að
gefa út sögu Egilsstaðabæjar á
afmælisdaginn. Það er veglegt
rit sem ýmsir velunnarar bæj-
arins rita í og er Björn Vigfús-
son, menntaskólakennari,
rtstjóri verksins.
Unglingadeild Leikfélags
Fljótsdalshéraðs og Leikfélags
Menntaskólans á Egilsstöðum
munu í samvinnu við Gunnar
Gunnsteinsson, leikstjóra,
semja leikverk sem frumsýnt
verður 1. mars.
Hátíðardagskrá afmælis-
nefndar verður helgina 27.-29.
júní. Forseti íslands og frú
munu þá koma í heimsókn auk
þess sem ýmsir menningarvið-
burðir fara fram. Sérstaklega
skal geta 24 stunda tónverks í
umsjá Charles Ross, tónlistar-
kennara á Egilsstöðum, en það
verður flutt þessa helgi. í sept-
ember verða svo tilkynnt úrslit í
Ijósmyndasamkeppni um Lag-
arfljótsorminn, hvar þáttakend-
ur þurfa að hafa fest ófreskjuna
á filmu,og verður spennandi að
sjá hversu margar myndir ber-
ast í þá keppni. Verðlaunafé er
500.000 kr.
Það er Helgi Ilalldórsson,
bæjarstjóri, sem er formaður
afmælisnefndarinnar og starfs-
maður hennar er fjöllistamað-
urinn Jón Guðmundsson, skóla-
stjóri Tónlistarskólans á Egils-
stöðum.