Dagur - Tíminn Reykjavík - 12.02.1997, Page 12
|0agur-©mTtm
Miðvikudagur 12. febrúar 1997
Úfsala
á Candy
heimilistækjum
Línuritin sýna fjögurra
daga veðurhorfur á
hverjum stað. Línan sýnir
hitastig, súluritið 12 tíma
úrkomu en vindáttir og
vindstig eru tilgreind fyr-
ir neðan.
Bragi Jónsson
veðurfrœðingur
Hæg suðlæg átt.
Stöku él við suður-
og vesturströndina
en annarst þurrt að
mestu. Englablíða
og gott skíðafæri.
i
í Þ R Ó T T I R
HANDBOLTI
Evrópuleikur
beinthjáRÚV
Síðari leikur KA og ung-
verska liðsins Fotex
Veszprém í Evrópukeppni
bikarhafa verður sýndur í
beinni útsendingu í Ríkis-
sjónvarpinu á laugardag-
inn, en samningar náðust
um það í gær. Leikurinn
verður einnig sýndur í
beinni útsendingu í Ung-
verjalandi.
BLAK • Bikar
Þróttarar
mætast
Stjarnan mætir KA í
Garðabænum og Þróttur
frá Reykjavík tekur á móti
nöfnum frá Neskaupstað í
undanúrsiitunum í bikar-
keppni karla í blaki, en
dregið var í hádeginu í
gær. Leikinir munu fara
fram á miðvikudagskvöldið
eftir viku.
í kvennaflokki tekur B-
lið KA á móti Þrótti Nes-
kaupstað og fer leikur lið-
anna fram 22. þessa mán-
aðar. Sigurvegararnir leika
til úrslita við Stúdínur.
SKIÐI • HM
Kristínn keppir í
stórsvigi á HM í dag
Kristinn Björnsson.
Kristinn
Björnsson,
skíðamaður
frá Ólafsfirði, verður
á meðal keppenda í
stórsvigi á heims-
meistaramótinu sem
nú fer fram á Sestri-
ere á Ítalíu. Fyrri
umferðin hefst
klukkan 9 og kepp-
endur verða ræstir
út í síðari ferðina um
hádegisbilið. Þetta verður fyrsta
HANDBOLTI
Heil umferð i
1. deild karla
Heil umferð fer fram í 1.
deildinni í handknattleik í
kvöld og þá mætast eftirtalin
lið.
FH-ÍBV kl. 20
Selfoss-Haukar kl. 20
ÍR-Grótta kl. 20
Valur-KA kl. 20
UMFA-HK kl. 20
stórsvigsmót Kristins
á árinu, en hann
hefur einbeitt sér að
keppni í svigi og ljóst
er að hann verður
ræstur út seint í
keppninni.
Félagi Kristins í
íslenska alpalands-
liðinu, Arnór Gunn-
arsson frá ísafirði,
hefur ákveðið að
taka ekki þátt í stór-
svigskeppninni heldur einbeita
sér að sviginu sem fram fer
næsta laugardag.
KNATTSPYRNA
Blóðtaka hjá
Þórsurum
Sveinn Pálsson, fyrirliði
Þórsliðsins í knatt-
spyrnu, og Birgir Þór
Karlsson, sem báðir hafa
átt fast sæti í Þórsliðinu á
undanförnum árum, hafa í
hyggju að leggja skóna á
hilluna. Ástæðan mun vera
sú að þeir félagar sjá fram
á að erílðlega muni reynast
að samræma vinnu við æf-
ingar hjá Akureyrariiðinu.
Ljóst er að Þórsliðið
mun að miklu leyti byggj-
ast upp á yngri leikmönn-
um næsta sumar. Liðið
fékk til sín sóknarleik-
manninn Ejub Purisevic í
vetur og ekki stendur til að
fara út í frekari kaup á
leikmönnum.
SKIÐAGANGA
Kynning í Laugardalnum
Um 100 manns mættu á kynningu Skíðasambandsins á
skíðagöngu, sem haldin var á Grundarfirði og í Ólafsvík um síð-
ustu helgi, og sagðist Kristinn Svanbergsson, framkvæmdastjóri
Skíðasambandsins, ánægður með viðtökurnar.
SKÍ gekkst fyrir kynningu á þessari íþrótt á síðasta vetri sem
naut mikilla vinsælda. Höfuðborgarbúar eiga þess kost að stíga á
gönguskíði í Laugardalnum um næstu helgi, en um níu hundruð
manns nýttu sér það í fyrra. Um aðra helgi gefst Norðlendingum
síðan kostur á að reyna sig í þessari íþrótt.
Landstíðsmenn
ttítíðsviðGR
KAUPLAND
KAUPANGI
Slml 462 3565 ■ Fax 461 1829
Nokkrir af bestu kylfingum
landsins hafa ákveðið að
ganga til liðs við Golf-
klúbb Reykjavíkur og leika fyrir
hönd klúbbsins. Þorsteinn Hall-
grímsson, fyrrum fslandsmeist-
ari frá Golfklúbbi Vestmanna-
eyja, sem varð annar á síðasta
Landsmóti, hyggst flytja til
Reykjavíkur og hann mun leika
fyrir Golfklúbb Reykjavíkur.
Sömu sögu er að segja af Akur-
eyringnum Erni Arnarsyni, sem
lék fyrir Leyni í fyrra og Skaga-
mennina Kristinn G. Bjarnason
og Helga Dan Steinsson. Kylfing-
arnir hafa allir verið viðloðandi
landsliðshópinn og það er því
ljóst að Golfklúbbur Reykjavíkur
mætir með sterka sveit til leiks í
sumar, en Landsmótið fer fram í
Grafarholti og 1. deildin í Sveita-
keppninni fer fram í Eyjum.
Ástæðan fyrir að kylfingarnir
ganga til liðs við GR, er kannski
fyrst og fremst sú að kylfing-
arnir eru búa nú allir í Reykja-
vík og að því leyti léttast að
sækja æfingar. Þá hefur GR
verðlaunað kylfinga sem ná
góðum árangri í stigamótum og
það hefur eflaust hjálpað mörg-
um við að taka ákvörðun.
Sigurpáll á sjó
Sigurpáll Geir Sveinsson úr
Golfklúbbi Akureyrar, sem varð
íslandsmeistari karla 1994,
mun að öllum líkindum taka sér
frí frá golfi í sumar. Sigurpáll,
sem nú er í skóla í Bandaríkj-
unum, er búinn að ráða sig á
togara frá Akureyri. Sigurpáll
er þó langt frá því búinn að
segja skilið við golfíþróttina,
hann mun fyrst og fremst fara á
sjóinn með það fyrir augum að
eiga fyrir skólagjöldunum ytra.
Kristinn G. Bjarnason, sem verið hefur í Leyni á Akranesi undanfarin ár, er
einn þeirra sem gengið hafa til liðs við GR. uyn&.te