Dagur - Tíminn Reykjavík - 12.02.1997, Síða 10
10 - Miðvikudagur 12. febrúar 1997
Jlagur-'ðltmmn
Sigur hjá Sigurði og
félögum í Þýskalandi
Sigurður Bjarnason skoraði
þrjú mörk fyrir Minden, þegar
liðið sigraði Hameln á heima-
velli sínum, 29:26 á sunnu-
daginn, en þá fóru nokkrir
leikir fram í þýsku 1. deildinni
í handknattleik. Wallau Mass-
enheim lagði Patrek Jóhann-
esson og félaga hjá Essen,
22:21 á heimavelli sínum og
skoraði Patrekur tvö marka
Essen. Þá mátti Schuttervald,
lið Róberts Sighvatssonar,
þola tap fyrir Rheinhausen í
botnbaráttu deildarinnar.
Leikið var á heimavelli
Schuttervald og lokatölur
urðu 21:23.
Leikið í Höllinni
og í Smáranum
Ákveðið hefur verið að lands-
leikir íslands og Egyptalands,
sem fram fara 25. og 26.
þessa mánaðar, fari fram í
Laugardalshöllinni og í Smár-
anum í Kópavogi. Þessir leikir
eru liður í undirbúningi ís-
lenska landsliðsins fyrir HM í
Japan sem fram fer í maí og
koma í kjölfar bikarúrslita-
leikjanna í karla og
kvennaflokki, sem fram fara
22. þessa mánaðar.
Stjörnustúlkur vildu
ekki fara norður
Forráðamenn ÍBA-liðsins í
handknattleik voru mjög
óhressir með framkomu
Stjörnunnar, en leikur iiðanna
í 1. deild kvenna átti að fara
fram á Akureyri sl. fimmtu-
dagskvöld. Leikur liðanna átti
að heijast kl. 18 um kvöldið í
KA-heimilinu, en ekkert varð
af leiknum þar sem Stjörnu-
stúlkur komu ekki norður,
þrátt fyrir að flugfært hefði
verið.
Um hálftíma seinkun varð
á flugi Stjörnustúlkna, vegna
snjókomu á Reykjavíkurflug-
velli og ekki var ljóst hvort
liðin hefðu náð að ljúka leikn-
um fyrir viðureign KA og Aft-
ureldingar í 1. deild karla,
sem hófst klukkan 20 og því
hefði hann hugsanlega verið
færður afturfyrir karlaleikinn.
Ekkert varð af því, þegar vél-
in tók á loft norður, voru leik-
menn Stjörmmnar ekki inn-
anborðs, stuttu síðar fengu
forráðamenn ÍBA símbréf frá
HSÍ um að leiknum hefði ver-
ið frestað.
Hamar
félagsheimili Þórs:
Salir til leigu
Tiivaldir til hvers
konar íþrótta- og tóm-
stundaiðkana.
Gufa - Pottur -
Búningsaðstaða
Hamar
sími 461 2080
KARFA • Samgöngur
Hvenær ber KKÍ að fresta
leikjum vegna veðurúWts?
að er ekki aðeins Kvía-
bekkur og Reykjavíkur-
höfn sem urðu hart úti í
óveðurskaflanum sem gengið
hefur yfir landið að undan-
förnu. Veðurhamurinn setti al-
varlegt strik í reikning körfu-
knattleiksliðs Skagamanna sem
urðu veðurtepptir á ísafirði,
sumir þeirra allt fram á mið-
vikudag.
Dagur-Tíminn hafði sam-
band við formann ÍA, Sigurð
Sverrisson, um ástand mála og
var hann allt annað en hress
með að mönnum væri att í leiki
hvernig sem viðraði, til þess
eins að ieikjaniðurröðun KKÍ
gæti staðist. Aðspurðm- um
hvort Skagamenn hefðu sótt um
frestun á leiknum sagði Sigurð-
ur svo ekki hafa verið. Aftur á
móti hefði honum ekki dottið
annað í hug en starfsmenn KKÍ
fylgdust með veðurútliti og
tækju ákvarðanir í samræmi við
aðstæður hverju sinni. „Það er
sama hvort það erum við eða
einhverjir aðrir, það á ekki að
vera etja mönnum út í ein-
hverja vitleysu þegar veðurútlit
er vonlaust og allra síst á ísa-
Qörð, þar sem ekki er hægt
komast þangað nema með flugi.
