Dagur - Tíminn Reykjavík - 06.03.1997, Page 4

Dagur - Tíminn Reykjavík - 06.03.1997, Page 4
4 - Fimmtudagur 6. mars 1997 ÍDitgur-'3Itmirat FRÉTTIR Vestmannaeyjar Sigmundsbaujan á erlendan markað Gísli Már Gíslason frá samstarfsnefnd Háskólans og Vestmannaeyja- bæjar, Þorsteinn I. Sigfússon formaður samstarfsnefndarinnar, Sigmund sem heldur á neyðarbaujunni og dr. Bjarki frá Þróunarfélaginu. róunarfélag Vestmanna- eyja hefur undirritað samstarfssamning við þýska stórfyrirtækið Comet Gmbh um lokaþróun og mark- aðssetningu á nýrri tegund neyðarbauju fyrir skip og báta. Neyðarbaujan inniheldur þrjá neyðarflugelda, ljósgjafa og rafeindabúnað sem bæði skynjar stöðu baujunnar í sjón- um og ræsir eldflaugarnar í fyr- irfram ákveðinni tímaröð. Auk þess fylgir baujunni sjálfvirkur sleppibúnaður sem losar bauj- una verði farkosturinn fyrir áfalli. Áætlað er að markaðs- setja neyðarbaujuna alþjóðlega. Frumhugmyndina að neyð- arbaujunni átti uppfmninga- maðurinn Sigmund Jóhannsson og hefur hún því verið nefnd „Sigmundsbaujan." Sigmund er landsþekktur fyrir uppfinningar sínar tengdar öryggismálum sjómanna og má þar meðal annars nefna „Sigmundsgálg- ann,“ sjósetningarbúnað fyrir gúmmíbjörgunarbáta. Hugmyndin var síðan þróuð áfram með aðstoð Nýsköpunar- sjóðs og slysavarnardeildarinn- ar Eykyndils af Guðjóni Guð- jónssyni, eðlisfræðinema, undir leiðsögn Próf. Þorsteins I. Sig- fússonar við Háskóla íslands sem einnig er formaður stjórn- ar samstarfsnefndar Háskóla íslands og Vestmannaeyjabæjar. Þróunarfélag Vestmannaeyja hefur nú tekið að sér að ljúka þróun Sigmundsbaujunnar og vinna að markaðssetningu hennar og er undirritun samn- ingsins við Comet Gmbh fyrsta skrefið í þá átt. Lokaþróun Sig- mundsbaujunnar er styrkt af Rannsóknarráði íslands. Sigmund Jóhannsson, teikn- ari og uppfinningamaður, segir að hugmyndin sé nokkurra ára gömul. „Hugmyndin varð til þegar ég fór að hugleiða hvers vegna þessir litlu bátar hafa horfið sporlaust. Ekki virðist hafa ver- ið tími til að skjóta upp rakettu. Það hefur alltaf sýnt sig að neyðarblysin eru fljótvirkasta aðferðin tii að láta vita af sér hvað varðar nærstadda báta. Það eins og og neyðarblysin sjá- ist alltaf. Þetta er fljótvirkari aðferð en gervihnattamóttakar- arnir,“ segir Sigmund. Eins og flestum landsmönn- um er kunnugt um hefur Sig- mund verið ötull liðsmaður sjó- manna undanfarna áratugi hvað varðar öryggismál þeirra. Sigmund segir að þetta áhuga- mál sitt tengist einfaldlega því að búa á þessu skeri í Eyjum þar sem íbúarnir hafi lifibrauð sitt af fiskveiðum. Haukarnir gefa byr ✓ Eg er mjög glaður fyrir hönd Dagsbrúnar og Framsóknar. Boðaðar aðgerðir þeirra gefa okkur byr undir báða vængi,“ seg- ir Jens Andrésson, formað- ur Starfsmannafélags ríkis- stofnana. Hann hafnar þvf að op- inberir starfsmenn séu eitt- hvað linari til verkfalla en félagsmenn stéttarfélaga á almenna markaðnum. Hins- vegár geta félög opinberra starfsmanna ekki boðað til