Dagur - Tíminn Reykjavík - 12.02.1997, Blaðsíða 7
JDagur-CEhttírm
Miðvikudagur 12. febrúar 1997 - 7
ERLENDAR FRETTIR
Alsír
Sprengjur og hnífar
Baksvið
Dagur Þorleifsson
Skæruliðar á vegum ís-
lamskra bókstafstrúar-
ílokka (sem tvívegis hafa
staðið fyrir sprengjutilræðum í
Frakklandi) hafa undanfarnar
vikur magnað á ný ógnaröldina
í Alsír, eftir að, til þess að gera
lítið, hafði farið fyrir henni um
hríð.
í baráttu þessari gera bók-
stafssinnar yfirleitt tvennt jöfn-
um höndum. í borgum sprengja
þeir, oftast sprengjur faldar í
bílum, og er reynt að stilla svo
til að sprengingarnar drepi og
limlesti sem flesta. í smáborg-
um og þorpum úti á landi er
fólk hins vegar höggvið eða
skorið á háls.
Ekki óstjórnlegt æði
Hér er um hroðalega grimmd
að ræða, en í frönskum blöðum,
a.m.k. Le Monde, er því haldið
fram að hlutaðeigandi hryðju-
verkamenn og skæruliðar séu
síður en svo haldnir nokkru
óstjórnlegu æði í því samhengi.
Þvert á móti fremji þeir illvirki
sín samkvæmt fyrirmælum og
skipulagi með ákveðin markmið
fyrir augum, með „köldu blóði“
sem sé.
Fólksflutningavagn í eigu hersins eftir sprengingu í Algeirsborg: Reynt að
hræða útlendinga.
Fréttaskýrandi við Le Monde
telur sprengjutilræðin í borgum
framin með það fyrir augum að
fæla frá útlendinga, einkum
vestræna - fjárfesta, frétta-
menn, stjórnarerindreka o.fl. -
sem farnir voru að sækja til
landsins á ný vegna þess að úr
óöldinni dró. Aukning heildar-
þjóðarframleiðslu s.l. ár mæld-
ist 5,5% og í áramótaspám var
gert ráð fyrir því að hún yrði
svipuð í ár. Einnig var þá spáð
að tekjur af olíu og jarðgasi,
helstu auðlindum landsins,
myndu aukast og að í stefnu
sinni í efnahagsmálum myndi
ríkisstjórnin fara að tillögum
frá Alþjóðlega gjaldeyrissjóðn-
um. Hlyti það að auka stöðug-
leika í efnahagslífi.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
við andlát og útför eiginmanns míns,
föður, tengdaföður, stjúpföður og afa,
INGÓLFS MARTEINSSONAR,
Glerárholti 1,
Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Heimahjúkrunar FSA og
Kristnesspítala.
Erla Þórðardóttir,
Kristín Laufey Ingólfsdóttir, Arnar Árnason,
Jóhann Pálsson Rist, Brynhildur Pétursdóttir,
Þórður Rist, Lára Jónsdóttir
og barnabörn.
Eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
SR. SIGMAR I. TORFASON,
fyrrum prófastur á Skeggjastöðum,
verður jarðsunginn frá Glerárkirkju, Akureyri, föstudaginn 14.
febrúarkl. 14.
Guðríður Guðmundsdóttir,
Jóhanna I. Sigmarsdóttir, Kristmundur M. Skarphéðinsson,
Stefanía Sigmarsdóttir, Helgi Sigurðsson,
Valgerður Sigmarsdóttir, Steingrímur Sigurjónsson,
Marta Kr. Sigmarsdóttir, Ásgrímur Þ. Ásgrímsson,
Aðalbjörg Sigmarsdóttir, Björn Sverrisson,
Guðmundur Sigmarsson, Harpa Á. Sigfúsdóttir
og barnabörn.
Vel vopnað og launað
varðlið
Úti á landi, þar sem bókstafs-
trúarsinnaðir skæruliðar beita
öxum og hnífum, er tilgangur
þeirra hins vegar að hræða
menn frá því að ganga í varð-
liðasveitir, er stjórnin hefur
stofnað síðustu árin vegna þess
að ljóst var orðið að bókstafs-
sinnar höfðu ________________
náð verulegu
fylgi í hernum,
sem að mestu
er byggður á
herskyldu. Við
þeim vanda
brást Alsír-
stjórn undir
forystu Liamine
Zéroual, hers-
höfðingja og
forseta, með
því að hætta að
beita hernum gegn uppreisnar-
mönnum nema úr íjarlægð. Það
þýðir að flugherinn hendir nap-
almsprengjum á bækistöðvar
uppreisnarmanna í íjöllunum,
eða á svæði þar sem flugherfor-
ingjarnir halda að slíkar bæki-
stöðvar séu, auk þess sem stór-
skotaliðið lætur sprengikúlur
dynja á raunverulegum eða
meintum stöðvum uppreisnar-
manna.