Það er hægt að komast með bíl-
um frá Akureyri og Sauðár-
króki, ekki seinna en daginn
eftir leik þar sem alltaf er mok-
að, en það á ekki við um ísa-
fjörð." Sigurður sagði þver-
móðsku KKÍ mikla þegar lið
leituðu eftir breytingum á
leikjaniðurröðun og nefndi sem
dæmi, að fáránlegt væri að leik-
ir á ísafirði væru leiknir kl. 20 á
sunnudagskvöldi þegar útilokað
væri að komast þaðan fyrr en
daginn eftir.
Skagamenn gerðu athuga-
semd við leikjaniðurröðunina í
haust og bentu á, að viturlegra
væri að leika kl. tvö eða fjögur
á fsaflrði, þá hefðu menn alla-
vega tækifæri til að komast
heim samdægurs. Sigurður
benti hka á þá staðreynd, að ef
lið neitaði að fara til leiks í
vafasömu veðurútliti þá lenti
það í miklu veseni. Tvö stig
yrðu tekin af liðinu, það mætti
reka það úr deildinni, það þyrfti
að borga allan þann kostnað
Guðni Þ.
Ölversson
skrifar
sem heimaliðið gæti smurt á
leikinn o.s.frv.
Alvarlegt fordæmi
Björn Leósson, starfsmaður
KKÍ, sagði aðspurður að stjórn
KKÍ íjallaði fljótlega um mál
dómaranna sem sem neituðu
að fara á Sauðárkrók vegna
veðurs á sunnudaginn. „Þetta
er mjög alvarlegt fordæmi,“
sagði Björn um þetta einstaka
tilvik.
Það verður því fróðlegt að
fylgjast með framvindu þessara
mála beggja. Ber KKÍ einhvern
kostnað af þessari „vitleysu"
eins og menn segja um þessi at-
vik eða eru þau alfarið á kostn-
að viðkomandi félaga? ÍA, sem
þurfti að verða sér úti um gist-
ingu, greiða fæði leikmanna og
vinnutap þeirra og Grindvíking-
ar sem biðu á flugstöðinni, eftir
því hvernig málið yrði leyst,
lögðu bæði út í töluverðan
kostnað þó hlutur Grindvíkinga
séu aðeins smáaurar í saman-
burði við kostnað ÍA.
Dómararnir, Bergur og Krist-
inn, eiga alla samúð í þessu
máli. Þeir höfðu vit fyrir for-
ráðamönnum KKÍ sem sátu
með hendur í skauti og vonuðu
að allt gerðist að sjálfu sér. Við
eigum heima á íslandi og því
verða menn að haga sér eftir
því, gæti verið niðurstaðan úr
þeim samtölum sem blaðið átti
nokkra körfuboltagúrúa lands-
ins.
KNAI ISPYRNA
Stórleikur
á Wembley
víst er hvort varnarmaður-
inn sterki Tony Adams og
miðjumaðurinn Paul Ince verði
með enska landsliðinu í HM-
leiknum gegn ftölum sem fram
fer á Wembley í kvöld. Helm-
ingslíkur eru taldar á að þeir
geti spilað, en ákvörðun verður
tekin um það eftir æfingu enska
liðsins í dag.
Paul Casgoigne, Alan Shear-
er og David Seaman hafa ekki
getað æft með enska landslið-
inu síðustu daga vegna meiðsla,
en þeir verða allir klárir í slag-
inn. Óvíst er hins vegar hvort
varnarmaðurinn sterki hjá AC
Milan, Allesandro Costacurta,
geti leikið með ítölum.