aðgerða á einstökum vinnu- stöðum eins og félög á al- menna markaðnum. Ef fé- lag hjá hinu opinbera ætlar í verkfall verður það að boða til allsherjarverkfalls. Enn sem komið er hefur engin ákvörðun verið tekin um það hvað sem síðar kann að verða. Þess í stað hafa aðildarfélög BSRB boðað til fundaherferðar á næstu dögum til að leggja áherslu á sínar kröfur. Þá hefur verið boðað til for- mannafundar aðildarfélaga bandalagsins nk. mánudag, 10. mars. -grh Þjóðarbúskapurinn Hagvöxturinn 5,7% Vöxturinn í efna- hagslífinu sá mesti frá 1987 og sömu- leiðis einn sá mesti í iðnríkjum í fyrra Góðæri síðasta árs kemur glöggt í ljós í bráða- birgðauppgjöri Þjóðhags- stofnunar á helstu þjóðhags- stærðum. Hagvöxturinn var um 5,7% á árinu, hinn mesti síðan 1987 og er þetta jafnframt með hæstu hagvaxtartölum í iðnríkj- um á síðasta ári. Byggist hann annars vegar á auknum þjóðar- útgjöldum, einkum til fjárfest- ingar og einkaneyslu og hins vegar auknum útflutningi. Áætlað er að þjóðarútgjöld hafl aukist um 7,4% í fyrra, sem skýrist af nær ijórðungs aukningu í ijárfestingum og 6,5% aukinni einkaneyslu. Út- flutningur vöru og þjónustu jókst um nær 10% milli ára. Viðskiptajöfnuðurinn var þó óhagstæður um meira en 9 milljarða - 12,5 milljörðum óhagstæðari en árið áður - sem skýrist af fjárfestingu og einka- neyslu. Á árabilinu 1994-96 hefur afkoma atvinnulífsins verið góð í samanburði við árin þar á undan, segir Þjóðhagsstofnun. Hreinn hagnaður kringum 3% af tekjum hvort ár. Eigi að síður voru jafnaðarlega um 5.800 manns atvinnulausir í fyrra og fækkaði minna heldur en Þjóð- hagsstofnun hafði áætlað. - HEI A1En&~ ^Dagur-fDmxrat í ár mun fara fram ljóðasamkeppni MENOR (Menningarsamtaka Norðlendinga) og Dags-Tímans, en samkeppnin er með sama sniði og undanfarin ár. Skilafrestur er til 14. apríl. Ljóð í keppnina skal senda undir dulnefni en rétt nafn fylg)a í lokuðu umslagi. Allir, hvar sem er á landinu, hafa rétt til þátttöku og mun dómnefnd velja eitt vinningsljóð auk tveggja ljóða sem fá aukavinning. Sigurvegarar fá glæsileg bókaverðlaun. Þátttökuljóð sendist til: MENOR Hrísalundi la PO 328, 600 Akureyri. Skóflustunga Björn Bjarnason, menntamálaráð- herra, tók fyrir helgi fyrstu skóflu- stungu að nýjum nemendagörðum hjá Kennaraháskólanum, á horni Bólstaðarhlíðar og Stakkahlíðar. Þarna verða reistar 42 íbúðir fyrir sérskólanema og hefur verið skrif- að undir kaupsamning við Húsa- nes ehf. um byggingu þeirra. Mynd: ÞÖK Vodkastrtyglmálið Nálgast lokastig Rannsókn á stóra vodka- smyglmálinu, eins og það hefur verið nefnt, er að nálgast Iokastig en ekki er enn ljóst hvenær Ríkissaksóknara verður send ákæra eða hve margir verða ákærðir. Annars vegar hefur rannsóknin beinst að smyglinu inn í landið og hins vegar dreifingu. Málið reyndist mjög umfangsmikið og voru margir yfirheyrðir. Enginn situr lengur í gæsluvarðhaldi en þeir voru 6 þegar mest var. BÞ

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.