Dagur - Tíminn Reykjavík - 12.02.1997, Page 5
|Dagur-'3Iítttmn
Miðvikudagur 12. febrúar 1996 - 5
F R É T T I R
Reykjavík . ■ Akureyri
Löggan í hávaðamálum
Lögreglan mæðist í mörgu. Hver veit nema hér sé á ferðinni hljómflutn-
ingstækjaóbótamaður?
Árlega um 1200 bók-
anir í dagbók lögreglu
vegna kvartana yfir
hávaða, eða 100 í
hverjum mánuði.
✓
hverju ári sl. þrjú ár
hafa verið færðar að
jafnaði rúmlega 1200
bókanir í dagbók lögreglunnar í
Reykjavík vegna kvartana ná-
granna yflr hávaða
í næstu íbúð. Það
eru um 100 bókan-
ir í hverjum mán-
uði, eða 20-25 út-
köll á viku. í lang-
flestum tilfellum
þarf lögreglan að
fara á staðinn til
að meta ástandið
og bregðast við ef
þarf.
Til samanburð-
ar má geta þess að
bókanir vegna skráðra slysa
voru 466 árið 1995 og svipað
árið 1994. Aftur á móti eru ár-
lega um 1300 bókanir í dagbók
lögreglunnar þar sem hún er
kölluð á vettvang til að aðstoða
borgara í nauðum. í því sam-
bandi má nefna þegar fólk læsir
sig úti og kemst ekki inn í íbúð-
ir eða inn í bílana sína o.s.frv.
„Sumir mættu taka sig betur
á og taka meira tillit til þeirra
sem eru í kringum þá,“ segir
Ómar Smári Ármannsson, að-
stoðaryfirlögregluþjónn, að-
spurður hvort þetta sé til marks
um það að landinn sé ekki hús-
um hæfur. Hann segir að í lang-
flestum tilfellum sé fólk sem
kvartað er yflr undir áhrifum
áfengis og jafnvel annarra
vímuefna.
Kvartanir vegna hávaða eru
aðallega frá íbúum fjölbýlis-
húsa og flestar um helgar. ít-
rekuð afskipti lögreglu geta
haft þær afleiðingar að húsfélag
getur krafíst útburðar á eig-
anda viðkomandi íbúðar.
í flestum tilfellum nægir þó
að lögregla banki uppá og biðji
hlutaðeigandi að draga úr há-
vaða til að nágrannarnir geti
sofið. Ef lögregla er kölluð á ný
að sömu íbúð vegna háreisti
gesta er viðbúið að hún sjái sig
nauðbeygða til að vísa þeim á
dyr. Þá er einnig til í dæminu að
lögregla hafi tekið rafmagnsör-
yggi íbúðar úr sambandi.
-grh
Omar Smári Armannsson
aðstoðaryfirlögregluþjónn:
Hávaði í heimahúsum
er íflestum tilfellum
vegna neyslu áfengis.
Bæjarmála-
piinktar
• Bæjarstjórn Akureyrar hefur
samþykkt tiUögu Sigríðar Stef-
ánsdóttur (G) þess efnis að kos-
in verði nefnd íjögurra bæjar-
fulltrúa til að endurskoða í heild
stjórnkerfi Akureyrarbæjar.
Nefndin á að leggja fram tiUög-
ur um breytingar á nefndakerfi
bæjarins og einnig skiptingu
bæjarkerfisins í deildir og svið
eftir því sem þurfa þykir. í
nefndina voru kosin Sigríður
Stefánsdóttir (G), GísU Bragi
Hjartarson (A), Guðmundur
Stefánsson (B), Sigurður J. Sig-
urðsson (D), en bæjarstjóri, Jak-
ob Björnsson, verður einnig í
nefndinni og formaður hennar.
• Forsvarsmenn 17 fyrirtækja á
Óseyri hafa með bréfi mótmælt
harðlega fyrirhugaðri malbik-
unarstöð, sem á að rísa á lóð
Arnarfells hf. að Óseyri 9. Bæj-
aryfirvöld eru hvött til að synja
leyfi fyrir slíkri starfsemi í
hverfinu vegna þungaflutninga
að og frá, rykmengunar og
óþrifa.
• Lagður hefur verið fram
samningur milli Hafnasamlags
Norðurlands og Akureyrarbæjar
þess efnis að Akureyrarbær taki
að sér bókhald, fjárreiður,
launagreiðslur, starfsmanna-
mál, þ.m.t. kjarasamningagerð,
fyrir Hafnasamlag Norðurlands.
Bæjarráð hefur staðfest samn-
inginn. GG
Námsmenn
Björn Bjarnason, menntamáiaráðherra.
