Dagur - Tíminn Reykjavík - 25.02.1997, Síða 3

Dagur - Tíminn Reykjavík - 25.02.1997, Síða 3
ÍDctgur-®mthm Þriðjudagur 25. febrúar 1997 - 15 LIFIÐ I LANDINU Hættir í kennslu og fer á námslán Draumey Aradóttir kennari hefur sagt upp störfum og aetlar í nám í Háskóla ísiands því að hún telur sig hafa um 40 þúsundum króna hærri ráðstöfunar- tekjur með því að taka lán hjá LÍN en með því að vinna sem kennari. Kennari hefur sagt upp störfum og œtlar íframhalds- nám til að geta framfleytt fjölskyldu sinni og bœtt afkomuna. Kennara- launin eru lœgri en námslán þegar allt er tekið með í reikninginn. * g er búin að segja upp vegna þess að ég fram- fleyti mér ekki af þessum launum. Ég ætla aftur í háskól- ann. Þetta er bitur staðreynd en þannig er það. Ég hef að minnsta kosti 40 þúsundum króna meira í ráðstöfunarfé á mánuði með því að fara aftur í nám,“ segir Draumey Aradótt- ir, 37 ára einstæður kennari með tvö börn. Draumey hefur verið starfandi við grunnskóla á höf- uðborgarsvæðinu í tvo vetur og haft tæpar 95 þúsund krónur í brúttólaun á mánuði, eða að- eins 68 þúsund krónur útborg- að að meðtöldum skertum barnabótaauka. Hún byrjar í heimspeki eða íslensku við Há- skóla íslands í haust og tekur framhaldsnám í íslensku ef af því námi verður þar sem hún var með íslensku sem aukafag í Kennaraháskólanum. Samkvæmt upplýsingum frá LÍN skerðast námslán Draum- eyjar aðeins um 5.000 krónur á mánuði næsta vetur. í stað þess að hafa 103 þúsund krón- ur í ráðstöfunartekjur frá LÍN á mánuði fær hún 98 þúsund krónur og er því samt yfir brúttó kennaralaunum. Barna- bætur og barnabótaauki bæt- ast svo við að fullu. Greiðslubyrðin eykst ekkert Draumey var á námslánum ár- in 1992-1995 meðan hún var við nám í Kennaraháskólanum og getur því aðeins fengið námslán í fjögur ár og getur því fengið lán í samtals fimm ár í viðbót, tvö ár til að ljúka nýju BA-prófi og síðan þrjú ár til að ljúka masters eða dokt- orsprófi hér á landi. Formlega séð er doktorsnám ekki í boði hér á landi í heimspeki og ís- lensku. Draumey hefur fengið þær upplýsingar hjá LÍN að hún sé þegar búin að fá það hátt námslán að það lán, sem hún taki í viðbót, auki ekki greiðslubyrðina. Hún sé þegar búin að taka svo mikið fé að láni hjá LÍN að hún verði hvort sem er að borga af lánunum fram á áttræðisaldurinn. „Allt sem ég tek að láni í viðbót bætist aftan við það sem ég hef þegar tekið vegna þess að maður borgar ekki hlutfall af höfuðstóli láns heldur hlut- fall af tekjum þannig að ég mun aldrei nokkurn tímann borga það sem ég tek að láni til viðbótar," segir Draumey. Verður í námi næstu sjö árin Ilún kveðst búast allt eins við því að notfæra sér réttindi til lántöku hjá LÍN að fullu næstu árin og vera eins lengi í námi og henni er frekast unnt til að geta séð fyrir sér og börnunum sínum á sómasamlegan hátt. Eins og launin séu núna segist hún ekki geta gert nokkurn skapaðan hlut fyrir börnin sín. „Ég veit að ég kem til með að eiga auðveldara með að borga eitt og annað þegar börnin eru farin að heiman þannig að ég vil frekar hafa það þokkalegt meðan ég er að ala þau upp og borga svo mín námslán þegar þau eru farin að heiman," segir hún. -GHS

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.