Dagur - Tíminn Reykjavík - 05.02.1997, Blaðsíða 6
6 - Miðvikudagur 5. febrúar 1997
|Bagur-'3ímnrat
FRÉTTASKÝRI
N G
Þorsteinn
Gunnarsson
skrifar
Hafi íslendingar
einhvern tímann haft
gullið tækifæri til að
koma náttúrufegurð
sinni og fuglaparadís
á framfæri, þá verður
það dagana 28. apríl
til 9. maí þegar
svokallað Jason-
verkefni fer af stað í
beinni útsendingu
um allan heim.
Undirbúningur stendur
sem hæst þessa dagana
bæði hér á landi og í
Bandaríkjunum en um beinar
útsendingar verður að ræða frá
Vestmannaeyjum, Mývatni, lík-
lega Vatnajökli og frá Yellow-
stone í Bandaríkjunum, alls 5
klukkustundir á dag! Ekki er
vitað nákvæmlega hve stór hluti
útsendinganna verður frá ís-
landi en það verða a.m.k. 2-3
klst. á dag ef ekki meira. Hér er
um gríðarlega umfangsmikið
verkefni að ræða en kostnaður
nemur um 200 milljónum
króna.
Þetta áttunda verkefni
Jasonstofnunarinnar kallast
„Journey from the center of the
Earth“ og gæti útleggst á ís-
lensku „Úr iðrum jarðar“. Nem-
endur úr öllum heimshornum
munu koma til með að taka
þátt og fylgjast með rannsókn-
um á íslandi og Yellowstone. Á
heimasíðu Jasonstofnunarinnar
má lesa að nemendur, kennarar
og vísindamenn munu ásamt
dr. Robert Ballard, stofnanda
Jasonstofnunarinnar, taka þátt
í rannsóknum á jöklum, virkum
eldfjöllum ásamt fuglalífl á ís-
landi og Yellowstone í beinni
sjónvarpsútsendingu frá þess-
um stöðum, dagana 28. apríl til
9. maí nk.
Gagnvirkar sjónvarps-
útsendingar
ísland og Yellowstone urðu fyrir
valinu að þessu sinni þar sem
báðir þessir staðir liggja ofan á
virkum eldhrygg sem getur
sprungið hvenær sem er.
Einnig er sérstaklega getið
náttúrufegurðar á íslandi. Það
var Jason stofnuninni til happs
þegar ákveðið var að fara til Is-
lands sl. sumar, og hefur aukið
áhugann á verkefninu til muna,
að það skyldi byrja að gjósa í
Vatnajökli í haust. Einnig er
sagt frá hlaupinu úr jöklinum
og þeim stórbrotnu náttúru-
hamförum sem þá áttu sér stað.
Auk beinna sjónvarpsútsend-
inga verður hægt að fylgjast ná-
(31ítgur-®tmíraT
ið með þessu verkefni á heima-
síðu Jasonstofnunarinnar á net-
inu. Einnig verður um gagn-
virkar sjónvarpssendingar að
ræða í gegnum gervihnött þar
sem nemendur og kennarar, í
hinum ýmsu heimsálfum, geta
skipst á skoðunum og upplýs-
ingum í gegnum sjónvarpsskjá.
En það sem fer fram þessar
tvær vikur er aðeins toppurinn
á ísjakanum. Undanfarnar vik-
ur og mánuði hafa nemendur,
aðallega í Bandaríkjunum,
Bermuda, íslandi, Bretlandseyj-
um og Mexikó verið að undir-
búa og framkvæma ýmsar og
borið saman bækur sínar. Þeir
kennarar sem hafa ákveðið að
láta nemendur sína taka þátt í
verkefninu fá öll gögn frá
Jasonstofnuninni og hafa yfir-
umsjón með vinnunni í sam-
vinnu við stofnunina.
Nemendurnir eru þessa dag-
ana að rannsaka sitt nánasta
umhverfi í sínum heimalöndum
og nota sömu vísindalegu að-
ferðirnar og vísindamenn
Jasonstofnunarinnar munu
gera á ísland. Nemendurnir
safna ýmsum gögnum til að
vinna úr og rannsaka á gagn-
rýnan hátt og bera svo bækur
sínar saman við aðra nemendur
víða um heim.
Mikilvægast samskiptahlekk-
urinn er Jasonstofnunin sjálf. í
gegnum „Jason Onhne System“
er hægt að skipast á upplýsing-
um, hugmyndum og nálgast
einnig mikilvægar upplýsingar.
