Dagur - Tíminn Reykjavík - 12.02.1997, Qupperneq 2
1
2 - Miðvikudagur 12. febrúar 1997
|Dagur-®inttTOx
Heiti Potturinn
Alþingi var í gær að ræða
um kirkjuleg málefni og
endurbætur á lögum um ytri
umgjörð kirkjunnar. í pottinum
kom fram að meðal þeirra sem
tóku til máls var sr. Hjálmar
Jónsson sem taldi mikla bót af
því frumvarpi sem á dagskrá
var og tók svo djúpt í árinni að
sennilega væru þarna á ferð-
inni mestu úrbætur á ytri að-
stæðum kirkjunnar frá því
siðaskipti fóru fram hér á landi.
Meðal þeirra sem fögnuðu því
að vera þingmenn og þátttak-
endur í þessari miklu kirkjubót
var Jón Kristjánsson, formaður
fjárlaganefndar, sem orti:
Öldurnar meðan úthafið gára
auka kirkjunnar veg,
siðbótarmenn hinna síðari ára,
sr. Hjálmar og ég.
Kröfugerð Verslunamanna-
félags Reykjavíkur hefur
mælst misvel fyrir. Það kom
engum á óvart þó vinnuveit-
endum þætti VR spenna bog-
ann of hátt og í pottinum
gengu menn jafnvel svo langt
að fullyrða að allt annað en
krafa um kauplækkun hefði
verið of mikið fyrir Þórarin Við-
ar Þórarinsson. En félagar VR í
ASÍ munu ekki vera á sömu
skoðun og VSÍ. í pottinum er
fullyrt að í hinum ýmsu félög-
um og samböndum séu menn
á suðupunkti yfir kröfugerð VR
- menn telji hana svo lága að
hún stórspilli fyrir möguleikum
annarra.....
r
Ipottinum heyrist að ýmsir af
kröfuhöfum Stöðvar 3 sem
gengu til nauðasamninga á
dögunum séu nú að verða
langeygir eftir að fá umsamdar
skuldir greiddar þó þeir séu
svosem ekki farnir að
örvænta. Sérstaklega mun
mönnum þó finnast skýring-
arnar óvenjulegar þegar þeir
rukka, en einhverjir munu hafa
fengið þau svör að ekki hafi
gefist tími til að greiða þessa
reikninga..
Iðja óhress
með gang
viðræðna
F R É T T I R
Sigríður við dráttarvélina sem hún keyrði frá Reykjavík austur á Jökuldal. Mynd Arndís
Álftagerðisbræður
styttu stundimar
etta er ekkert til að gera
veður út af, og ég geri
þetta mest að gamni
mínu,“ segir Sigríður Ragnars-
dóttir, húsfreyja á Brú á Jökul-
dal, sem um miðjan janúar-
mánuð brá sér suður til Reykja-
víkur þeirra erinda að sækja
traktor, sem hún keyrði síðan
austur á land. Upphaflega ætl-
aði hún sér þrjá daga í ferða-
lagið, en vegna ófærðar á
Möðrudalsöræfum tók ferðin
fjóra daga. Sigríður naut að-
stoðar sonar síns við að koma
vélinni gegnum borgarumferð-
ina og um borð í Akraborgina.
Fyrstu nóttina gisti hún á Akra-
nesi og þaðan hófst hið eigin-
lega ferðalag. Fyrsta daginn ók
hún á Blönduós, en þaðan var
Bóndakona ók
dráttarvél úr Reykja-
vík og austur á land
haldið til Akureyrar. Var það
styttri áfangi en hún upphaf-
lega áætlaði, en vegna ófærðar
og illviðris á Möðrudalsöræfum
ákvað hún að taka sér gistingu
þar. Næsti áfangi var í Mývatns-
sveit, en á fjórða degi fór hún
yfir öræfin og alla leið heim á
Brú. Hafði hún þá ekið hátt í
600 km.
Að undanskildum töfum
vegna ófærðar, gekk ferðin
mjög vel. Ekki var þó hratt farið
þar sem dráttarvélin kemst
mest 30 km. á klukkustund.
Hafði Sigríður spólu með Álfta-
gerðisbræðrum í farteskinu og
styttu þeir henni stundirnar á
þessu óvenjulega ferðalagi.
Sigríður býr sem fyrr segir á
Brú á Jökuldal ásamt manni
sínum Stefáni Halldórssyni.
Segja má að hún sé bæði bónd-
inn og húsfreyjan í vetur, þar
sem Stefán vinnur utan heimilis
við loðnufrystingu á Seyðisfirði.
Það kemur því í hlut húsfreyj-
unnar að hirða tæplega 300
Qár. Slíkt er reyndar engin ný-
lunda á Jökuldal og fást ná-
grannakonur Sigríðar einnig
við fjárgeymslu. -arndís
Félagsfundur Iðju, félags
verksmiðjufólks á Akur-
eyri, átelur harðlega þann
seinagang sem vinnuveitenda-
samböndin sýna með því að
draga samingaviðræðurnar á
langinn og með gerð viðræðu-
áætlunar í októbermánuði sl.
sem talið var að flýtt gæti
samningum. Fundurinn skorar
á atvinnurekendur að sýna
samningsviljann í verki.