Þekki kjör námsmanna
Menntamálaráðherra
sér ekki ástæðu til
að þiggja boð Stúd-
entaráðs um að ger-
ast námsmaður einn
dag, enda þekki hann
kjör námsmanna
mætavel.
Stúdentaráð hefur boðið
Birni Bjarnasyni,
menntamálaráðherra,
að gerast námsmaður í
einn dag í næstu viku. Gert
var ráð fyrir að ráðherrann
sækti um námslán, falaðist
eftir yfirdráttarláni, færi í
greiðslumat og reyndi að
borða nestið sitt í Þjóðar-
bókhlöðunni, ásamt ýmsu
fleiru sem SHÍ telur náms-
menn þurfa að glíma við.
Tilgangurinn var að ráð-
herrann gæti upplifað það
sjálfur hversu brýnt sé að
breyta umdeildum lögum
um Lánasjóð íslenskra
námsmanna, eins og segir í
fréttatilkynningu frá SHI.
Nei takk
Björn ætlar ekki að þekkjast
boðið. Hann verður ekki
viðlátinn þennan dag og
hefur efasemdir um að dag-
skráin sem Stúdentaráð
bauð upp á, sé dæmigerð
fyrir námsmenn.
„í öðru lagi var ég sjálfur
námsmaður í Háskóla ís-
lands í 6 ár, varaformaður
og síðar formaður Stúd-
entaráðs, og bef mikla
reynslu af því að liuga að
hagsmunum námsmanna.
-vj
Náttúruöflin
Flóðahætta í hámarki
á 18-19 ára fresti
Við ákveðna afstöðu
sólar og tungls, á 18-19
ára fresti, samfara
mjög djúpri lægð getur
sjávarhæð farið yfir
5,50 metra.
Sú hætta á miklum sjávar-
flóðmn sem vofði yfir um
síðustu helgi gæti endur-
tekið sig eftir rúmt ár - og síð-
an að 18 árum liðnum. Það
samspil sólar og tungls, sem olli
flóðahættunni núna í byrjun
vikunnar endurtekur sig á 18-
19 ára fresti og stendur þá yfír í
tvö til þrjú ár, samkvæmt upp-
lýsingum Hilmars Ilelgasonar,
forstöðumanns Sjómælinga ís-
lands. Gerist þetta um leið og
mjög djúp lægð gengur yíir,
ásamt óhagstæðum vindáttum
getur það leitt til mikilla sjávar-
flóða og stórtjóns við strendur
landsins.
Við þessar stöður sólar og
tungls fer sjávarhæð í 4,70
metra á stórstraumi (sem er
0,70 metra hærra en meðaltal-
ið) í meðalloftþrýstingi, um
1013 millibörum.
Sjávarhæðin hækkar
síðan (eða lækkar) um
einn sentimetra við
hvert millibar sem
loftþrýstingur lækkar
(eða hækkar). Þannig
að falli loftþrýstingur
t.d. niður undir 930
miUibör, samhliða
þessari sólar/tungl-
stöðu getur sjávar-
hæðin farið upp í 5,50
metra - þ.e. 1,50 metrum
hærra heldur en á stórstraumi
við meðalloftþrýsting.
- HEI
Hilmar Helgason
forstöðum. Sjómælinga Islands:
„í rauninni höjum
við bara verið heppin
hingað til “
Bílslys
Af 9 voru 5 lans
Þriðjungur landsmanna
ferðast með smábörnin
sín laus í bílum.
Um þriðjungur leik-
skólabarna og meira en
fjórðungur grunn-
skólabarna reyndust laus í bíl-
um - alls um 400 af rúmlega
1.300 börnum - í könnun sem
nýlega var gerð um allt land á
notkun öryggisbúnaðar í bflum.
Af 9 börnum sem slösuðust
mikið sem farþegar í bílum
fyrstu 10 mánuðina 1996 var
meira en helmingurinn (5) Iaus
í bílunum. í allt slösuðust 66
börn yngri en fimmtán ára sem
farþegar í bílum þessa mánuði.
Umferðarráð, Slysavarnarfélag
íslands og „Betri borg fyrir
börn“ líta þessa niðurstöðu
mjög alvarlegum augum og
skora á foreldra og forráða-
menn barna að leggja sitt af
mörkum til að bæta ástandið.
Börn eigi rétt á að vera varin í
bfl.
Á ísafirði voru 88% leik-
skólabarna í barnabflstól eða
með bílbelti og litlu lægra hlut-
fall á Akureyri og í Reykjavík. Á
Raufarhöfn voru aftur á móti
aðeins 2 af 10 börnum í barna-
bflstól eða belti og útkoman var
litlu skárri á Eyrarbakka, Hell-
issandi, Garði og Eskifirði.