íslenskir knattspyrnuáhuga-
menn geta fylgst með viðureign
liðanna í beinni útsendingu á
Sýn og á gervihnattastöðinni
Sky Sports en leikurinn hefst
klukkan 20.
Ný
stjarna
í hástökki
Einar Karl Hjartarson,
sextán ára gamall
piltur sem keppir fyrir
USAH, hefur vakið mikla
athygli í vetur með stór-
góðum árangri í há-
stökki. Einar Karl bætti
drengjamet Einars
Kristjánssonar um einn
sentimetra á Jólamóti
UMSE þegar hann stökk
2,06 m og á Meistara-
móti 15-18 ára um helg-
ina gerði hann gott bet-
ur þegar hann stökk yfir
2,11 metra.
Einar Karl er frá
Blönduósi en stundar
nám í Menntaskólanum
á Akureyri og nýtur leið-
sagnar Jóns Sævars
Þórðarsonar frjáls-
íþróttaþjálfara. Ljós-
myndari Dags-Tímans
heilsaði upp á Einar
Karl á lyftingaæfingu í
íþróttahöllinni á Akur-
eyri í gær. Myn&.jHF
HANDBOLTI • Evrópumótin
Franskt lið fyrst í undanúrslitin
Franska liðið Us d’ivry varð fyrsta liðið til að tryggja sér þátt-
tökurétt í undanúrslitum á Evrópumóti, en liðið lagði mót-
herja sína frá Makedóniu að velli í Evrópukeppni bikarhafa.
Fyrri leikirnir í Evrópumótunum fóru fram um síðustu helgi og
urðu úrslit þessi:
Evrópukeppni meistaraliða
Pick Szeged (Ungverjal.)-Barcelona (Spáni) 26:28 (12:12)
ABC Braga (Portúgal)-Badel Zagreb (Króatíu) 24:23 (13:10)
Caja Santander (Spáni)-THW Kiel (Þýskal.) 26:23 (11:10)
Winterthur (Sviss)-Celja Piv. Lasko (Slóveníu) 21:21 (11:10)
Evrópukeppni bikarhafa
Magdeburg (Þýskal.)-TBV Lemgo (Þýskal.) 24:17 (10:8)
Us d’ivry (Frakkl.)-RK Mladost (Makedóníu) 35:22/35:23
Báðir leikirnir fóru fram í Frakklandi og franska liðið sigraði sam-
tals 70:45.
Petro. Plock (Póllandi)-Elg. Bidasoa (Spáni) 21:21 (9:10)
KA (Ísland)-Fotex Veszpr.(Ungverjalandi) 32:31 (17:16)
EHF-keppnin
Stjarnan (Íslandi)-Acad. Vigo (Spáni) 26:28 (14:12)
HC Prato (Ítalía)-Virum Sorgenfri (Danmörku) 21:25 (9:10)
Montpellier (Frakkl.)-Granollers (Spáni) 21:20 (10:12)
Gorenje Velenje (Slóveníu)-Flensborg Handew. (Þýskal.) 19:28
(12:15)
Borgakeppni Evrópu
Us Creteil (Frakkl.)-Drammen (Noregi) 24:24 (13:9)
Horn Sittardia (Hollandi)-Sandeíjord (Noregi) 22:20 (12:11)
Kolding (Danmörku)-IFK Skövde (Svíþjóð) 20:18 (12:8)
Pr. Adernar Leon (Spáni)-Nettelstedt (Þýskal.) 27:21 (14:12)
Athygli vekur hve mörg lið frá Norðurlöndum eru í Borgakeppn-
inni. Aðeins þrjú lið eru frá Norðurlöndunum í þremur efstu mót-
unum, auk KA og Stjörnunnar er danska liðið Virum Sorgenfri eftir
í EHF-keppninni, en danska liðið virðist raunar vera eina Norður-
landaliðið í mótunum þremur sem á góða möguleika á sæti í und-
anúrslitunum.