Dagur - Tíminn Reykjavík - 05.02.1997, Side 9

Dagur - Tíminn Reykjavík - 05.02.1997, Side 9
JQagur-'QImTOm Miðvikudagur 5. febrúar 1997 - 9 ÞJÓÐMÁL Að eiga sér land að vini Herðubreið séð með augum listamannsins Stefáns frá Möðrudal - starfsbróðir hans Halldór gagnrýnir fram- kvæmdir við fiallið. Halldór Ásgeirsson myndlistar- og leiðsögumaður skrifar Fyrir rúmu ári síðan, nánar tiltekið 1. október 1995, birtist í Morgunblaðinu ljóð eftir Matthías Jóhannessen skáld og ritstjóra er ber heitið „Herðubreið". Með ljóðinu birt- ist stór ljósmynd frá Herðu- breiðarlindum ásamt litprent- unum af fjórum málverkum eft- ir jafn marga listamenn er sýndu mismimandi túlkanir þeirra á þessari einstæðu nátt- úruperlu. Birting ljóðsins og myndanna var eins og hylling til vinjar í náttúru landsins og væri varla frásagnarverð nema í fylgsnum hugans ef ekki skyldu blasa við aðrar kald- ranalegar staðreyndir. - Á sama tíma samþykktu stjórnvöld lagningu háspennumastra inn á Herðubreiðarsvæðið þrátt fyrir ítrekuð mótmæli og skynsamar ábendingar um aðrar betri lausnir. Það gefur auga leið að mannvirki í nánd við náttúru- fyrirbæri á öræfum kemur til með að skekkja myndina af staðnum, breyta stemmning- unni og skemma þá upplifun sem við myndum annars njóta. Því miður er framangreint dæmi eitt af mörgum sem við okkur blasa í dag og enn virð- ast árekstrar mannvirkja, með tilheyrandi mengun og jarð- raski, og náttúru aukast stór- lega ef nýjustu áform stjórn- valda um byggingu álvers í Hvalfirði verða að veruleika. Síðastbðin fimmtán sumur hefur undirritaður starfað sem leiðsögumaður á öræfum og þekkir því vel staðhætti og þær breytingar sem hafa átt sér stað á landinu á ekki lengri tíma. Af kynnum mínum við erlenda ferðamenn kemur iðulega fram þakklæti fyrir að fá að dvelja í faðmi óspilltrar náttúru. Fólk sækir hingað til þess að geta gengið óáreitt í ijölbreyttu landslagi, hvort sem það eru víðáttumiklir sandar eða grösug gil, beljandi jökulár eða kyrrlát vötn, það sækir í þann kraft sem náttúruöflin hafa skapað. Sú upplifun er dýrmæt og það eru viss forréttindi að ísland er enn eitt af fáum stöðum í Evr- ópu þar sem almenningur kemst auðveldlega í snertingu við óspillta náttúruna án mann- virkja. En nú er vá fyrir dyrum, ásýnd landsins eins og við þekkjum hana gæti gjörbreyst á örfáum árum, ímynd landsins útávið beðið álitshnekki og í kjölfarið er verið að vega að Nú er vá fyrir dyrum, ásýnd landsins eins og við þekkjum hana gæti gjörbreyst á ör- fáum árum, ímynd landsins út á við beð- ið álitshnekki. Ég vil halda því fram að hér sé um að ræða eitt af örlagaríkustu málum í sögu þjóðarinnar. áframhaidandi búsetu og þróun bændamenningar. Ég vil halda því fram að hér sé um að ræða eitt af örlagaríkustu málum í sögu þjóðarinnar. Það er tvískinnungsháttur af hálfu íslenskra stjórnvalda að leggja annars vegar áherslu á ferðaþjónustu og vistvænan landbúnað, og hins vegar að vera með gríðarleg stóriðju- og virkjunaráform. Á að fórna ein- stöku gróður- og fuglalífi, gljúfrum og fossum, leggja heilu landsvæðin undir uppi- stöðulón einungis vegna vald- hroka, flausturgangs og skammsýni einstakra embættis- og stjórnmálamanna? Og hver verður dreginn til ábyrgðar þegar skaðinn er skeður? Eða er það afl gróðafyrirtækja sem stjórna ráðamönnum á bakvið tjöldin? Ég vil einnig minna á að þetta er spurning um sið- ferði og virðingu gagnvart nátt- úrunni og landsins gæðum. Undirritaður hefur ekkert á móti því að nýta orku til verð- mætasköpunar en það verður að vera gert af heilbrigðri skyn- semi, virkja hugvitið til hins ýtrasta og skoða alla möguleika á hverjum stað áður en ætt er út í framkvæmdir. Almennt verðmætamat hefur hinsvegar breyst að undanförnu. Það sem við töldum einskis vert fyrir fimmtíu árum, sbr. óbyggðirnar, er orðið það dýrmætasta sem við eigum í dag. Ég vona og trúi enn ekki öðru, en að hægt sé að snúa at- burðarásinni við og breyta ákvörðun stjómvalda. Upprisa bændanna í Hvalfirði er sönnun þess að hvorki hefur tekist að blekkja né svæfa þjóðna með öllu. Sú hreyfing gæti orðið að þverpólitískri fjöldahreyfingu. Við þurfum einfaldlega að breyta hugarfari og afstöðu okkar til umhverfismála, skapa nýja fyrirmynd og fordæmi og he§a umræðu um þau gildi sem við teljum skipta okkur mestu máh. Ella verður það svo í framtíðinni að við munum