Fótgönguliði er hins vegar
lítt beitt gegn þeim og síst her-
skyldumönnum. Að öðru leyti
hefur stjórnin „einkavætt"
stríðið, eins og einn fréttaskýr-
andinn orðaði það. Hersveitir
þær sem af stjórnarinnar hálfu
berjast í návígi við uppreisnar-
menn núorðið eru einkum
sveitir herþjálfaðra lögreglu-
manna, sem í eru um 24.000
manns, og varðliðasveitir úti í
þorpunum, er vel eru vopnum
búnar og fá ómak sitt vel borg-
að. Stjórnin mun hafa gefið
liðssveitum þessum allvíðtækt
umboð til að heyja stríðið eins
og þeim best líki.
Keppni í grimmd
Þetta virðist hafa borið nokkurn
árangur, a.m.k. fer ekki milli
____________ mála að upp-
sem unnu Alsírsstríðið við
Frakka fyrr á öldinni, óar varla
mjög við grimmd uppreisnar-
manna sem shkri, því að það
var með þesskonar hryðjuverk-
um eða verri m.a. sem FLN
vann það stríð. Enda er stund-
um svo að heyra á fréttum að
með stríðsaðilum fari stöðugt
fram óformleg keppni um það,
hvor grimmari teljist. Það á
ekki að þurfa að koma mjög á
óvart; víða meðal mannkynsins
mun ekki mikill greinarmunur
gerður á grimmd og hugrekki
og má raunar vera að þessi tvö
hugtök séu alveg samrunnin í
hugum ófárra. Samanber það,
sem stendur í þekktri skáldsögu
íslenskri, „að góður víkingur
þyrmdi aldregi konu né barni í
hernaði."
Uppreisnarmenn í
Alsír reyna að fæla
þaðan fjárfesta og
dreifbýlinga frá því
að ganga í varðlið
stjórnarinnar.
reisnarmenn
hafa einkar ill-
an bifur á
varðliðasveit-
unum. í árás-
um uppreisnar-
manna á þorp-
in, þar sem fólk
er unnvörpum
skorið á háls
án tillits til
________ kjms eða ald-
urs, er einkum
leitast við að ná til Ijölskyldna
og venslafólks varðliða.
Hershöfðingjunum, sem nú
stjórna Alsír og sprottnir eru úr
Þjóðfrelsisfylkingunni (FLN),
samtökum alsírskra múslíma
Bændur og
aðrir seljendur
landbúnaðar-
afurða!
Minnum á afurðamarkaðs-
uppboðin sem eru alla
þriðjudaga kl. 15.
Upplýsingar um það sem
selja skal þurfa að vera
komnar á faxi í síma 482
2801 fyrir kl. 16 á mánu-
dögum.
Nánari upplýsingar á
skrifstofu í síma
482 2988.
AFURÐAMARKAÐUR
SUÐURLANDS
■■■iiiaiiBIIIIIIRIIllHHIlHIIIIilHHIIRIIRIIi
Hai.tur-(Lttninn
Dagur-Tíminn og Stafnbúar boða til
borgarafundar
í Ólafsfirði fimmtudagiim 13. febrúar, í Tjarnar-
borgkl. 20:30.
■
u
Fiskveiði-
stjórrii
Byggða-
stefna
Dagsltrá:
20:30 Ávarp og setning fundarins.
Jón Kjartan Jónsson, formaðui Stafnbúa.
T’ra ntsögii ni en ti:
20:40 Hálfdán Kristjánsson, bæjarstjóri, Ólafsfirði.
Valdimar Bragason, frkvstj. KEA á Dalvlk.
Gunnar Reynir Kristinsson, Sjóm.fél. Ólafsfj.
Ragnheiður Ólafsdóttir, Þingeyri.
Arðsemi Markús Möller, hagfræðingur Seðlabanka.
21:50 Kaffthlé.-
22:00Pallborðsumræður.
Við hvetjum fólk til að fjölmenna
því að þessi mál varða okkur öll.
9
rf/1*
LANDSBRÉF HF.
EIMSKIP
Akureyri
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■