Fundurinn lýsir einnig furðu
sinni á þeim fullyrðingum að 70
þúsund króna Iágmarkslaun
kalli á óðaverðbólgu í landinu.
Verkafólk er að missa þolin-
mæðina og gerir kröfur um að
kjör þeirra verði bætt án und-
anbragða. Verði það ekki eiga
verkalýðsfélög ekki um annað
að ræða en að afla sér verk-
fallsheimildar og láta reyna á
samtakamátt sinn. GG
Hvammstangi
Niðurskurði
mótmælt
Hreppsnefnd Hvamms-
tanga samþykkti á fundi
sínum á dögunum álykt-
un þar sem harðlega er mót-
mælt áformuðum niðurskurði í
fjárveitingum til sjúkrahússins á
staðnum, einsog nefnd um hag-
ræðingu í rekstri sjúkrahúsa á
landsbyggðinni leggur til.
„Hreppsnefndin telur að ekki
sé unnt að skerða fjármagn til
rekstursins, án þess að það
komi verulega niður á þeirri
þjónustu sem sjúkrahúsið veitir.
Slíkur niðurskurður á fjárveit-
ingum mun skerða heilbrigðis-
þjónustu á svæðinu og stuðla að
óöryggi íbúanna og enn frekari
byggðaröskum." -sbs.
FRETTAVIÐTALIÐ
Ingólfur Ármannsson
skóla- og menningarfulltrúi
á Akueyri
í kvöld verður haldinn al-
mennur borgarafundur um
breytingar á skólaskipan sunn-
an Glerár. Tillaga skólanefndar
hefur verið mjög umdeild. Ing-
ólfur Ármannsson, skóla- og
menningarfulltrúi Akureyrar-
bœjar, er viðmœlandi dagsins.
„Andstaðan kemur
ekki á óvart"
I stuttu máli er tillaga skólanefndar sú
að skólaskipan sunnan Glerár verði
breytt þannig að myndaðir verði þrír
hverfaskólar frá 1. til 10. bekkjar, það
er Oddeyrar-, Lunda- og Brekkuskóli -
en sá síðastnefndi yrði myndaður með
sameiningu Barnaskóla og Gagnfræða-
skóla Akureyrar. í dag eru fyrstnefndu
skólarnir þrír aðeins fyrir nemendur í
1. til 7. bekk, og Gagnfræðaskólinn síð-
an fyrir nemendur í þremur elstu
bekkjunum.
„Nei, ég get ekki sagt að sú and-
staða sem þessi tillaga hefur fengið
komi neitt á óvart. Það var vitað fyrir
að hugmyndir um hverfiskóla, það er
skóla sem spannar allt grunnskólastig-
ið, ætti misjöfnu fylgi að fagna. En
gangi þessar tillögur skólanefndar Ak-
ureyrar eftir og verði þær að veruleika
yrði farið fljótlega að vinna stefnumót-
unarvinnu til að fylgja henni eftir. Hins
vegar gæti það tekið nokkur ár að
koma henni að öllu leyti í fram-
kvæmd,“ segir Ingólfur.
Augljós kostur
Ingólfur segir að við fyrirhugaðri ein-
setningu grunnskólanna sunnan Gler-
ár sé þetta augljósasti kosturinn. „Sú
stefna hefur verið mörkuð að næstu ár
fari allt fé, sem ætlað er til nýbygginga
skóla, til skóla norðan ár. Því bendir
allt til að peningar verði ekki á lausu
til nýframkvæmda sunnan ár í bráð.
En það er fyrst og síðast pólítísk
ákvörðun af hálfu bæjarstjórnar hvort
fara eigi þá leið að setja hér á fót
hverfisskóla eða þá að halda úti safn-
skóla, líkt og Gagnfræðaskóli Akureyr-
ar er. Ég vil engu spá um hvaða leið
verður farin. Efnislega standa allir
fulltrúar í skólanefnd sameiginlega að
tillögunni - en auðvitað vilja menn líka
heyra viðhorf almennra bæjarbúa, til
þessa máls, áður en endanleg ákvörð-
un er tekin,“ segir Ingólfur.
Einsog áður segir hefur tillagan um
hina breyttu skólaskipan - og þá eink-
um um sameiningu Barna- og Gagn-
fræðaskóla Akureyrar í einn Brekku-
skóla, verið mjög umdeild. Bæði meðal
foreldra, en ekki síður nemenda. „í
máli einsog þessu verður útkoma skoð-
anakannana alltaf háð annars vegar
því hverju viðkomandi eru vanir og
þekkja af eigin raun og hins vegar
mati á því hvað hinir sömu telja að
breytingarnar hafi í för með sér fyrir
þá,“ segir Ingólfur Ármannsson.
-sbs.