ein- ungis geta huggað okkur við glataðar náttúruperlm- í gegn- um ljóð og myndir er sköpuð voru áður en eyðilegging mannsins kom þar við sögu. Landsbyggðarsj úkrahúsin Kri^jánsson egar fjárfög ársins 1997 voru undirbúin var það markmið sett að skila þeim hallalausum. Fjárlaga- rammar voru settir upp fyrir hvert ráðuneyti. Ákveðið var að taka ekki upp ný þjónustugjöld í heilbrigðiskerfinu. Þess vegna beindust sjónir að því hvort hægt væri með hagræðingarað- gerðum að spara í sjúkra- húsarekstrinum í landinu. Samningur var gerður um sam- vinnu sjúkrahúsanna á höfðuð- borgarsvæðinu á ýmsum svið- um, og fylgist verkefnisstjórn með framkvæmd þess verkefnis sem á að hafa í för með sér sparnað upp á 3-400 milljónir króna. Einnig er í gangi sérstök úttekt á sjúkrahúsarekstrinum þar og í nágrannabyggðum, Hafnarfirði, Akranesi, Selfossi og Keflavík. Það markmið var sett við gerð fjárlaga að spara 160 milljónir króna í rekstri lands- byggðarsjúkrahúsanna. Við framlagningu fjárlaga var sett á fót á vegum heilbrigðisráðu- neytisins nefnd til þess að út- færa þennan sparnað. Ég átti sæti í þeirri nefnd sem starfaði samhliða ijárlagavinnunni. Niðurstöðurnar af þessu starfi voru þessar í meginatrið- um: 1. Ekki væri mögulegt að ná þessum sparnaði á einu ári. 2. Koma þyrfti á samráði og viðræðum við stjórnir og fram- kvæmdastjóra sjúkrahúsa og sveitarstjórnarmenn um skipu- lag heilbrigðisþjónustunnar á upptökusvæðum sjúkrahúsanna og í einstökum landshlutum. 3. Rétt væri að setja mark- mið um 60 milljón króna sparn- að á árinu 1997. 4. Ekki væri rétt að fara í flatan niðurskurð, en setja hins vegar upp hugmynd að sparn- aði sem byggð væri á héraðs- hlutdeild, upptökusvæði og kostnaði á sjúkrarúm. í Ijósi þess að nefndin taldi rétt að efna til samráðs um þessi efni var fallið frá því við afgreiðslu ljárlaga að skipta sparnaðinum á hvert sjúkra- hús. Rétt þótti að gefa heima- mönnum tækifæri til þess að fjalla um þær forsendur sem unnar höfðu verið í málinu, og draga fram sína sérstöðu og setja fram sínar hugmyndir um hagræðingu. Eftir áramót var síðan sett verkefnisstjórn í máhð sem í eiga sæti Kristján Erlendsson, skrifstofustjóri heilbrigðisráðu- Það markmið var sett við gerð fjárlaga að spara 160 mil|jónir króna í rekstri lands- byggðarsjúkrahús- anna. Ég á sæti í nefnd sem var sett á fót á vegum heil- brigðisráðuneytisins til þess að útfæra þennan sparnað. neytisins, Ólafur Hjálmarsson frá fjármálaráðuneyti, Einar Oddur Kristjánsson og greinar- höfundur. Stjórnum sjúkrahúsa og framkvæmdastjórum var síð- an kynnt málið síðari hluta janúarmánaðar og gefinn frest- ur til umræðu um það á heima- vettvangi. Ætlunin er síðan að fara yfir umsagnir þessara að- ila og efna til viðræðna á nýjan Ieik í mars um málið. Heilbrigðisþjónustan er einn af grundvallarþáttum lífsskil- yrða í hverju byggðarlagi, ekki síst sjúkrahúsaþjónustan. Þessi mál eru því viðkvæm, eins og sést hefur á þeirri fjölmiðlaum- fjöliim sem farið hefur fram um þau. Nokkur meginatriði er rétt- að hafa í huga þegar þessi mál eru rædd. 1) Engum niðurskurði hefur verið deilt út á stofnanir, en hugmyndir settar fram sem eru til umræðu. 2) Ekki eru nein áform um að skerða þá þjónustu sem er nú á landsbyggðarsjúkrahúsun- um, 3) Kanna ber hvort aukinn samrekstur heilsugæslustöðva, öldrunarþjónustu og sjúkra- húsa gæti orðið til hagræðingar. 4) Kanna þarf sérstaklega hvort aukin verkefni, samvinna við stærri sjúkrahús um sér- fræðiþjónustu gætu styrkt heil- brigðisþjónustuna í viðkomandi byggðarlagi, og aukin umsvif leiði til endurmats á fjárlaga- ramma viðkomandi sjúkrahúsa. 5) Kanna þarf hvort samstarf nálægra heilbrigðisstofnana getur leitt til hagræðingar. Vegna þeirrar um- ræðu sem orðið hefur um sparnað á lands- byggðarsjúkrahúsun- um vil ég í stuttu máii rekja atburðarás málsins, eftir að ég kom að vinnu heil- brigðisráðuneytisins í þessu máli og einnig í fjárlaganefnd. Þótt í þessi mál sé farið und- ir forsendum sparnaðar ætti þessi vinna, ef bærilegt sam- starf tekst, að geta leitt til gagnlegrar úttektar á heilbrigð- isþjónustunni í þeim anda að styrkja innviði hennar og skipu- lag. Ég vona og vil gera mitt til að samráð verði sem best um þessa hluti og ég tel mig reynd- ar hafa unnið í þeim anda hing- að til.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.