Heimsathygli
Búast má við því að verkefnið
ÚR IÐRUM JARÐAR eigi eftir að
hljóta gífurlega athygli um
heim allan. Meðal annars er
vonast til þess að stærstu fjöl-
miðlar heims sem sérhæfa sig í
náttúru og vísundum, eins og
t.d. National Geographic og
Good morning America, svo
eitthvað sé nefnt, muni fylgjast
grannt með verkefninu. Hingað
tU hafa verkefnin verið mjög
íjiilbreytt, allt frá því að rann-
saka aldagömul skipsflök á
hafsbotni upp í að rannsaka
regnskóga og kóralrif í Belíz,
svo eitthvað sé nefnt.
Dr. Ballard stofnaði Jason
stofnunina árið 1989 eftir að
hafa fyrstur manna fundið ílak
hins heimsfræga Titanic á hafs-
botni. Eftir að hafa fengið þús-
undir bréfa frá nemendum úr
öllum heimshornum með fyrir-
spurnum um fundinn á Titanic,
ákvað dr. Ballard að fylgja því
eftir með því að rannsaka ýmis-
legt annað forvitnilegt og nota
nýjustu tækni til að rniðla því til
nemenda víðs vegar um heim-
inn.
Jasonstofnunin er fjármögn-
uð með frjálsum framlögum
ýmissa einstaklinga, opinberra
aðila og fyrirtækja sem vUja
leggja sitt af mörkum til að efla
vísindarannsóknir í þágu nem-
enda um heim allan.
Einstakt tækifæri
Gísli Óskarsson, kennari við
Barnaskólann í Vestmannaeyj-
um, er fulltrúi Barnaskólans í
Jason-verkefninu og stýrir þeim
hópi nemenda í Vestmannaeyj-
um sem kemur til með að taka
þátt í verkefninu. Jasonstofnun-
in undirbýr námskrá en Gísli og
nemendur hans verkefnin og
munu þau framkvæmda til-
raunir í beinni útsendingu. Að
tilraununum loknum sitja þau
fyrir svörum því um gagnvirkar
sjónvarpsútsendingar verður að
ræða. Talið er a.m.k. 750 þús-
und nemendur víðs vegar um
heim verði í beinlínutengingu
og fylgist með því hvað hér fer
fram og í Yellowstone í Banda-
ríkjunum.
„Þetta er afskaplega áhuga-
vert og toppurinn á skólastarf-
inu. Við munum skoða fuglalífið
og kanna Eldfell, t.d. hvort hægt
er að spæla egg þar, kveikja í
blöðum, mæla hitastig o.fl. Verk-
efnið hefur vaxið að umfangi og
mikil tmdirbúningsvinna fram-
undan. Við höfum verið inni á
Internetinu einu sinni viku, við
erum að kortleggja lundabyggð-
ir í Stórhöfða og ýmislegt fleira.
Verkefnið felst í rannsóknum á
samspili manns og dýra við nátt-
úruna.
Ég held að aldrei hafi annað
eins tækifæri rekist á fjörur ís-
lenskra skólabarna. Bara þetta
segir að grunnskólarnir í Eyjum
fá ekki falleinkunn á alþjóða-
vettvangi í stærðfræði. Greini-
legt er að sumir eru að gera
góða hluti,“ segir Gísli.
Búist er við að fulltrúar frá
Jason stofnuninni ásamt að-
stoðarfólki komi til Eyja í byrj-
un apríl til að setja upp búnað
fyrir útsendingarnar. Búið er að
leysa helstu tæknilegu vanda-
málin við útsendingarnar en
eins og gefur að skilja er gífur-
leg tækni á bak við gagnvirkar
sjónvarpsútsendingar.
ÞoGu/Eyjum
Dagur-Tíminn og Stafnbúar boða til
borgarafundar
á Sigltifirði á Hótel Læk fimmtudagiim 6. februar
kl. 20:30.
Dagsfcrá:
stjórn'ð' Ávarp og setning fundarins.
Byggða-
stefna
Arðsemi
Framsögujnenn:
Ólafur Marteinsson,
framkvæmdastjóri Þormóðs ramma.
Kristján L. Möller,
forsetibæjarstjómar Siglufjarðar.
Sveinn Hj. Hjartarson, hagfræðingur LÍÚ.
Kaffthlé. -Pállborðsumræður.
ALLIR VELKOMNIR
EIMSKIP
Akureyri